Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.12.2013, Side 57
15.12. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 57
Í bókinni Bernskudagar –
Æskuminningar Óskars í
Sunnubúðinni segir Óskar Jó-
hannsson, fyrrverandi kaup-
maður í Sunnubúðinni, frá
bernsku sinni og uppvexti á
Vestfjörðum á kreppuárunum
og í Reykjavík á heimsstyrjald-
arárunum síðari.
Óskar fæddist í Bolungarvík
árið 1928. Hann var ungur þeg-
ar hann missti föður sinn og
fór sex ára gamall að vinna fyrir
sér á sumrin í sveit hjá ókunn-
ugum. Tólf ára flutti hann að
heiman til Reykjavíkur.
Eins og lesa má af framan-
sögðu hefur Óskar mikla og
fróðlega sögu að segja af lífs-
háttum fátæks alþýðufólks fyrr
á tíð.
Fróðleg saga
um lífsbaráttu
Freyju
saga –
Múrinn eft-
ir Sif Sig-
mars-
dóttur er
fyrsta bókin
í sagnabálk-
inum Freyju
sögu sem
ætlaður er
unglingum
og gerist í harðneskjulegri veröld
þar sem þeir sem eru vægðarlausir
lifa af. Borgin Dónol er í helj-
argreipum einvaldsins Zheng og líf-
varðasveita hans. Freyja elst upp
hjá ömmu sinni og þegar hinir Ut-
anaðkomandi birtast innan borg-
armúrsins umturnast líf hennar.
Bókin hefur fengið mjög góðar við-
tökur og er tilnefnd til Íslensku
barnabókaverðlaunanna.
HARÐNESKJU-
LEGUR HEIMUR
Sigríður
Kristín
Þorgríms-
dóttir er
höfundur
bókarinnar
Alla mína
stelpu-
spilatíð.
Þar lýsir
hún því
hvernig var
að alast upp í norðlenskri sveit á
sjöunda og áttunda áratug síð-
astu aldar þar sem foreldrarnir
voru kommúnistar og móðirin,
Jakobína Sigurðardóttir,
skrifaði umdeildar bækur. Höf-
undur dregur upp mynd af ætt-
ingum sínum, sérstaklega kon-
unum, og veltir fyrir sér
hlutskipti kynjanna í fortíð og
nútíð.
HLUTSKIPTI
KYNJANNA
Lygi er nýjasta bók Yrsu Sig-
urðardóttur og vitanlega of-
arlega á metsölulista. Í Lygi
skiptist Yrsa á að segja þrjár
sögur sem virðast alls ekki
tengjast en gera það þó á
óvæntan hátt. Spennan er í fyr-
irrúmi í þessari bók Yrsu þar
sem ýmislegt óhuggulegt gerist
og margt kemur mjög á óvart.
Þetta er alveg örugglega ein af
bestu bókum Yrsu. Aðdáendur
hennar munu sannarlega kæt-
ast.
Háspenna í
nýjustu bók
Yrsu
Yrsa,
æviminningar
og matur
NÝJAR BÆKUR
LYGI EFTIR YRSU SIGURÐARDÓTTUR VERÐUR
ÖRUGGLEGA EIN AF METSÖLUBÓKUM ÁRSINS,
EN ÞAR ER YRSA UPP Á SITT BESTA. ÆVIMINN-
INGAR ERU FYRIRFERÐARMIKLAR UM ÞESSI JÓL,
ÞAR ER SANNARLEGA ÚR NÓGU AÐ VELJA OG
ÞAÐ SAMA MÁ SEGJA UM HINAR SÍVINSÆLU
MATREIÐSLUBÆKUR.
1983 er fjórða skáldsaga Eiríks
Guðmundssonar, en bókin er til-
nefnd til Íslensku bókmenntaverð-
launanna. Eiríkur er ekki ókunnur
því að vera tilnefndur til verðlauna
en skáldsaga hans Sýrópsmáninn
var tilnefnd til menningarverðlauna
DV. Bókin gerist á fyrri hluta níunda
áratugarins. Tólf ára drengur er á
hraðri ferð inn í heim hinna full-
orðnu og uppgötvar ástina.
Ástin og heimur
hinna fullorðnu
Yesmine Olsson er þjóðþekkt fyrir mat-
reiðsluþætti sína og matreiðslubækur. Í bókinni Í
tilefni dagsins sækir hún innblástur til ólíkra
heimshorna og byggir á eigin reynslu. Hún segir
sjálf að flestar uppskriftirnar séu innblásnar af
minningum um bestu réttina og bestu kökurnar
sem hún hefur borðað á ferðalögum um heiminn.
Bókin er sneisafull af girnilegum uppskriftum.
Heimur krydds
og góðra rétta
* Þegar allir hugsa eins hugsar enginnmikið. Walter Lippmann BÓKSALA 2.-8. DESEMBER
Allar bækur
Listinn er tekinn saman af Félagi íslenskra bókaútgefenda
1 Vísindabók VillaVilhelm Anton Jónsson
2 SkuggasundArnaldur Indriðason
3 Veisluréttir HagkaupsFriðrika Hjördís Geirsdóttir
4 LygiYrsa Sigurðardóttir
5 Guðni: léttur í lundGuðni Ágústsson
6 Rangstæður í ReykjavíkGunnar Helgason
7 Útkall: lífróðurÓttar Sveinsson
8 Hemmi Gunn: sonur þjóðarOrri Páll Ormarsson
9 Fiskarnir hafa enga fæturJón Kalman Stefánsson
10 TímakistanAndri Snær Magnason
Íslensk skáldverk
1 SkuggasundArnaldur Indriðason
2 LygiYrsa Sigurðardóttir
3 Fiskarnir hafa enga fæturJón Kalman Stefánsson
4 GrimmdStefán Máni
5 DísusagaVigdís Grímsdóttir
6 SæmdGuðmundur Andri Thorsson
7 MánasteinnSjón
8 Glæpurinn ástarsagaÁrni Þórarinsson
9 Stúlka með magaÞórunn Erlu- ogValdimarsdóttir
10 AndköfRagnar Jónasson
MÁLSHÁTTUR VIKUNNAR
Misjafnir sauðir
finnast í mörgu fé.
Lærlingur
djöfulsins
eftir danska
rtihöfundinn
Kenneth
Bøgh And-
ersen er af-
ar hug-
myndarík og
skemmtileg
barna- og
unglingabók.
Fyrir misskilning lendir Filip, sem
er mikill fyrirmyndardrengur, í
þeirri aðstöðu að verða lærlingur
djöfulsins. Þetta er viðburðarík
saga sem kemur oft á óvart.
Skemmtilegar spennubækur njóta
vinsælda hjá ungmennum og þessi
bók fellur vel inn í þann flokk. Bók-
in, sem er verðlaunabók, er fyrsta
bókin í bókaflokki sem notið hefur
mikilla vinsælda.
DÖNSK VERÐ-
LAUNABÓK VON - SAGA AMAL TAMIMI
www.holabok.is/holar@holabok.is
Sem ung stúlka var
Amal fangelsuð af
Ísraelsmönnum. Síðar
flúði hún heimilisofbeldi
eiginmanns síns og fór
með börnin sín 5 til
Íslands. Flóttinn var
ævintýralegur og hún
óttaðist um líf sitt.
VON - Saga Amal Tamimi
er bók sem lætur engan
ósnortinn