Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.12.2013, Page 39
15.12. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39
Þ
að eru eflaust einhverjar hús-
mæður að anda í poka akkúrat
núna yfir öllu sem þær eiga eftir
að gera fyrir jólin. Ég segi hús-
mæður því ég þekki afar fáa karla sem
fara upp á afturlappirnar þegar jólin
ganga í garð. Þeir ná nefnilega einhvern
veginn að sigla í gegnum desembermánuð
alveg afslappaðir og rólegir þótt hvirfilbyl-
urinn hreinlega hringsnúist í kringum þá.
Þetta er svona þangað til þeir hrökkva í
jólagírinn, korter í jól (þegar „allt“ hefur
græjað sig sjálft …). Þá verða þeir alveg
alsælir og brosa svo hringinn öll jólin.
Það eru eflaust til fyrirmyndarjólamenn
sem gera og græja allt, eru sveittir allan
desember að búa til hina einu sönnu jóla-
stemningu og stjana í kringum sitt fólk.
Málið er bara að ég hef aldrei hnotið um
þannig menn. Mennirnir í kringum mig
komast flestir í jólastuð um svipað leyti og
þeir eru búnir að skola Þorláksmessusköt-
unni niður með hressandi drykkjum. Þeg-
ar þeir eru búnir að borða eru þeir til í
slaginn og þá hringja þeir í mig – ýmist til
að fá mig til að græja einhverjar jólagjafir
fyrir sig eða fá jólagjafahugmyndir. Ef ég
á að vera alveg hreinskilin þá kemst ég
alltaf í dálítið mikið jólastuð við þessi sím-
töl og fengi líklega höfnunartilfinningu ef
þau kæmu ekki.
Mínir menn eru svo vandaðir að þeir
myndu náttúrlega ekki láta sjá sig í næt-
uropnunum í stórmörkuðum eða apótek-
um að redda jólagjöfunum.
Vinkona mín hringdi akkúrat þegar
þessi pistill var í smíðum og þegar ég fór
að segja henni frá jólaanda karlpeningsins
hló hún og var alveg sammála mér. Hún
hefur heldur ekki hnotið um neinn karl
sem sér um að töfra í desember.
„Þú verður að skrifa um að konur vilja
alls ekki neitt úr Saga Boutique-
bæklingnum í jólagjöf. Þetta var agalegt
eitt árið. Við erum ennþá að hlæja að því
fjölskyldan þegar mamma átti allt úr
bæklingnum. Þetta var árið sem pabbi var
hvað mest á ferðalögum,“ sagði vinkona
mín og við hlógum báðar mjög mikið.
Enda vilja svona kerlingar eins og við bara
eitthvað ekta í jólagjöf – minna fyrir feik.
Þótt maður sé upptekinn af því að allir
sem manni þykir vænt um fái eitthvert fí-
nerí í jólagjöf þá er þetta líka tíminn til að
staldra við og meta stöðuna. Horfa yfir
farinn veg og reyna að gera örlítið betur á
næsta ári en á því liðna.
Það er þess vegna sem ég verð alltaf
svolítið væmin í desember og einn af föstu
punktunum er að fara með eitthvert fínerí
í Konukot. Konurnar sem gista í Konukoti
eiga ekkert og vantar allt sem okkur
venjulegu konunum finnst sjálfsögð
mannréttindi að eiga. Það býst líklega
enginn við því að hitta ættingja sína fyrir
utan Konukot og því brá mér töluvert þeg-
ar ég hitti frænku mína þar í fyrra. Ég
vissi að hún hafði verið í óreglu en ég átt-
aði mig ekki á því að ástandið væri orðið
svona slæmt. Sumir eru fæddir undir
lukkustjörnu og er ég viss um að frænka
mín er það því síðan við hittumst fyrir ut-
an Konukot er hún komin út af óregluveg-
inum. Það er alveg ekta – ekkert feik. Fallega innpakkaðar jólagjafir.
Jól í Konukoti
Stórir glitrandi eyrna-
lokkar eru eitthvað sem
passar vel í jólapakkann.
KLASSÍSK ÍSLENSK ÚR
FYRIR ÖLL TÆKIFÆRI
Úrsmíðameistari okkar missir aldrei einbeitinguna
JS úrin eru íslensk hönnun og framleiðsla, sett saman á úrsmíðaverkstæði Gilberts,
þar sem viðskiptavinir geta komið og hitt úrsmiðina sem setja saman úrin þeirra.
Úrvalið af JS úrum hefur aldrei verið meira og ættu flestir að geta
við sitt hæfi en úrvalið má skoða á vefsíðu www.gilbert.is eða ww
www.gilbert.is fundið íslenskt úr
w.jswatch.com.