Morgunblaðið - 21.12.2013, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 21.12.2013, Qupperneq 42
42 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 2013 Síðumúla 5 108 Reykjavík Sími 511 1225 www.intellecta.is Óskum viðskiptavinum okkar gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Þökkum viðskipti og samstarf á líðandi ári. Ráðgjafar Intellecta The Embassy of Canada in Reykjavík is looking to hire an International Business Development & Public Affairs Officer For details regarding the position and the application process please visit our website at www.canada.is Atvinnuauglýsingar 569 1100 SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700 www.hagvangur.is Sterk tengsl í íslensku atvinnulífi www.hagvangur.is ✝ SigurgrímurGuðmundsson fæddist í Stykk- ishólmi 24. sept- ember 1931. Hann lést á Heilbrigð- isstofnun Akraness 13. desember 2013. Foreldrar hans voru Guðmundur Jónasson, f. í Blönduhlíð, Dal. 8. september 1865, d. 19. október 1949, og Ágústa Jónína Sigurgrímsdóttir, f. í Ólafsvík 16. október 1887, d. 16. júní 1974. Dóttir Sigurgríms er Guðrún Sólveig, f. 29.2. 1968, eiginmaður Páll Ágúst Jónsson, f. 4.5. 1968. Börn Guðrúnar af fyrra hjónabandi eru: Þuríður Erla Helgadóttir, f. 30.7. 1991, Sigurjón Páll Helgason, f. 16.12. 1993, og Lilja Lind Helgadóttir, f. 31.8. 1996. Sonur Guð- rúnar og Páls er Veigar Jóhann, f. 24.11. 2006. Páll á fyrir Jón Hólm, f. 16.7. 1993. Sigurgrímur fæddist í Stykkishólmi og bjó þar alla sína tíð. Útför Sigurgríms fer fram frá Stykkishólmskirkju í dag, 21. desember 2013, og hefst at- höfnin kl. 14. Fyrsta minning mín um föður minn er síðan ég var fjögurra eða fimm ára, hann var í heim- sókn hjá okkur mömmu og ég var að sýna honum hvað ég var dugleg að sippa, man reyndar ekkert hvernig það tókst. Kannski var það fyrir þetta skipti sem ég man líka eftir að hafa verið að bíða eftir að hann kæmi í heimsókn og var ég alltaf mjög spennt að fá hann í heim- sókn, eflaust kom hann alltaf með einhverja gjöf handa mér, líklega dúkkur, því mikið átti ég af þeim. Ég man líka eftir því að mér fannst að jólin væru komin þeg- ar ég var búin að fara á póst- húsið og sækja jólapakkann frá pabba. Það var alltaf mjög spennandi að fá pakka frá pabba. Þegar ég var 15 ára fórum við mamma í heimsókn til hans í fyrsta skipti, þá opnaðist fyrir mér nýr heimur, vá pabbi minn átti flott hús! Ekki var síðan mikið samband á milli okkar en svo eftir að hann eignaðist barnabörn fór hann að vera dug- legri að koma í heimsóknir og var einnig hjá okkur á jólunum í mörg ár. Ekki treysti hann sér til okkar í fyrra og voru jólin þá ansi skrýtin, bæði án hans og án mömmu í fyrsta skipti, en hún lést í nóvember í fyrra. Pabbi var mjög skipulagður og var með bókhaldið á hreinu. Einnig skrifaði hann í dagbækur nær alla tíð, þó mest til að skrá niður vinnutíma og eitthvað sem tengdist vinnunni. Ekki var hann fljótur til svars, og þurfti líklega að ígrunda vel það sem hann ætlaði að segja. Og í sím- tölum okkar komst hann loks á skrið þegar ég byrjaði að kveðja. Hann var alltaf mjög dugleg- ur að ferðast og fór örugglega á hverju ári til útlanda í fjölda- mörg ár, einkum til sólarlanda. Í eitt skipti kom hann með okkur til Spánar og skemmti hann sér konunglega í þeirri ferð. Í byrjun nóvember kom í ljós að illvígur sjúkdómur var kom- inn af stað og ekkert hægt að gera. Við vonuðum að pabbi myndi eiga aðeins lengri tíma með okkur en sú varð ekki raun- in, við hittumst aftur hinum megin elsku pabbi minn. Þín dóttir, Guðrún Sólveig Sigurgrímsdóttir. Sigurgrímur Guðmundsson Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust allaútgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Neðst á forsíðu mbl.is má finna upplýsingar um innsendingarmáta og skilafrest. Einnig má smella á Morgunblaðslógóið efst í hægra horninu og velja viðeigandi lið. Skilafrestur | Sé óskað eftir birtingu á útfarardegi þarf greinin að hafa borist á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, jafnvel þótt grein hafi borist innan skilafrests. Lengd | Hámarkslengd minningargreina er 3.000 slög. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda stutta kveðju, Hinstu kveðju, 5-15 línur. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem aðstandendur senda inn. Þar kemur fram hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og hvenær útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn, svo og æviferil. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í for- málanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírn- arnöfn sín undir greinunum. Myndir | Hafi mynd birst í tilkynningu er hún sjálfkrafa notuð með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd skal senda hana með æviágripi í innsendikerfinu. Hafi æviágrip þegar verið sent má senda myndina á netfangið minning@mbl.is og gera umsjón- arfólki minningargreina viðvart. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.