Morgunblaðið - 13.02.2014, Blaðsíða 28
28 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2014
Bækur
Gamlar bækur
Gamlar bækur af ýmsum toga til sölu
á netinu. Allar nánari upplýsingar á
www.bokasala.wordpress.com
Sumarhús
Sumarhús - Gestahús
- Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla -
Endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892 3742 og 483 3693,
www.tresmidjan.is
Óska eftir
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum allt gull. Kaupum silfur-
borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar-
leg viðskipti. Aðeins í verslun okk-
ar Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
Staðgreiðum gull, demanta og úr
Hringar, hálsmen, armbönd, Rolex,
Cartier, Patek Philippe o.fl.
Hringdu núna og fáðu tilboð þér að
kostnaðarlausu!
www.kaupumgull.is
Opið alla daga 11–18.
Kringlan – 3. hæð
(Hagkaupsmegin)
Upplýsingar í síma 661 7000.
KAUPI GULL!
Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða-
meistari, kaupi gull, gullpeninga og
gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt,
gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns og fáið góð ráð.
Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000
eða komið í Pósthússtræti 13 (við
Austurvöll).
Verið velkomin.
Þjónusta
Heimilistæki – Viðgerðaþjónusta
fyrir öll merki. Við sækjum, við gerum
við og við skilum.
Seljum einnig notuð tæki.
Uppl. í síma 587 5976 eða 845 5976.
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Ökukennsla
Vönduð, vel búin kennslubifreið
Subaru XV 4WD - árg. 2012.
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
bilaskoli.is
Það virðist ógerlegt að kveðja
manneskju, í blóma lífsins, sem
hefur verið stór hluti af lífi þínu
allt frá fæðingu. Inga var klett-
urinn minn, fyrirmynd og uppal-
andi og einnig mín besta vinkona.
Yndislegri og sterkari konu var
ekki hægt að finna. Við upplifðum
mörg ævintýri saman, hvers-
dagsleg og framandi, og eftir
sitja endalausar broslegar minn-
ingar um Ingu, minningar sem
koma í veg fyrir að ég muni nokk-
urn tíma gleyma henni. Það er
ómetanlegt að vera besta frænk-
an þín. Hlakka til að skála við þig
ef við hittumst aftur.
Þín
María Björk.
Ingibjörg
Ásgeirsdóttir
✝ Ingibjörg Ás-geirsdóttir
fæddist í Hafn-
arfirði 6. nóvember
1957. Hún lést á
líknardeild Land-
spítalans 3. febrúar
2014.
Útför Ingibjarg-
ar fór fram frá Nes-
kirkju 7. febrúar
2014.
Ingibjörg Ás-
geirsdóttir – Inga –
lést um aldur fram
eftir glímu við
óvæginn sjúkdóm.
Með henni er geng-
in mæt kona og
harmdauði öllum,
sem hana þekktu.
Um dauðans óvissa
tíma segir Hall-
grímur:
Innsigli engir fengu
upp á lífsstunda bið,
en þann kost undir gengu
allir að skilja við.
Síst hefði mig órað fyrir að ég
ætti eftir að standa yfir moldum
hennar, sem nú er þó orðin raun-
in á. Einhver sagði einhvern
tíma, að Inga væri valkyrja. Það
var því ekki óviðeigandi að val-
kyrjan gengi til liðs við laganna
verði, enda fór svo að Inga réðst
til lögreglunnar að loknu námi í
Lögregluskólanum. Þar starfaði
hún óslitið meðan stætt var bæði
hér á landi og erlendis á vegum
Sameinuðu þjóðanna. Í lögregl-
unni iðkaði Inga skotfimi og tók
þátt í skotkeppnum, hæfði allt er
hún skaut til, rétt eins og Gunnar
á Hlíðarenda forðum með bogan-
um.
Hún var væn kona og kurteis
og vel að sér var sagt um Unni
Marðardóttur. Það sama mætti
segja um Ingu. Hún var fríð sýn-
um, þekkileg og björt yfirlitum,
hávaxin, hnarreist og vörpuleg og
vel á sig komin. Hún var viðræðu-
góð í besta lagi, orðheppin og
fyndin, þegar sá gállinn var á
henni. Inga var vinur vina sinna.
Hún eignaðist ekki börn, en syst-
urbörn hennar voru henni einkar
kær, og lét hún þeim ekkert í mót
og voru þau mjög elsk að henni,
enda hét hún í þeirra munni bes-
tafrænka. Inga hafði mikið yndi
af tónlist, ekki síst óperum. Hún
átti enda til tónlistarmanna, tón-
skálda og skálda að telja. Langafi
hennar er höfuðskáld Færeyja.
Henni varð svosem ekki skota-
skuld úr að bregða fyrir sig fær-
eysku, ef svo bar undir. Þá var
hún nánast jafnvíg á dönsku og
íslensku. Fjöskylda hennar hafði
búið í Danmörku um sex ára
skeið. Heimili Ingu var hlýlegt og
fagurt, fallegar myndir á veggj-
um og allt innanstokks bar vott
um smekkvísi húsráðanda. Höfð-
ingi var hún heim að sækja, veitul
í mat og drykk.
Ingu er sárt saknað, ekki síst
af eftirlifandi systkinum. Þau
systkin voru með eindæmum
samrýnd og áttu margar ánægju-
stundir saman. Sjálfur á ég Ingu
mikið að þakka fyrir alla góðsemi
og þægð í minn garð. Systkinum
hennar og öðrum syrgjendum
sendi ég ríkar samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning hennar. Hvíli
hún í friði.
Eiríkur.
Kveðja frá lögreglunni á
höfuðborgarsvæðinu
Ingibjörg Ásgeirsdóttir var
farsæl í störfum sínum fyrir lög-
regluna. Hún gekk til liðs við lög-
regluna fyrir um þrjátíu árum og
starfaði lengst af í Reykjavík. Þá
var hún við friðargæslustörf á
vegum Sameinuðu þjóðanna um
tíma, bæði í Bosníu og Síerra
Leóne. Öllum sínum verkefnum
sinnti hún af alúð, áhuga og þekk-
ingu og lagði sig fram um að
sækja sér viðbótarmenntun og
fræðslu. Hún lét ekki sitt eftir
liggja í íþrótta- og félagsstörfum
innan lögreglunnar, keppti til að
mynda í skotfimi með góðum ár-
angri og sinnti trúnaðarstörfum
fyrir bæði innlend og erlend félög
lögreglumanna.
Ingibjörg tókst á við veikindi
sín af miklu æðruleysi. Þrátt fyrir
erfið veikindi óskaði hún eftir því
að fá að sinna störfum sínum
áfram og gerði það eins lengi og
hún hafði krafta til.
Fyrir hönd lögreglunnar á höf-
uðborgarsvæðinu sendi ég systk-
inum hennar, öðrum ættingjum,
vinum og samstarfsmönnum inni-
legar samúðarkveðjur.
Stefán Eiríksson,
lögreglustjóri.
Tilvera okkar er undarlegt ferðalag.
Við erum gestir og hótel okkar er
jörðin.
Einir fara og aðrir koma í dag,
því alltaf bætast nýir hópar í skörðin.
En þó eru sumir, sem láta sér lynda
það
að lifa úti’ í horni, óáreittir og spakir,
því það er svo misjafnt, sem mennirnir
leita að,
og misjafn tilgangurinn, sem fyrir þeim
vakir.
Þá verður oss ljóst, að framar ei frestur
gefst
né færi á að ráðstafa nokkru betur.
Því alls, sem lífið lánaði, dauðinn krefst
–
í líku hlutfalli og Metúsalem og Pétur.
(Tómas Guðmundsson)
Þessar ljóðlínur borgarskálds-
ins koma gjarna í hugann þá leið-
ir skilja. Leiðir okkar Ingu lágu
fyrst saman fyrir rúmum þrem
áratugum, hún var þá að hefja
störf hjá lögreglunni í Reykjavík.
Hún var gædd þeim eiginleika að
hafa þægilega nærveru og tókst
með okkur ágætur kunnings-
skapur frá fyrstu stundu. Leiðir
okkar lágu misoft saman eftir því
hvar við vorum að störfum hverju
sinni.
Árið 2001 urðum við svo sam-
starfsmenn við landamæra- og
útlendingaeftirlit að undanskild-
um sex mánuðum sem Inga starf-
aði á vegum Sameinuðu þjóðanna
í Sierra Leone, en skiptumst
reglulega á tölvupóstum þann
tíma. Samstarfið þróaðist yfir í
sterk vináttubönd bæði í leik og
starfi.
Inga lagði til fyrir 12 árum að
við kæmum okkur upp mánaðar-
legum rauðvínsútdrætti, hópur-
inn samanstæði af sex einstak-
lingum og yrði teningur látinn
ráða kasti. Hún var kosinn forseti
hópsins og hélt skrá yfir vinn-
ingshlutföll. Hún sá um að minna
á næsta útdrátt og mælti fyrir um
þema mánaðarins, gat falist í
framleiðslulandi eða þrúgum.
Hópurinn hefur tekið breyting-
um á þessum tíma og vorum við
aðeins tvö eftir af stofnhópnum.
Þó höfuðborgarsvæðið væri
okkar aðalvinnusvæði áttum við
starfstengd erindi út fyrir svæðið
bæði innanlands og utan. Kaup-
mannahöfn var í huga beggja
nafli alheimsins, bæði staðkunn-
ug og áttum við nokkur tækifæri
á að eiga þar skemmtilegan
seinnipart og voru þá heimsóttir
þekktir gamlir veitingastaðir eins
og Kanalcafeen og Hviids
Vinstue. Inga var traustur og
góður vinnufélagi og skemmtileg-
ur ferðafélagi. Hennar er sárt
saknað.
Í desembermánuði 2012
greindist hjá Ingu sá sjúkdómur
sem nú hefur lagt hana að velli.
Hún tók tíðindunum með æðru-
leysi, lét okkur ekki vita af því
fyrr en í janúar því hún vildi ekki
eyðileggja fyrir okkur jólahátíð-
ina. Sú hugsun lýsir líklega best
eiginleikum hennar. Hún bar
ekki veikindin á torg og margir
vissu ekki af þeim fyrr en eftir
andlát hennar. Hún sagðist alltaf
hafa það gott ef maður spurði
hvernig heilsan væri. Hún lagðist
ekki í veikindafrí heldur var að
störfum allt til nýliðinna áramóta.
Ég þekki ekki hvað við tekur
þá jarðvist lýkur en óska drottn-
ingunni okkar góðrar heimkomu í
nýju umhverfi. Ég er þakklátur
þeim forréttindum að hafa átt
slíkan samferðamann og vin til
margra ára og sendi ættingjum
og vinum hugheilar samúðar-
kveðjur, minning Ingu mun lifa
með okkur.
Jónas Magnússon
rannsóknarlögreglumaður.
Minning þín er mér ei gleymd;
mína sál þú gladdir;
innst í hjarta hún er geymd,
þú heilsaðir mér og kvaddir.
(Káinn)
Hún Inga kom á æskuheimili
okkar með bekkjarsystur sinni
sem var hún Auður systir og það
sem þær brölluðu og töluðu og
möluðu var alveg dásamlegt. Það
voru ófáar stundirnar sem þær
áttu í æsku, í og utan skóla, og ég
svona á kantinum þegar þær voru
heima.
Einnig voru þær löngum
stundum heima hjá Ingu og þess
á milli í símanum. Þetta var vin-
átta sem ég og fleiri sáum að var
einstaklega fölskvalaus og ein-
læg.
Þegar Inga fór að læra á bíl
var ekkert sjálfsagðara en að hún
fengi æfingatíma á Voffana sem
voru í bílaleigurekstri á heimili
okkar og mikið var hún þakklát
fyrir það.
Hún kunni að njóta lífsins og
ferðaðist mikið, sótti alls kyns
menningarviðburði og var dugleg
að hitta vinina. Fjölskylda henn-
ar og hún héldu vel saman og
voru okkur einstaklega kær og
héldu tryggð í gegn um súrt og
sætt og það hefur verið ómetan-
legt að eiga þau að.
Halldóra, Jón, Emily, Ásgeir,
María Björk og aðrir aðstand-
endur, við Eggert og fjölskylda
samhryggjumst ykkur.
Hörpu þinnar ljúfa lag
lengi finn í muna.
Því ég minnist þín í dag,
þökk fyrir kynninguna.
(Á.K.)
Kristín Björnsdóttir.
✝ Hannes Hún-fjörð Pálmason
fæddist á Akureyri
31. desember 1929.
Hann lést á Sól-
vangi í Hafnarfirði
30. janúar 2014.
Hann var sonur
hjónanna Svein-
bjargar Björns-
dóttur, f. 1909, d.
1973, og Pálma
Jónssonar. f. 1901,
d. 1971. Bróðir Hannesar er Sig-
urður, f. 12. september 1943.
Maki hans er Ragna Árnadóttir.
Hannes kvæntist árið 1958
Ágústu Þorbergsdóttur, f. 21.
júlí 1936. Foreldrar Ágústu voru
Soffía Gunnlaugsdóttir, f. 1903,
d. 1986, og Þorbergur Arn-
grímsson, f. 1893, d. 1971. Hann-
es og Ágústa eignuðust fjögur
börn. Þau eru: 1) Pálmi, f. 10.
febrúar 1954, maki Sigríður Sig-
urhansdóttir. Pálmi á fjögur
börn og Sigríður eitt barn. 2)
Trausti, f. 15. júlí
1958, maki Anna
Björg Gunn-
arsdóttir. Þau eiga
fjögur börn. 3)
Haukur, f. 7. októ-
ber 1960, maki Liz-
beth Ruiz Boca-
negra. Haukur á
fjögur börn. 4) Elfa,
f. 14. nóvember
1971, maki Jóhann
Konráð Birgisson.
Elfa á tvö börn og Jóhann tvö
börn.
Hannes hlaut
múrarameistararéttindi árið
1954. Hannes og Ágústa bjuggu
á Akureyri fram til ársins 1999
en þá fluttu þau til Reykjavíkur
og þaðan til Hafnarfjarðar þar
sem þau hafa verið búsett sl. ár.
Hannes og Ágústa eiga níu
barnabarnabörn.
Útför Hannesar fór fram frá
Hafnarfjarðarkirkju 7. febrúar
2014, í kyrrþey að ósk hins látna.
Takk fyrir allt elsku pabbi
Englar Guðs þér yfir vaki og verndi
pabbi minn
vegir okkar skiljast núna, við sjáumst
ekki um sinn.
En minning þín hún lifir í hjörtum okkar
hér
því hamingjuna áttum við með þér.
Þökkum kærleika og elsku, þökkum
virðingu og trú
þökkum allt sem af þér gafstu, okkar
ástir áttir þú.
Því viðmót þitt svo glaðlegt var og góð-
leg var þín lund
og gaman var að koma á þinn fund.
Með englum Guðs nú leikur þú og lítur
okkar til
nú laus úr viðjum þjáninga, að fara það
ég skil.
Og þegar geislar sólar um gluggann
skín inn
þá gleður okkur minning þín, elsku
pabbi minn.
Vertu góðum Guði falinn er hverfur þú
á braut
gleði og gæfa okkar fylgdi með þig sem
förunaut.
Og ferðirnar sem fórum við um landið
út og inn
er fjársjóðurinn okkar pabbi minn.
(Denver/Guðrún Sigurbjörnsdóttir.)
Þín dóttir.
Elfa
Hannesdóttir
Það er erfitt að lýsa því með
orðum, elsku afi minn, hversu
mikið mér þykir vænt um þig.
Hvað annað er hægt? Þú varst
einn sá allrabesti. Afi gamli sem
ævinlega hafði eitthvað fyrir
stafni og hafði alltaf tíma til að
leyfa lítilli afastelpu að hjálpa til.
Það eru forréttindi að kynnast
fólki eins og þér og ömmu,
hjartahlýjan og alúðin endur-
speglast í öllum ykkar gjörðum
og hjá ykkur átti maður alltaf
öruggt skjól.
Ég á þér margt að þakka, við
áttum margar skemmtilegar
stundir saman og þær mun ég
geyma í hjarta mér um ókomna
tíð. Oftar en ekki kom ég í heim-
sókn í Ægisgötuna á sunnudög-
um og átti þar góðar stundir með
ykkur ömmu. Ævinlega var ég
svo send heim með nesti í poka og
oft fylgdu ilmandi rósir úr gróð-
urhúsinu með, það þótti mér afar
vænt um og enn í dag hugsa ég til
þess tíma þegar ég skreyti heim-
ili mitt með rósum.
Ég minnist þín og gömlu tím-
anna í Ægisgötunni með gleði í
hjarta um leið og ég kveð þig með
söknuði.
Undir háu hamrabelti
höfði drúpir lítil rós.
Þráir lífsins vængja víddir
vorsins yl og sólarljós.
Ég held ég skynji hug þinn allan
hjartasláttinn rósin mín.
Er kristallstærir daggardropar
drúpa milt á blöðin þín.
Æsku minnar leiðir lágu
lengi vel um þennan stað,
krjúpa niður kyssa blómið
hversu dýrðlegt fannst mér það.
Finna hjá þér ást og unað
yndislega rósin mín.
Eitt er það sem aldrei gleymist,
aldrei, það er minning þín.
(Guðmundur G. Halldórsson)
Berglind.
Elsku afi minn.
Ég myndi óska þess að það
væri draumur að þú sért farinn
en svona er lífið. Þó ég trúi ekki
að þú sért farinn og að ég sé að
skrifa minningargrein þá vona ég
að þú sért kominn í draumaland-
ið. Ég vona að þú sért að veiða
með afa Bigga. Þú skildir svo
margar minningar með okkar
eins og þegar við vorum að spila
Tomma og jenna spilið eða þegar
við vorum í búðarleiknum um
Ikea og svo margt margt fleira.
En eitt veit ég og það er að þú
myndir vilja að við munum bara
halda áfram og lifa lífinu. En
elsku afi minn þegar þú fórst
tókstu bút úr hjarta mínu með
þér. Ég vona að þú sért svo ham-
ingjusamur að þú sért farinn úr
þessum heimi sem hugur þinn
var í. Elsku afi ég man svo svo
mikið eftir öllum okkar minning-
um og mun aldrei gleyma öllu
sem þú kenndir mér og fræddir
mig um. Ég fékk að eiga teppið
þitt og ég sef með það á hverri
nóttu. Þar fæ ég eitthvað öryggi
eins og þú sért hjá mér og vakir
yfir okkur. Elska þig alltof mikið
og mun aldrei gleyma öllum þess-
um minningum. Ég þarf að segja
að mér finnst það óraunverulegt
að þú sért farinn, ég bara trúi því
ekki.
Elsku afi
Nú ertu farinn,
já farinn frá mér.
Þú sem varst mér eins og faðir.
En nú er lífsklukkan
þín farin á brott.
En þó veit ég að þú
vekur yfir okkur dag sem nótt.
Þú skildir alla eftir
með tár í augum sínum,
já svona mikið og
miklu miklu meira elskuðum við þig.
Þín elskulega.
Katla Steindórsdóttir.
Hannes Pálmason
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Neðst á forsíðu mbl.is má finna
upplýsingar um innsendingarmáta og skilafrest. Einnig má smella á
Morgunblaðslógóið efst í hægra horninu og velja viðeigandi lið.
Skilafrestur | Sé óskað eftir birtingu á útfarardegi þarf greinin að
hafa borist á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför
er á mánudegi eða þriðjudegi).
Minningargreinar