Morgunblaðið - 12.12.2013, Side 40
40 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 2013
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Láttu þér ekki detta í hug að þú getir
ekki unnið þau verk sem þér hafa verið falin.
Mundu, það skiptir ekki máli hversu mikið þú
þénar heldur hversu mikið þú sparar.
20. apríl - 20. maí
Naut Reyndu ekki að beita brögðum til að
stjórna öðrum. Ef þú veitir svör, verður þér
launað með svörunum sem þú leitar eftir.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Kraftmiklar tilfinningar gera vart
við sig í samböndum í dag. Gættu þess að
dreifa ekki kröftum þínum um of því slíkt leið-
ir ekki til neins.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Forðastu að vera með stóryrtar yfir-
lýsingar um líf annarra. Rifrildi af hvaða tagi
sem er snúast ekki um annað en tilfinningar.
Reyndu að koma hugmyndum þínum á fram-
færi með sem skýrustum hætti.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Óendanleg þolinmæði þín borgar sig.
Leggðu þitt af mörkum og vertu óhrædd/ur
við að mæta hinum á miðri leið.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú lifir þig ákaft inn í hlutina í dag.
Taktu eftir öllum draumum og tilfinningum
sem lýsa upp tilgang þinn.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það þarf visst hugrekki til þess að taka
af skarið, þegar mál eru tvísýn. En líttu ekki
of lengi um öxl því það er framtíðin sem
skiptir máli.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Ekki er allt gull sem glóir. Er ein-
hver samkeppni í gangi? Ógnar skynsemi þín
öðrum? Það gæti verið. Farðu því varlega í
öllum samskiptum.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú leggur þig alla/n fram í starfi
og það vekur almenna hrifningu yfirmanna
þinna. Þú finnur leiðir til þess að beina
ástríðu þinni þannig að aðrir hörfi ekki ótta-
slegnir.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Stilltu þig um að taka þátt í ólög-
legum eða leynilegum athöfnum í dag. Fólk er
á varðbergi gagnvart þér, þú skilur ekki af
hverju. Það þekkir þig ekki, gefðu því tíma.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Nú er öldin sú, að þú kemst ekki
hjá því að taka tölvuna í þjónustu þína. Ekki
láta stoltið ráða för í samskiptum við hitt
kynið.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Fátt er eins dýrmætt og að eiga sér
góðan sálufélaga sem hægt er að deila með
gleði sinni og sorgum. Njóttu jákvæðni þinnar
meðan hún varir og reyndu að hitta alla sem
þér er annt um í dag.
Hafsteinn Reykjalín Jóhann-esson er mikill fjöllistamaður.
Hann hefur m.a. gefið út ljóðabók-
ina „Út úr þokunni“, er einn af
stofnendum Félags frístundamál-
ara og semur lög sér til skemmt-
unar. „Limru-Skjóðu“ kallar hann
nýútkomna bók sína og limrurnar
dægurflugur. Þessar limrur komu
fyrst upp úr skjóðunni og hafa yf-
irskriftina „Vorið í pólitík 2013“:
Kosningar kjósendur vilja,
koma á frelsi og skilja
að klórir þú mér,
þá klóra ég þér
og kenni þér gróðann að hylja.
Klóra þú, karlinn, fyrst mér
því kosning á næstunni er.
Þótt talir þú ört
er tunga þín svört
og traust mitt því dvínandi fer.
Á kjördaginn langa nú líður
og loksins í hlaðið þá ríður
ríkisstjórn kná
sem kann þó að fá
á kjaftinn sem var þó oft blíður.
Við Framsókn er frábært að búa,
þeir fjármagni ætla að snúa
heimila til,
ég hér um bil
var tilbúinn því að trúa.
Margt hefur verið ort um pólitík-
ina og ekki alltaf blásið byrlega í
kjaramálum. Jóhann Hannesson
orti:
Ég er fjárlagasparnaðarfremjandi,
svo mér finnst ekki í alvöru semjandi
um hækkanir við
þetta háskólalið
síhótandi og síBHMjandi.
Enn orti Jóhann:
Hverjum stjórnmálaflokki er svo farið
að hann forðast að taka af skarið.
Spurð hvað milljón sé stór
svarar miðstjórn í kór:
„Það er misjafnt. Hver biður um svarið?“
Það er spurning hvort Gísli Jóns-
son hitti naglann á höfuðið:
Jú, víst eru limrurnar liðugar,
en löngum þær bestu ósiðugar.
Þau orð sem þar henta
má bara alls ekki prenta,
og aðrar bara ekki neitt sniðugar.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Tínt upp úr limruskjóðum
gömlum og nýjum
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÉG ÆTLA AÐ FÁ HLAÐBORÐIÐ.
ÁTTU SVO ANNAÐ FYRIR MANNINN MINN?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að frétta að þið séuð
að verða afi og amma.
ÉG REYNI AÐ GEFA AÐ MINNSTA
KOSTI EITT GOTT HRÓS ... Á DAG.
ÞAÐ TEKST EKKI
ALLTAF.
KÖTTUR
PAVLOVS.
ÉG HÉLT AÐ
LÆKNIRINN HEFÐI
SAGT ÞÉR AÐ HÆTTA
AÐ BORÐA SNARL Á
MILLI MÁLA!
ÞETTA ER
EKKI SNARL ...
... ÞETTA ER MEIRA EINS
OG KVÖLDMATUR
NÚMER TVÖ!
Víkverji er stressaður. Svo er málmeð vexti að mörg verkefni
hafa safnast saman á hans könnu.
Kosturinn er sá að verkefnin eru
fjölbreytt og taka til ýmissa þátta.
Víkverja leiðist því ekkert í
vinnunni. Gallinn er að verkefnin
eru fjölbreytt og taka til ýmissa
þátta, sem þýðir að erfitt er að
halda einbeitingunni. Víkverji getur
því hvergi slugsað, þó að það komi
fyrir að hann ruglist stundum á því
sem hann er að gera hverju sinni.
x x x
Kannski er versti gallinn sá aðVíkverji finnur engan tíma til
þess að sinna öllum litlu hlutunum
sem þarf að sinna til að undirbúa
jólin. Pakkar hér og jólainnkaup
þar mega sitja á hakanum þangað
til á Þorláksmessu, sem verður
fyrsti almennilegi frídagur Víkverja
í desember. Víkverji er þó alls ekki
að kvarta, heldur er hann þakklátur
fyrir að vera í góðu og skemmtilegu
starfi, þó að það verði stundum
krefjandi. En það getur aldrei verið
neitt annað en kostur.
x x x
Samstarfsmaður Víkverja er í alltöðrum og rólegri málum. Hann
er í sambandi við góða konu, sem
gefur orðinu skipulagning nýja
merkingu. Þannig hefur samstarfs-
maðurinn aldrei klárað sín jólainn-
kaup fyrr en rétt eftir lokun búða á
messu heilags Þorláks. Að þessu
sinni er hann búinn með öll jólainn-
kaup og allan undirbúning, þó að
tæpar tvær vikur séu enn til jóla.
Þetta mun allt vera konunni að
þakka, og sér Víkverji stóran mun
á samstarfsmanninum frá fyrri jól-
um.
x x x
Þrátt fyrir hvatningu samstarfs-mannsins um að Víkverji temji
sér skipulag að hætti konunnar
þráast Víkverji við. Hann er orðinn
það vanur stressinu og amstri dags-
ins að honum myndi líklega leiðast
ef það væri ekki mikið á döfinni hjá
honum hverju sinni. En mikið rosa-
lega hlakkar hann til jólafrísins.
víkverji@mbl.is
Víkverji
Þið þekkið náð Drottins vors Jesú
Krists. Hann gerðist fátækur ykkar
vegna, þótt ríkur væri, til þess að þið
auðguðust af fátækt hans.
(Síðara Korintubréf 8:9)
mbl.is
alltaf - allstaðar
Línur eða strengir?
Föstudaginn 13. desember kl. 8:30-10:00 bjóða Verkfræðingafélag Íslands og
Tæknifræðingafélag Íslands til morgunfundar um kostnað við lagningu loftlína og
jarðstrengja í flutningskerfinu hér á landi. Fundurinn verður á Grand Hótel Reykjavík.
Dagskrá:
Framkvæmdakostnaður við 220 kV jarðstrengjalagnir
Þorri Björn Gunnarsson, jarðtækniverkfræðingur hjá Mannviti
Líftímakostnaður 220 kV loftlína og jarðstrengja
Jón Vilhjálmsson, rafmagnsverkfræðingur hjá Eflu
Fundarstjóri
Snæbjörn Jónsson, rafmagnsverkfræðingur hjá Verkís
Boðið verður upp á kaffi og rúnstykki frá kl. 8:15
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir!
Morgunfundur VFÍ og TFÍ
föstudaginn 13. desember á Grand Hótel Reykjavík