Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.12.2013, Page 64

Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.12.2013, Page 64
SUNNUDAGUR 15. DESEMBER 2013 Bros í hverju hjarta, bros á hverri vör Jólagjafir fjölskyldunnar eru hjá Vodafone Vodafone Góð samskipti bæta lífið Samsung Galaxy Young 19.990 kr. eða 1.890 kr á mánuði. Greiðsludreifing í 12 mánuði. Vodafone 1000 fylgir með í einn mánuð Urbanears Plattan heyrnartól 11.990 kr. Til í 8 flottum litum Samsung Galaxy S4 Mini 69.990 kr. eða 6.490 kr á mánuði. Greiðsludreifing í 12 mánuði. Vodafone 1000 fylgir með í einn mánuð H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA „Það var gaman að gera eitthvað svona með ömmustelpunni sinni. Maður finnur hvernig það styrkir tengslin, að vera ekki bara amman heldur vorum við tvær manneskjur að búa eitt- hvað til saman,“ segir Elísabet Kristín Jökulsdóttir. Rithöf- undurinn hefur skrifað barnabókina Músin sem flaug á skott- inu en Jóhanna Líf Kristjónsdóttir, sonardóttir hennar, myndskreytti bókina. Jóhanna er í Fjölbrautaskóla Suður- lands og hefur vakið athygli á Facebook fyrir fallegar mynd- ir. Rithöfundurinn segir bókina vera hennar fyrstu eiginlegu barnabók. „Bókin á rætur að rekja til ársins 2004 þegar ég fór á leikritanámskeið á Írlandi og dvaldi hjá konu í einu af- skekkasta þorpi landsins. Hún átti sex dætur sem voru hinar glæsilegustu og voru alltaf að skottast í kringum mig. Mig langaði svo að semja sögu handa einni þeirra, Claudiu, og byrjaði þar að möndla þessa sögu saman.“ Bókin hentar lesendum frá 5-7 ára og upp úr. Elísabet naut einnig dyggrar aðstoðar fimm ára ömmustelpu sem var hennar tilraunadýr og var hæstánægð með afrakstur ömmunnar. „Maður er oft svolítið kaldhæðinn í skrifum fyrir fullorðna þannig að þarna þurfti ég að setja mig í allt annan gír til að fá góðan tón. Ömmustelpan mín litla var samt að spyrja mig ýmissa spurninga, eins og hvað væri einmanaleiki. Ég ætlaði fyrst að taka slík orð út en hætti svo við og fór frekar þá leið að út- skýra þau hugtök. Bókin fjallar um einmanaleikann, músina sem á enga vini og stingur öðru hverju hausnum upp og hrópar: „Hæ vinir“. Ævintýrin fara svo að gerast þegar hún fer að fljúga á skottinu. El- ísabet gefur bókina út sjálf og að venju mun hún vera í Melabúðinni með bókina og einnig selja hana eftir pöntunum. Hægt er að hafa samband við El- ísabetu á ellastina@hotmail.com. Vinkonurnar, listamennirnir og amman og ömmustelpan, Elísabet Kristín Jökulsdóttir og Jóhanna Líf Kristjónsdóttir. Morgunblaðið/Eggert ELÍSABET KRISTÍN JÖKULSDÓTTIR MEÐ SÍNA FYRSTU BARNABÓK Amma og sonardóttir Það er ýmislegt lagt á sig fyrir jólamatinn. Hér á landi ganga menn til rjúpna í allskonar veðra- vítum en á Spáni eru til ofurhugar sem sækja hnossgæti úr sjó. Selja það svo dýrum dómum á fiskmörk- uðum. Þessir menn eru kallaðir Perce- beiros og þeir ganga meðfram hál- um klettum í sjónum til þess eins að sækja svokallaða gæsahrúður- karla á jólaborð Spánverja. Þeir byrja á því að negla sig fasta við klettana og láta sig svo síga í öldurótið þar sem allt getur gerst. Í aðfallinu vinna þeir en halda sér dauðahaldi þegar næsta alda gengur yfir. Gæsahrúðurkarlar eru eðlilega mjög dýr matur á Spáni enda ákaf- lega erfitt að sækja þá og hættu- legt. Fernando Marino er einn af of- urhugunum sem veiða við norð- vesturströnd Spánar, við bæinn Costa de la Vela. Hann hefur stundað þessar veiðar í 19 ár. Hann segir við AFP að áhættan sé mikil. „Hættan er ekki aðeins fólg- in í köldu hafinu heldur einnig í því að við þurfum oft að stökkva á hála klettana. Það eru stundum margra metra öldur og fólk hefur farist við þessa iðju.“ FURÐUR VERALDAR Hætta lífi og limum fyrir jólamat Fernando Marino berst við öldurnar. Kílóverð af gæsahrúðurkarli er 162 evrur eða 26 þúsund krónur. Síðasta ár seldust 17,5 tonn af góðmetinu. AFP ÞRÍFARAR VIKUNNAR Chad Smith trommari Red Hot Chili Peppers Ryan Giggs knattspyrnumaður Benedikt Brynleifsson trommari

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.