Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.12.2013, Síða 46

Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.12.2013, Síða 46
Viðtal 46 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15.12. 2013 V atn var föður mínum mikið hjart- ans mál. Hann var kennari og fræðimaður og hafði einstakt lag á að miðla af sinni þekk- ingu. Í þessari bók fer hann með okkur út um allan heim, út í geim og niður í smæstu sameindir. Í þessari bók kristallast að jörðin er eitt stórt vistkerfi og þess vegna megum við Íslendingar ekki bara hugsa um okkur sjálf. Ef vatn er mengað einhversstaðar í heiminum, kemur það okkur öllum við. Vatn er ekki óþrjótandi auðlind.“ Þetta segir Blær Guðmundsdóttir um bók föður síns, Guðmundar Páls Ólafssonar, Vatnið í náttúru Íslands, sem kom út fyrir helgina. Um er að ræða fimmta og síðasta bindið í umfangsmikilli ritröð höfundar sem hlotið hefur mikið lof. Blær vitnar í eina söguna í bókinni máli sínu til stuðnings. Þar hermir af ættbálki við Amazon-fljót sem þarf að ferðast tvær til þrjár dagleiðir til að ná sér í drykkjarvatn. Samt býr ættbálkur þessi við fljót. Það er hins vegar svo mengað að vatnið er með öllu ónothæft. „Það er sláandi að lesa svona lag- að,“ segir hún. Í bókinni er fjallað um vatn frá ótal hlið- um. Farið er um gjörvallan heiminn til að sýna fram á grundvallarhlutverk vatns í þró- un mannkynsins og framvindu sögunnar, mótun náttúru og lífs, umhverfis og menn- ingar. Fjallað er um sambúð manns og vatns, allt frá því að menn hófu í árdaga að beisla vatnið í áveitum til að auka frjósemi landsins til þess er risastíflur síðustu áratuga tóku að gjörbreyta stórfljótum heimsins og bylta þar með öllu vistkerfi vatnasvæða þeirra. „Hér fléttast saman vísindaleg þekking og persónuleg viðhorf, heimspeki, skáldskapur, sagnfræði, goðsagnir og vitnisburðir frá ýms- um skeiðum sögunnar og dregin er fram heildstæð sýn á tengsl vatns og lífs,“ segir í kynningu útgefanda bókarinnar, Máls og menningar. Alþjóðlegt verkefni Að sögn Blævar átti vatnið alltaf að vera hluti af ritröð föður hennar. Guðmundur Páll lagði mikið á sig til að bókin yrði að veruleika. Hann vann mark- visst að henni í um áratug áður en hann féll frá á síðasta ári. Auk þess að ferðast mikið innanlands til að safna upplýsingum og myndefni fór hann í fjölmargar ferðir til út- landa, til Suður-Ameríku, Afríku og Asíu, til að kynna sér vatnsbúskap heimsins. Þannig að hér er um alþjóðlegt verkefni að ræða. Blær byrjaði að aðstoða föður sinn við um- brot á Hálendi í náttúru Íslands sem kom út árið 2000. Hin bindin í ritröðinni eru: Fuglar í náttúru Íslands (1987), Perlur í náttúru Ís- lands (1990) og Ströndin í náttúru Íslands (1995. Þau unnu einnig saman við umbrot á nýrri útgáfu Fugla í náttúru Íslands sem VATNIÐ Í NÁTTÚRU ÍSLANDS, LOKABINDIÐ Í HINNI MIKLU RITRÖÐ GUÐMUNDAR PÁLS ÓLAFSSONAR NÁTTÚRUFRÆÐINGS, RITHÖFUNDAR OG LJÓSMYNDARA, ER KOMIÐ ÚT RÚMU ÁRI EFTIR ANDLÁT HÖFUNDARINS. ÞAÐ KOM Í HLUT MARGRA AÐ BÚA VERKIÐ TIL PRENTUNAR ÞAR Á MEÐAL DÓTTUR HANS, BLÆVAR OG FRÆNDA, LEIFS RÖGNVALDSSONAR. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Frændsystkinin Blær Guðmundsdóttir og Leifur Rögnvaldsson höfðu umsjón með því að ljúka við bókina eftir að höfundurinn féll frá. Ein af fjölmörgum myndum Guðmundar Páls í bókinni, tekin við Amazon-fljótið í Suður-Ameríku. Vatn er ekki bara vatn Á þessa ágætu menn rakst Guðmundur Páll þegar hann var á ferð í Kasmír.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.