Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.12.2013, Side 48

Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.12.2013, Side 48
48 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15.12. 2013 „Pabbi hvatti okkur til verka og sagði við mig að ég ætti að vera óhrædd og djörf og Leifur átti að vera djarfur og óþekkur,“ seg- ir Blær og brosir. Hún viðurkennir að það hafi verið mikil pressa að fá slíkt stórvirki í hendurnar og vera treyst fyrir því að fylgja því eftir allt til enda. Þess utan voru miklar tilfinningar í spilinu enda var það enginn venjulegur sam- starfsmaður sem lá fyrir dauðanum heldur faðir hennar. Eitt stórt fjölskylduverkefni Blær segir aldrei annað hafa komið til greina en að virða hinstu ósk föður síns. Bókin skyldi koma út, hvað sem það kostaði. Hún segir samstarfið við Leif og Guðmund Andra hafa verið yndislegt og gengið hnökralaust fyrir sig enda gjörþekktu þau öll Guðmund Pál. Þá lögðu systur hennar báðar, Halla og Ingibjörg, sitt af mörkum við gerð bókarinnar. Halla gerði skýringarmyndir og Ingibjörg vann heimildavinnu og sá um hin ýmsu verkefni og Ingunn, kona Guðmundar Páls var stoð og stytta. „Í raun má segja að þetta hafi verið eitt stórt stórfjölskylduverk- efni,“ segir Blær. Fólk vann hvert í sínu lagi, auk þess sem smærri og stærri hópar komu reglulega saman til skrafs og ráðagerða. Umbrotið hófst í maí og átti að taka hálfan þriðja mán- uð. „Þeir urðu sjö,“ viðurkennir Blær. „Það er nefnilega meira en að segja það að kom- ast með bók af þessu tagi alla leið í mark enda þótt aðeins hafi verið nokkrir metrar eftir þegar við tókum við keflinu. Það segir margt um umfang ritraðarinnar allrar.“ Guðmundar Páls var að vonum sárt sakn- að og Blær viðurkennir að hópnum hafi á köflum fundist sig sárvanta ráðgjöf hans og leiðbeiningar. Þegar upp er staðið er hún eigi að síður ekki í minnsta vafa um að vel hafi tekist til og að faðir sinn hefði orðið stoltur af útkomunni. Ekki síst með loka- vinnsluna hjá Oddaverjum, vinum hans í Prentsmiðjunni Odda. Ást, vinátta, samvinna „Ég trúi því eiginlega ekki að þessu sé lokið. Ég er ennþá um borð í tilfinningalegum rússíbana. Ég er ofsalega stolt af því að okk- ur skuli hafa tekist að klára þessa glæsilegu bók og það eina sem skyggir á gleðina er að við getum ekki deilt henni með pabba. Áður en hann dó sagði hann við mig að ég myndi finna á mér hvort við værum á réttri leið og það gerði ég. Hann hefur örugglega haldið í höndina á okkur. Þau gömlu góðu gildi sem pabbi stóð fyrir alla tíð, ást, vinátta og sam- vinna manna á milli voru höfð að leiðarljósi við vinnslu bókarinnar og eru hennar ein- kunnarorð.“ Bókinni Vatnið í náttúru Íslands er fylgt úr hlaði með sýningu í Hörpu á ljósmyndum sem Guðmundur Páll tók meðan á vinnslu hennar stóð. Mun hún standa fram yfir ára- mót. G uðmundur Páll lét fagurfræðina alltaf skipta miklu enda ekki bara fræðimaður heldur líka ljósmyndari og myndlistarmaður. Þess vegna eru bækurnar hans svona fallegar. Þetta segir Leifur Rögnvaldsson ljósmyndari og systursonur Guðmundar Páls heitins en það kom í hans hlut að myndstýra Vatninu eftir fráfall höfundar. Leifur kom raunar að verkefninu áður en frændi hans veiktist en þeir ferðuðust saman til Laós og Kambódíu snemma árs 2010 til að afla heimilda og taka myndir í bókina. Hann segir það hafa verið ógleymanlegt að ferðast með Guðmundi. Þvílk elja og dugnaður. Guðmundur unni sér hvergi hvíldar. Vann alltaf fram í rauðamyrk- ur. Stundum ferðaðist Guðmundur Páll einn, stundum með öðrum og þá kom fyrir að hann mælti sér mót við fólk hér og þar í heiminum. Hann talaði um það strax í þessari ferð að Leifur yrði honum inn- an handar varðandi myndaval og myndvinnslu í þessari bók. Þannig að Leifur þekkti verkefnið vel þegar hann svo fól mér að fylgja því eftir. Svipuð myndsýn Guðmundur Páll og Leifur sammæltust um það meðan sá fyrrnefndi lá banaleguna að ljósmyndum yrði gert hátt undir höfði í bókinni. Leifi var ljúft og skylt að fylgja því eftir. Þeir Guðmundur unnu mik- ið saman og höfðu afskaplega svipaða myndsýn. „Segja má að við höfum hugsað eins myndrænt. Það fann ég strax,“ segir Leifur. Þess vegna treysti Guðmundur honum til að velja úr öllu því myndefni sem úr var að moða og leita eftir fleiri myndum, gerðist þess þörf. Leifur þurfti að fara í gegnum hátt í þrjú hundruð þúsund myndir áður en hann valdi myndir endanlega til birtingar. Hann hafði hjálpað Guðmundi með skipulag á stafræna myndasafninu hans en þeir voru ekki búnir að fara gegn- um það allt. Langt í frá. Síðan þurfti hann að leita að öðrum myndum sem ekki voru til í myndasafninu. Það var mikið verk að velja myndir sem komu til greina og ennþá meira verk að velja myndir til að hafa í bókinni. Guðmundur Páll hafði þann sið í öllum sínum bókum að leita til annarra ljós- myndara ættu þeir betri myndir af tilteknum hlutum. Sami háttur var hafður við að þessu sinni. Nú var líka leitað út fyrir landsteinana. Var mér mikil fyrirmynd Leifur segir þá frændur aldrei hafa orðið ósammála. Sum atriði hafi ef til vill þurft að ræða en ávallt hafi þeir komist að sameiginlegri niðurstöðu. „Guð- mundur var mér mikil fyrirmynd í leik og starfi en við áttum margt fleira sam- eiginlegt en ljósmyndunina; höfðum báðir brennandi áhuga á smíðum, mat- argerð, köfun og umhverfisvernd.“ Hann segir samstarfið við Blæ hafa gengið alveg jafn vel fyrir sig. Hún deili sýn og skilningi föður síns. Mjög ánægjulegt hafi verið að ljúka þessari vinnu í samstarfi við hana. Leifur er að vonum hæstánægður með að bókin sé komin út. Það var aldrei neinn vafi í hans huga. Klára varð þetta óhemju mikilvæga verk sem sé eins- konar samantekt á lífsfílósófíu Guðmundar og sannfæringu hans um að allt tengist í þessum heimi. Vatnið er, að sögn Leifs, forsenda lífsins og því fari fjarri að það sé einkamál okkar Íslendinga. Vatnið sé sameign alls lífs á jörð- inni – og jafnvel í alheiminum. Í þessu ljósi kemur ekki á óvart að Leifi þyki Vatnið í náttúru Íslands eiga erindi við fleiri málsvæði. Ekkert hefur verið ákveðið í þeim efnum „en það er full ástæða til að þessi bók fari sem víðast,“ segir Leifur. Sameign alls lífs á jörðinni Við Skóginn fljótandi í Ton Lesap í Kambódíu. Þar renna híbýli og bátar nánast saman. Yfirborð Mekong-fljótsins á það til að hækka um 8-10 metra. PI PA R\ TB W A • SÍ A • 1 3 2 9 5 9 HLÝTT Í VETUR MEÐ DEVOLD DEVOLD ACTIVE Stærðir S–XXL 10.990 KR. DEVOLD ACTIVE Stærðir S–XXL 11.990 KR. PI PA R\ TB W A • SÍ A • 1 3 3 4 6 3

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.