Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.12.2013, Blaðsíða 18
Ljósmyndir/Rúnar G
F
rændurnir Einar Rúnar
Magnússon frá Kjarnholt-
um í Biskupstungum og
Laugvetningurinn Gestur
Gunnarsson fengu þá hugmynd að
fara saman í langferð á mót-
orhjólum. Eins og fleiri góðar
varð hugmyndin að veruleika og
þeir hjóluðu um Perú í tæpan
mánuð í haust. Með í för voru
tveir bræðra Gests, Rúnar og
Arnar, og Gunnar faðir þeirra
Vilmundarson. Tækifærið var not-
að í tilefni þess að Gunnar varð
sextugur í sumar.
„Þetta var mikið ævintýri,“ seg-
ir Rúnar í samtali við Sunnudags-
blað Morgunblaðsins. „Okkur
langaði að fara lengra en í bak-
garðinn.“
Perú var nógu langt í burtu!
Þeir fóru utan í lok október.
„Þegar við vorum úti var ná-
kvæmlega ár liðið síðan pabbi féll
fjóra metra ofan af þaki og fót-
brotnaði mjög illa. Um tíma var
talið að hann næði sér ekki nógu
fljótt en komst sem betur fer
með og skemmti sér frábærlega
eins og við allir. Þessi hópur hef-
ur gaman af lífinu; alltaf til í að
fíflast, og við gerðum mikið af
því...“
Hópurinn skipulagði gróflega
hvert fara skyldi og hvað bæri að
skoða. „Að morgni var ákveðið
hvert við færum þann dag og svo
útveguðum við okkur gistingu að
kvöldi. Það gekk yfirleitt vel.“
Þeir hittu fáa aðra ferðalanga.
„Rigningartímabilið var að byrja
og við hittum eiginlega enga aðra
ferðamenn nema niðri við strönd-
ina, þar sem fólk fór eftir Pan
American hraðbrautinni.
Rúnar segir mestu upplifun
ferðarinnar að koma í fornu Inka-
borgina, Machu Picchu. „Það var
myndrænast og stórmerkilegt að
koma á staðinn. En margt annað
er eftirminnilegt, t.d. þegar við
gistum í einföldum kofum í Ama-
zon innan um tarantúlur og
krókódíla. Að keyra hjól í slyddu
í 4800 metra hæð yfir And-
esfjöllin er líka eitthvað sem ekki
gleymist auðveldlega.“ Þeir fóru
þó enn hærra; hæst 4.890 m yfir
sjávarmáli. „Það kom líka
skemmtilega á óvart hve íbúar
voru almennt ofboðslega glaðir og
kátir, alltaf til í að aðstoða eða
gantast og hlæja með hópnum.
Svo er umferðarmenningin
óvenjuleg; þeir hika ekkert við að
keyra fram úr stórum trukkum í
blindbeygjum á þessum tæplega
mánuði keyrðum við fram á þrjú
mjög alvarleg rútuslys.“
Á fjallvegi milli Chivay og Camana. Gestur, Gunnar, Arnar, Rúnar, Einar Rúnar.
FEÐGAR OG FRÆNDI SAMAN TIL PERÚ
Ævintýri
á hjólaför
FIMM ÍSLENDINGAR FÓRU Í VÉLHJÓLAFERÐ UM PERÚ Í
HAUST; FRÁ BORGINNI CUSCO Í ANDESFJÖLLUM, AUSTUR
AÐ BRASILÍU, SUÐUR AÐ BOLIVÍU OG LOKS MEÐ KYRRA-
HAFSSSTRÖNDINNI VESTUR AÐ HÖFUÐBORGINNI LIMA.
Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Hópurinn við fornu Inka-borgina Machu Picchu. Frá vinstri: Rúnar, Einar Rúnar, Gestur, Gunnar og Arnar. „Það var myndrænast og stórmerkilegt að koma á staðinn.," segir Rúnar Gunnarsson í viðtalinu.
* Það sem komlíklega mest áóvart var hve allir
voru ofboðslega
glaðir og kátir,
miðað við það sem
maður hafði lesið
um ástandið.
Einar Rúnar, Arnar og Rúnar á leið niður Wayna Picchu. Rúnar á Puerto Inca ströndinni.
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15.12. 2013
Ferðalög og flakk