Morgunblaðið - 21.12.2013, Síða 31

Morgunblaðið - 21.12.2013, Síða 31
Erlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 2013 Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Þekktasti fangi Rússlands, Míkhaíl Khodorkovskí, var leystur úr haldi í gær eftir að hafa setið í fangelsi í rúman áratug. Khodorkovskí var auðugasti maður Rússlands áður en hann féll í ónáð í Kreml þegar hann vogaði sér að veita andstæðingum Vladímírs Pútíns forseta fjárhags- legan stuðning. Hann var tvisvar sinnum dæmdur fyrir fjársvik en stuðningsmenn hans, vestræn stjórnvöld og mannréttindasamtök telja að fangelsisdómarnir hafi verið runnir undan rifjum Pútíns og emb- ættismanna hans í Kreml. Tilkynning Pútíns í fyrradag um að hann hygðist veita Khodorkovskí sakaruppgjöf kom mörgum stjórn- málaskýrendum á óvart. Tildrög sakaruppgjafarinnar eru enn óljós, t.a.m. er ekki vitað hvort Khodor- kovskí hafi gert einhvers konar samning við Kremlverja um að hann hafi ekki afskipti af rússneskum stjórnmálum. Hins vegar telst það alveg víst að Pútín hefði aldrei fallist á sakaruppgjöfina teldi hann að hon- um stafaði hætta af auðkýfingnum fyrrverandi. Khodorkovskí átti að vera í fang- elsi þar til í ágúst á næsta ári en rússneskir saksóknarar sögðu fyrr á árinu að hann kynni að verða sak- sóttur í þriðja skipti fyrir peninga- þvætti. Pútín sagði í fyrradag að hann teldi engar líkur á að Khodor- kovskí yrði dreginn fyrir rétt aftur. Rússneska dagblaðið Kommers- ant hafði eftir ónafngreindum heim- ildarmönnum í gær að Khodor- kovskí hefði ákveðið að óska eftir sakaruppgjöf eftir að embættismenn öryggisstofnana hefðu komið til hans í fangelsið og hótað honum þriðju réttarhöldunum. Pútín kvaðst hafa ákveðið að veita Khodorkovskí sakarupp- gjöf af mannúðarástæðum vegna veikinda móður hans sem er 79 ára og þjáist af krabbameini. Fáir taka mark á þeirri skýringu. Stjórn- málaskýr- endur og hagfræð- ingar telja að ákvörðun Pútíns sé liður í tilraunum hans til að draga úr gagnrýni á rúss- nesk stjórnvöld fyrir mannréttinda- brot og bæta ímynd landsins fyrir vetrarólympíuleikana í Sochi í febr- úar. Slakar ekki á klónni Stjórnmálaskýrandinn Pierre Bri- ancon telur að ekki sé hægt að túlka ákvörðun Pútíns sem merki um að hann hyggist slaka á klónni. Khodorkovskí hafi orðið að tákni um pólitískt einræði Pútíns og tangar- hald Kremlverja á stærstu fyrir- tækjum landsins en einræðiskerfið hverfi ekki þótt holdgervingur oks- ins hafi fengið frelsi. „Þetta er mjög mikilvægt merki. Í sjálfu sér breytir þetta engu en fær- ir fjárfestum von,“ sagði þó hag- fræðingurinn Sergej Gúríev, sem flutti búferlum til Frakklands fyrr á árinu eftir að hafa gagnrýnt síðari fangelsisdóminn yfir Khodorkovskí. Hermt er að Gúríev hafi flúið frá Rússlandi eftir að rússnesk yfirvöld hafi hafið rannsókn á stuðningi hans við stjórnarandstæðinga. Rússneska viðskiptablaðið Ve- domosti lýsti sakaruppgjöfinni sem óvæntu „trompi“ er Pútín hefði spil- að út fyrir vetrarólympíuleikana. „Kerfinu stafar ekki lengur hætta af Khodorkovskí,“ sagði blaðið. Það bætti við að sakaruppgjöfin myndi ekki „græða sárin sem viðskiptalíf- inu og samfélaginu var veitt fyrir tíu árum“ þegar hann var hnepptur í fangelsi. Áður hafði dúman, neðri deild þingsins, samþykkt sakaruppgjöf sem nær til a.m.k. 20.000 fanga, m.a. fanga undir lögaldri, fatlaðra, barns- hafandi kvenna, mæðra og fyrrver- andi hermanna. Pútín hefur staðfest að sakaruppgjöfin nái til tveggja kvenna í pönkhljómsveitinni Pussy Riot, sem voru fangelsaðar fyrir mótmæli gegn Pútín, og Grænfrið- unga sem mótmæltu olíuvinnslu Rússa í Norður-Íshafi. EPA Frjáls í Berlín Míkhaíl Khodorkovskí (t.v.) ræðir við Hans-Dietrich Genscher, fyrrverandi utanríkisráðherra Þýska- lands, á flugvelli í Berlín. Khodorkovskí kom þangað í gær eftir að honum var sleppt úr fangelsi í Rússlandi. Míkhaíl Khodorkovskí er mjög um- deildur í Rússlandi; sumir líta á hann sem þjóf sem hafi stórauðg- ast á einkavæðingunni eftir hrun Sovétríkjanna en aðrir telja hann vera píslarvott og fórnarlamb kúg- unar ráðamannanna í Kreml. Lík- lega er hann hvort tveggja. Khodorkovskí, sem er fimm- tugur, stofnaði Menatep-banka þegar hann var 26 ára og notaði hann til að kaupa olíu- fyrirtækið Yuk- os á lágu verði í forsetatíð Borís Jeltsíns. Hann var á meðal svo- nefndra olíg- arka sem dældu peningum í kosn- ingasjóði Jeltsíns til að hjálpa hon- um að ná endurkjöri árið 1996 þegar vinsældir hans höfðu snarminnkað. „Í staðinn lét stjórn- in Khodorkovskí bestu bitana í té fyrir litla peninga [í einkavæðing- unni],“ sagði Matthias Schepp, blaðamaður Der Spiegel í Moskvu. Khodorkovskí féll hins vegar í ónáð hjá Pútín eftir að auðkýf- ingurinn tók að dæla peningum í andstæðinga forsetans. Eftir að Khodorkovskí var dæmdur í fang- elsi fyrir tíu árum var olíufyrirtæki hans lýst gjaldþrota og eignir þess seldar fyrirtækjum í eigu ríkisins, m.a. Rosneft sem er nú stærsta olíufyrirtæki heims sem skráð er á hlutabréfamarkaði. Rússneska rík- ið á enn meirihluta í Rosneft og fyrirtækið er undir stjórn eins af nánustu bandamönnum Pútíns, Ígors Setsjíns, sem er talinn hafa beitt sér fyrir handtöku Khodor- kovskís. Þjófur og/eða píslarvottur KHODORKOVSKÍ ER UMDEILDUR Í RÚSSLANDI Vladímír Pútín Óvænt útspil Pútíns talið breyta sáralitlu  Okið hverfur ekki þótt holdgervingur þess fái frelsi 4 4 Tengimögul.,iPod/MP3 / Plötuspilara! Tengimögul.,iPod/MP3 / Plötuspilara! Tengimögul.,iPod/MP3 / Plötuspilara! Tengimögul.,iPod/MP3 / Plötuspilara! Jólagjöfin á einstöku verði www.tivoliaudio.de thdan@simnet.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.