Morgunblaðið - 12.12.2013, Qupperneq 32
32 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 2013
✝ Þorgeir Þor-steinsson,
fyrrverandi sýslu-
maður og lög-
reglustjóri á
Keflavík-
urflugvelli, fædd-
ist í Hermes á
Búðareyri við
Reyðarfjörð 28.
ágúst 1929. Hann
lést 27. nóvember
2013.
Foreldrar hans voru Þor-
steinn Jónsson, kaupfélags-
stjóri Kaupfélags Héraðsbúa,
sonur Jóns Bergssonar, bónda
á Egilsstöðum, og Margrétar
Pétursdóttur, og Sigríður Þor-
varðardóttir Kjerúlf húsfreyja,
dóttir Þorvarðar Kjerúlf,
læknis og alþingismanns, og
Guðríðar Ólafsdóttur Hjalte-
sted.
Systkini Þorgeirs: Þorvarð-
ur Kjerúlf, fv. bæjarfógeti og
sýslumaður á Ísafirði (látinn),
Margrét húsfreyja (látin); Jón,
fv. yfirlæknir. Fósturbróðir:
Ólafur H. Bjarnason (látinn).
Þorgeir lauk cand. juris-
prófi frá Háskóla Íslands 1956.
Hann var fulltrúi hjá bæj-
arfógetanum í Hafnarfirði og
sýslumanninum í Gullbringu-
og Kjósarsýslu frá 1956-1959.
Hann var aðalfulltrúi hjá lög-
reglustjóranum á Keflavíkur-
dís, f. 1987. Seinni eiginmaður:
Bragi Gunnarsson. Þau skildu.
Börn þeirra: María Elísabet, f.
1993, Gunnar Þorgeir, f. 1994,
og Hörður Tryggvi, f. 1997. 2)
Þorsteinn, hagfræðingur, f.
1955. Eiginkona hans er Ásta
Karen Rafnsdóttir og börn
þeirra: Ásta Sólhildur, f. 1991,
Ásgeir Þór, f. 1994, og Herdís
Aþena, f. 1996. 3) Sigríður
heimspekingur, f. 1958. Eig-
inmaður hennar er Magnús
Diðrik Baldursson. Dóttir
þeirra: Elísabet, f. 1986. 4)
Ófeigur Tryggvi læknir, f.
1960. Eiginkona hans er María
Heimisdóttir. Synir þeirra:
Tryggvi, f. 1991, og Gísli, f.
1998.
Dóttir Þorgeirs og Jóhönnu
Andreu Lúðvígsdóttur er Katla
Margrét leikkona, f. 1970. Eig-
inmaður hennar er Jón Ragnar
Jónsson. Synir þeirra: Bergur
Hrafn, f. 1997, og Egill Árni, f.
2008.
Seinni kona Þorgeirs var
Kristín Sveinbjörnsdóttir en
þau skildu. Stjúpsonur hans-
,sonur Kristínar og Magnúsar
Blöndals Jóhannssonar tón-
skálds, frænda Þorgeirs, er
Marínó Már lögreglumaður, f.
1971. Eiginkona hans er Sonja
Kristín Sverrisdóttir og börn
þeirra: Kristján Jökull, f. 2002,
og Laufey Kristín, f. 2004.
Dóttir Sonju Kristínar og
stjúpdóttir Marínós: Elísa Ósk,
f. 1991.
Útför Þorgeirs Þorsteins-
sonar fer fram frá Dómkirkj-
unni í dag, 12. desember 2013,
og hefst kl. 13.
flugvelli frá 1959-
1974 er hann var
skipaður lög-
reglustjóri og svo
sýslumaður frá
1992. Hann sinnti
einnig dóm-
arastörfum áður
en aðgreint var á
milli fram-
kvæmdar- og
dómsvalds við slík
embætti. Þorgeir
starfaði við lögreglustjóra- og
síðar sýslumannsembættið á
þeim tíma sem bandarískt her-
lið var á Keflavíkurflugvelli.
Þorgeir hlaut viðurkenn-
ingar fyrir störf sín, þar á
meðal Officer of the British
Empire og sambærilega orðu
frá Þýskalandi.
Þorgeir var virkur í upp-
byggingu golfíþróttarinnar og
einn af stofnfélögum Golf-
klúbbs Suðurnesja. Hann tók
virkan þátt í starfi Framsókn-
arflokksins eins og hann átti
ættir til.
Þorgeir var tvíkvæntur.
Fyrri eiginkona hans var Her-
dís Tryggvadóttir, f. 1928,
dóttir Tryggva Ófeigssonar
útgerðarmanns og Herdísar
Ásgeirsdóttur. Börn þeirra
eru: 1) Herdís, lögfræðingur, f.
1954. Fyrri eiginmaður: Stefán
Erlendsson, dóttir þeirra: Her-
Þorgeir tengdafaðir minn var
eftirminnilegur maður. Hann var
mikill á velli, glæsimenni með
ljúfa en virðulega framkomu.
Hann átti ákaflega farsælan
starfsferil hjá sýslumannsemb-
ættinu á Keflavíkurflugvelli,
fyrst sem fulltrúi, síðar sem lög-
reglustjóri og sýslumaður. Börn-
in hans og barnabörnin voru þó
það sem hann var stoltastur af í
sínu lífi.
Í löngu starfi sem lögreglu-
stjóri og sýslumaður tókst hann
á við mörg erfið og viðkvæm mál
af festu og myndugleik en jafn-
framt af ljúfmennsku og lítillæti.
Hann hampaði aldrei sínum
þætti á þessu sviði enda hógvær
maður. Hann var ófeiminn við að
taka afstöðu og standa með sinni
sannfæringu þó það gæti vissu-
lega tekið á. Umhyggja hans fyr-
ir starfsmönnum sínum hélst í
hendur við faglegan metnað hans
fyrir hönd embættisins og hlut-
verks þess í samskiptum við al-
menning og varnarliðið. Fyrir
störf sín hlaut hann ýmsar viður-
kenningar, m.a. nafnbótina „Offi-
cer of the British Empire“.
Björgun lítils drengs frá drukkn-
un í Njarðvíkurhöfn á sjöunda
áratugnum var afrek sem hann
talaði lítið um en gladdist yfir,
líklega meira en flestu öðru.
Þorgeir var glaðlyndur og
hlýr maður sem naut þess að
vera umkringdur börnum,
barnabörnum, frændum og vin-
um. Hann var ákaflega fróður
um eigin ætt og lagði sig fram
um að kynna sér ættir annarra.
Hann var frændrækinn og fylgd-
ist alltaf vel með sínu fólki hvar
sem það var statt hverju sinni.
Þorgeir las mikið meðan sjón-
in entist og hafði sérstakan
áhuga á sögu Evrópu og Banda-
ríkjanna, svo og á sögu heims-
styrjaldarinnar síðari enda var
honum herseta bandamanna á
Reyðarfirði í barnsminni. Hann
hafði oft ferðast um Frakkland
og hélt sérstaklega upp á franska
sögu og menningu og raunar allt
sem franskt var. De Gaulle var
hans maður og Renault hans bíll,
alveg þangað til hann keypti sér
Benz. Um þau skipti mátti helst
ekki ræða. Hann fylgdist vel með
pólitík innanlands og utan og
Framsóknarflokkurinn var hans
flokkur fram á síðasta dag. Þor-
geir var einn af stofnendum Golf-
klúbbs Suðurnesja. Hann spilaði
golf meðan heilsan leyfði og naut
þar góðs félagsskapar ekki síður
en íþróttarinnar sjálfrar.
Það voru forréttindi að fá að
ferðast með Þorgeiri, jafnt
heima á Íslandi sem erlendis. Ég
fékk að njóta þessara forréttinda
næstum á hverju sumri frá því
við kynntumst fyrst fyrir aldar-
fjórðungi. Hann var einstaklega
fróður um staðhætti og sögu
landsins alls, en Austfirðir áttu
alltaf sérstakan sess í hans huga.
Hann gat rakið ábúendur á
hverjum bæ í marga ættliði,
þekkti hvern stein og kunni
ógrynni af sögum af svæðinu.
Þar átti hann líka marga góða
frændur og vini sem hann rækt-
aði samband sitt við alla tíð. Það
var eins og hann ætti alltaf
heima þar þó hann hefði flutt
þaðan sem unglingur. „Nú fer ég
í mannheima“ sagði Þorgeir þeg-
ar hann ætlaði austur á firði.
Þetta orðalag lýsir Þorgeiri vel –
hann lagði ekki illt til nokkurs
manns og vildi hvers manns götu
greiða.
Ég þakka Þorgeiri ljúf kynni.
Blessuð sé minning góðs manns.
María Heimisdóttir.
Ég man ljóslifandi þegar þú
birtist í dyragættinni, hávaxinn í
ljósum frakka, mjög tignarlegur
með virðuleg brún augun. Ég
stökk upp um háls þér og sagði
„Þorgeir.“ Viðbrögð mín komu
þér á óvart en þú tókst þessu
með bros á vör og faðmaðir mig
að þér. Þar með var ísinn brot-
inn. Þetta var árið 1976 og þarna
hittumst við í fyrsta sinn. Ég var
5 ára gamall. Ekki leið á löngu
þar til við mamma fluttum til þín
í Grænásinn og ég kallaði þig
pabba Þorgeir í fyrsta sinn. Ég
man hvað þér þótti vænt um það.
Það streymdi mikil hlýja frá
þér til mín og mömmu og þú
varst óþreytandi við að fræða
okkur um ýmsa veraldlega hluti.
Þú varst mjög stoltur af uppruna
þínum enda varstu Austfirðingur
og framsóknarmaður í húð og
hár. Ekki má gleyma þeim gríð-
arlega áhuga þú hafðir á öllu því
sem tengdist Frakklandi og
franskri menningu. Stundum
þegar vel lá á þér kyrjaðir þú fyr-
ir mig franska þjóðsönginn. Ég
man ekki hvort mér fannst vand-
ræðalegra framburðurinn eða
söngröddin en það skipti ekki
máli. Þú varst mjög stoltur og
hátíðlegur og mér datt ekki í hug
að skemma augnablikið.
Þú kynntir okkur mömmu fyr-
ir golfíþróttinni og fyrir það verð
ég þér ævinlega þakklátur. Það
voru forréttindi að alast upp í
Leirunni þar sem mér var skutl-
að á morgnana með skrínukost
og kakómalt í brúsa og svo sóttur
fyrir kvöldfréttirnar.
Við áttum margar góðar
stundir fyrir framan sjónvarpið í
Grænásnum þar sem við tefldum
kvöld eftir kvöld og oftar en ekki
vannst þú. En ég man að einu
sinni hafði ég sigur og þér var
alls ekki skemmt. Þetta var
óvænt heimaskítsmát. Þú misstir
einbeitinguna eitt augnablik og
ég gekk á lagið. Ég var gríðar-
lega ánægður með sjálfan mig þá
og mamma sem var stödd inni í
eldhúsi hrökk til við fagnaðar-
lætin í mér.
Svo liðu árin og fórum við að
eiga okkar innbyrðis rimmur.
Ástæðan var fyrst og fremst
bara ein. Bakkus félagi þinn var
farinn að taka stóran toll af
heimilislífinu og hafa djúpstæð
áhrif á samband ykkar mömmu.
Á unglingsárum mínum reyndi
ég að leiða sjúkdóm þinn hjá mér
en það var ekki alltaf auðvelt.
Okkur var þó oftast vel til vina.
Það var svo rétt eftir áramótin
1993 að þú spurðir mig hvort ég
hefði ekki áhuga á að koma og
starfa í lögreglunni um sumarið.
Ég lét tilleiðast og þar hef ég
verið síðan. Við það kynntist ég
alveg nýrri hlið á þér. Þú varst
orðinn yfirmaður minn og það
var mér ómetanleg og holl
reynsla í alla staði. Ég tók strax
eftir því hversu mikið traust þú
barst til þinna manna og mjög
einbeittur að vilja liði þínu allt
hið besta.
Nú seinni árin hittumst við því
miður sjaldan og ekki voru mörg
samtölin okkar á milli, nú eða
heimsóknir. Þú ítrekaðir við mig
margoft að þú værir lítið fyrir að
eiga frumkvæði og taka upp sím-
tól og það, vinur minn, áttum við
sameiginlegt.
Síðasta skiptið sem ég hitti þig
heimsótti ég þig á Dalbrautina.
Þú varst þar að spila við félaga
þína og náðum við ekki að spjalla
mikið saman þá. En ég man að ég
bara settist við hliðina á þér og
horfði lengi vel á þig og sá að þér
leið vel. Það var nóg fyrir mig.
Ég kyssti þig á ennið og kvaddi.
Kæri pabbi Þorgeir, ég kveð
þig með söknuði og þakka þér
fyrir allt sem þú gerðir fyrir mig.
Ég á þér mikið að þakka.
Þinn
Marinó Már Magnússon
(Mási).
Þorgeir föðurbróðir minn var
yngstur fimm systkina sem ólust
upp í Hermes, hinu mannmarga
heimili foreldra hans á Reyðar-
firði. Meðal minna fyrstu
bernskuminninga er þegar ég
var sendur reglulega úr Reykja-
vík til sumardvalar austur á
Reyðarfjörð til afa og ömmu í
Hermes, á árunum eftir stríð og
uppúr 1950. Afi var með tölu-
verðan búskap meðfram eril-
sömu starfi kaupfélagsstjóra auk
þess að vera iðulega oddviti á
þessum árum. Þorgeir var þá
einn sinna systkina sem enn voru
í heimahúsum á sumrin, en hann
stundaði laganám á vetrum.
Mörg sumur ók hann vörubíl hjá
kaupfélaginu, sem var draumur
allra ungra manna á Reyðarfirði
í þá daga, við flutning á varningi
til bænda á Héraði. Einnig þurfti
að sinna heyskap og öðrum bú-
störfum. Var þá oft mikið líf í
tuskunum ekki síst þegar frænd-
systkini komu í heimsókn eða til
sumardvalar. Þorgeir var mjög
góður í fótbolta og var hann
stundaður öll kvöld. Hann gerði
mikið að því að þjálfa okkur ung-
lingana í hlaupum og öðrum
íþróttum og sérstaklega hafði
hann gaman af því að etja okkur
strákunum saman að reyna
krafta okkar.
Þorgeir var 12 ára gamall þeg-
ar breski herinn gekk á land á
Reyðarfirði 1. júní 1941 og setti
þar niður aðalbækistöðvar sínar
á Austurlandi. Voru þar hátt á
annað þúsund hermenn þegar
mest var. Hér urðu meiri og
sneggri umskipti í lífi íbúanna en
annars staðar á landinu á árum
seinni heimsstyrjaldarinnar. Má
jafnvel fullyrða að þessi innrás
hafi umturnað meir lífi fólks hér
en önnur innrás sem varð 60 ár-
um síðar við byggingu álversins.
Nærvera og samskipti við herinn
hafði gríðarleg áhrif á íbúana og
ekki hvað síst á unglingana sem
voru alltaf að sniglast í kringum
hermennina og voru margir fljót-
ir að ná tökum á enskunni. Her-
inn var í 2-3 ár, fyrsta árið bresk-
ur og síðan amerískur. Vera má
að þessi reynsla Þorgeirs hafi
haft áhrif á að eftir nám varð
hann fulltrúi og síðar lögreglu-
stjóri á Keflavíkurvelli og átti all-
an sinn starfsaldur í samskiptum
við varnarliðið og ameríska her-
inn. Þorgeir kom nánast á hverju
ári austur og alltaf varð hann að
fara á Reyðarfjörð og æsku-
stöðvarnar. Fjörðinn sem hann
dáði svo mjög með sín tignarlegu
og fjölbreyttu fjöll, varð að finna
nálægð þeirra og kraftinn sem
þeim fylgir og hamrabeltunum
og þykku blágrýtislögunum sem
einkenna fjöllin hér líklega með
öflugri og skýrari hætti en ann-
ars staðar á landinu. Hitta
frændur, vini og kunningja og
rifja upp fyrri tíð og fylgjast með
þeirri stórkostlegu uppbyggingu
sem hér hefur átt sér stað á síð-
ustu árum.
Þorgeir kom í sumar á ættar-
mót Egilsstaðaættarinnar sem
haldið var á Héraði. Þá skrapp
ég með hann í heimsókn á Reyð-
arfjörð. Við sátum í veðurblíð-
unni með ölglas í hendi og nutum
í síðasta sinn saman útsýnisins,
rifjuðum upp örnefni og heiti á
fjöllunum og dásömuðum fegurð
fjallahringsins. Varð mér þá
hugsað til þess er segir í fornu
kvæði að „römm er sú taug, er
rekka dregur föðurtúna til“ og
hve sérstaklega vel það átti við
Þorgeir frænda minn.
Blessuð sé minning hans.
Einar Þorvarðarson.
Vinur minn og frændi Þorgeir
Þorsteinsson, fv. sýslumaður og
lögreglustjóri á Keflavíkurflug-
velli, er látinn.
Með Þorgeiri er genginn góð-
ur drengur, sérstæður og
skemmtilegur persónuleiki.
Þorgeir var fæddur á Reyðar-
firði 28. ágúst 1929, sonur
hjónanna Þorsteins Jónssonar
kaupfélagsstjóra á Reyðarfirði
og konu hans Sigríðar Þorvarð-
ardóttur Kjerúlf, yngstur fjög-
urra barna þeirra.
Við Þorgeir vorum bræðra-
synir og höfum þekkst og verið
nánir félagar frá bernsku.
Mér er það ennþá sérstaklega
minnisstætt þegar ég sem lítill
strákur kom fyrst á Reyðarfjörð
og hitti Þorgeir. Hann stjórnaði
þar stórum hópi stráka á mis-
munandi aldri í ýmsum leikjum
og framkvæmdum af mikilli
snilld en þó af hæversku sem
sannkallaður foringi. Allir leit-
uðu eftir og hlýddu leiðsögn
hans, jafnvel þeir sem voru tals-
vert eldri. Hann kom einnig oft
og dvaldi á Egilsstöðum á sumrin
og brölluðum við þá ýmislegt
ásamt frænda okkar Jóni Péturs-
syni, síðar héraðsdýralækni á
Egilsstöðum.
Haustið þegar Þorgeir var 13
ára og ég 14 hófum við nám í
Menntaskólanum á Akureyri.
Við leigðum okkur herbergi sam-
an í Ægisgötu, neðst á Oddeyr-
inni, þaðan var langur gangur
upp í skóla og þurftum við að
hlaupa upp kirkjutröppurnar oft
á dag. Við sáum um okkur sjálfir
að öllu leyti og þóttumst orðnir
fullorðnir menn. Þetta var samt
ekki tekið gilt af öllum, m.a. þótti
okkur ótækt hve margar bíó-
myndir voru bannaðar innan 16
ára. Þorgeir dó þó ekki ráðalaus,
hann brást við þessum vanda í
skyndi, keypti sér frakka og
„Battersbý“-hatt og leit þá út
eins og Hollywood-leikari þess
tíma og það dugði stundum til.
Þorgeir var strax mikill
heimsborgari, fylgdist með öllu,
fréttum og dagblöðum, stefnum
og stjórnmálum, var ákaflega
minnugur og fróður, las mikið,
allt nema námsbækurnar, hon-
um dugði að fylgjast með í tímum
og lesa fyrir próf.
Hann var gamansamur og
skemmtilegur og varð því mjög
vinmargur, og var það fram á síð-
ustu stund. Þorgeir hafði gaman
af að spjalla og rökræða um allt
milli himins og jarðar, m.a. póli-
tík og var dyggur samvinnu- og
framsóknarmaður alla sína tíð.
Þorgeir var mjög ættrækinn
og lagði sig fram um að halda
sambandi við frændfólk sitt,
einnig við bernskustöðvarnar,
Reyðarfjörð, og fólkið þar eða
íbúa þaðan sem fluttir voru á höf-
uðborgarsvæðið. Eftir mennta-
skóla skildi leiðir okkar Þorgeirs
um hríð. Ég fór til útlanda til
náms en hann í Háskóla Íslands
og lauk þaðan cand. juris-prófi
1956. Síðan varð hann fulltrúi hjá
bæjarfógetanum í Hafnarfirði og
sýslumanninum í Gullbringu- og
Kjósarsýslu frá 1956-1959 og var
aðalfulltrúi hjá lögreglu-
stjóranum á Keflavíkurflugvelli
frá 1959-1974 er hann var skip-
aður lögreglustjóri og síðan
sýslumaður frá 1992 og gegndi
því starfi til starfsloka með reisn
og sæmd.
Börnum og fjölskyldu Þor-
geirs votta eg samúð mína.
Blessuð sé minning þín, vinur.
Ingimar Sveinsson.
Kynslóðir koma og kynslóðir
fara. Frændur og frænkur
hverfa á braut við hið hinsta kall
en eftir sitja minningar sem eft-
irlifendur geyma og verða um
leið hluti af okkur. Minningin um
Þorgeir Þorsteinsson frá Her-
mes á Reyðarfirði, föðurbróður
okkar, mun lifa skær og hlý.
Austfirðingur, framsóknar-
maður, lögfræðingur, lögreglu-
stjóri og Kjerúlf. Ef Þorgeir
hefði átt að lýsa sér sjálfur hefði
upptalningin verið á þessa leið.
Kaupfélagsstjórasonur að aust-
an, fæddur í upphafi kreppunnar
miklu þegar samvinnuhugsjónin
sannaði gildi sitt, hlaut að verða
liðsmaður þeirra Hermanns og
Eysteins. Annar heimanmundur
Þorgeirs, góðar gáfur og náms-
hæfileikar, leiddu hann í MA og
síðan í laganám við Háskóla Ís-
lands. Fyrsta starf eftir embætt-
ispróf í lögum setur iðulega kúrs-
inn í starfsferlinum. Þorgeir
byrjaði sem fulltrúi hjá sýslu-
manninum í Hafnarfirði 1956 og
við tók rúmlega 40 ára ferill með
þeim starfsframa sem „lög gera
ráð fyrir“ þegar í hlut á jafnhæf-
ur og glæsilegur maður eins og
Þorgeir var en hann varð lög-
reglustjóri á Keflavíkurflugvelli
45 ára að aldri. Lögsagan var hið
sameiginlega yfirráðasvæði ís-
lenska ríkisins og mesta herveld-
is heimsins, varnarsvæðið á Mið-
nesheiði með íbúafjölda á við
stóran kaupstað. Telja verður að
Þorgeir hafi verið einstaklega vel
í stakk búinn til að gegna þessu
ábyrgðarmikla starfi. Samskipti
við herinn og framkvæmd ís-
lenskra laga og réttargæsla ís-
lenskra þegna gagnvart stór-
veldinu krafðist í senn lipurðar
og myndugleika svo reisnar Ís-
lands væri gætt með sæmd. Hér
kom austfirski uppruninn sér vel
þar sem lotning fyrir orðum og
borðum hefur aldrei keyrt um
þverbak.
Í takt við tíðarandann fluttu
börnin úr Hermes suður til
mennta og starfa og bjuggu þau
flest um tíma og oft samtímis á
Þórsgötu 5. Húsið hafði Sigríður
Kjerúlf, yndisleg amma okkar
og móðir Þorgeirs, fengið í arf
eftir móður sína Maddömu Guð-
ríði, seinni konu séra Magnúsar
Blöndal langafa okkar sem jafn-
framt var fósturfaðir Sigríðar.
Húsið varð því nokkurs konar
útibú frá Hermes fyrir sunnan.
Þorgeir og Herdís fluttu í íbúð-
ina á móti foreldrum okkar 1954,
þá nýgift. Eins og margir lýstu
því þá var það „brúðkaup ald-
arinnar“. Þar hallaðist ekki á
gjörvileikann. Næsta víst er að
sambýlið á Þórsgötunni á árun-
um 1943-1955 á sinn þátt í því
hve tengsl systkinanna úr Her-
mes urðu náin á lífsleiðinni. Þor-
geir ávarpaði aldrei móður okk-
ar öðru vísi en með orðunum
„Begga mín“. Við þóttumst líka
eiga hlut í Þorgeiri og öll ung-
mennin í fjölskyldunni löðuðust
að þessum glæsilega, glaðværa
og skemmtilega frænda. Vin-
sældir hans meðal okkar bræðra
og systur okkar voru slíkar að
foreldrar okkar gátu á tímabili
ekki farið út að skemmta sér
nema Doddi passaði. Í upprifjun
þessara æskuminninga ber aldr-
ei skugga á nafn Þorgeirs Þor-
steinssonar.
Þorgeir hafði til að bera aust-
firska reisn og höfðingslund og
skilur við lífið rétt eins og hann
lifði því, með reisn. Við kveðjum
kæran frænda með virðingu og
söknuði.
Eggert, Guttormur og
Þorsteinn Ólafssynir.
Hjónabandi Herdísar föður-
systur minnar og Þorgeirs Þor-
steinssonar lauk um það leyti
sem ég fór að muna eftir mér að
ráði. Engu að síður hefur nálægð
hans ætíð verið sterk og ég vil
minnast hans í örfáum orðum.
Þorgeir var glæsimenni,
skemmtilegur og skarpgreindur
með „glimt í øjet“ eins og faðir
minn heitinn hefði orðað það en
pabba var alltaf hlýtt til fyrrum
mágs síns. Seinni árin hitti ég
Þorgeir eingöngu við stór tíma-
mót í lífi barna hans eða barna-
barna. Nú síðast í vor þegar tvær
dótturdætur hans fögnuðu náms-
áföngum og stolt afans leyndi sér
ekki. Þrátt fyrir nokkur þreytu-
merki vegna Elli kerlingar sýndi
hann áhuga á högum mínum og
minntist góðra stunda.
Fyrir nokkru hittumst við,
börn systkinanna af Hávalla-
götu, og skoðuðum saman gaml-
ar myndir. Þar á meðal voru ein-
staklega fallegar myndir sem
Þorgeir
Þorsteinsson