Morgunblaðið - 29.03.2014, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 29.03.2014, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MARS 2014 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. FLUGFARÞEGAR FÁ VSK AFÖLLUMGLERAUGUM SÍMI 527 1515 GÖNGUGÖTU Mínútu- og SMS-fjöldi skiptir ekki lengur máli Guðni Einarsson Hólmfríður Gísladóttir Síminn og Vodafone bjóða frá og með deginum í dag þrjár nýjar áskriftarleiðir fyrir snjallsíma. Not- endur greiða einungis fyrir gagna- magn, það er netnotkun – niðurhal og upphal – en ekki símtöl og SMS innanlands. Ekki skiptir máli hvort hringt er í síma hjá Símanum, Voda- fone, Nova eða Tali hér innanlands. Símtölin og SMS-in eru innifalin í nýju áskriftarleiðunum. Áskriftarleiðirnar hjá Símanum miðast við 500 MB á mánuði sem kosta 5.990 krónur, 1 GB sem kostar 6.990 krónur og 3 GB sem kosta 8.990 krónur. Þessar nýju áskriftar- leiðir koma til viðbótar þjónustuleið- um sem Síminn býður nú þegar fyrir farsímanotendur. Eldri þjónustuleiðir Vodafone munu sömuleiðis standa farsímanot- endum áfram til boða en nýjar áskriftarleiðir fyrirtækisins, sem bera nafnið Vodafone RED, eru 500 MB gagnamagn sem kostar 5.990 krónur, 2,5 GB sem kosta 8.990 krón- ur og 5 GB sem kosta 10.990 krónur. Bæði fyrirtækin munu bjóða upp á sérstaka pakka fyrir fjölskylduna. Framtíðin í gagnaflutningum „Með tilkomu snjallsímanna hefur farsímanotkun almennings breyst mikið á fáeinum árum. Fjölbreyttir notkunarmöguleikar snjallsímanna hafa orðið til þess að gagnamagns- notkun í farsímakerfinu hefur aukist gríðarlega og samhliða hefur þörfin fyrir hindrunarlausan aðgang að int- ernetinu hvar og hvenær sem er aukist til muna. Því hefur um nokk- urt skeið blasað við að farsímaþjón- usta framtíðarinnar muni fyrst og fremst snúast um gagnaflutninga. Sá tími er ekki kominn, en með þjón- ustuleiðinni Vodafone RED stígur Vodafone stórt skref í að auðvelda viðskiptavinum umskiptin sem eru framundan og tryggir í leiðinni gagnsæi og fyrirsjáanlegan kostn- að,“ segir í tilkynningu frá Voda- fone. Ekki náðist í forstjóra fyrir- tækisins í gærkvöldi.  Síminn og Vodafone kynna nýjar þjónustuleiðir Verkefnisstjórn þriðja áfanga rammaáætlunar um vernd og orku- nýtingu landsvæða hefur skilað um- hverfis- og auðlindaráðherra endan- legri tillögu um virkjunarkosti í neðri hluta Þjórsár. Er hún sam- hljóða fyrri tillögu í desember sl. Lagt er til að Hvammsvirkjun verði færð úr biðflokki í orkunýtingar- flokk en Holtavirkjun og Urriðafoss- virkjun eru áfram í biðflokki. Eftir samráð umhverfisráðherra og iðnaðar- og viðskiptaráðherra var tillagan lögð óbreytt fyrir ríkisstjórn í gær sem samþykkti að leggja hana óbreytta fram á Alþingi. Var það einnig samþykkt í þingflokkum beggja stjórnarflokkanna síðdegis í gær. Verkefnisstjórn lagði tillöguna um flokkun virkjunarkosta fram að af- loknu 12 vikna umsagnarferli og bár- ust 33 athugasemdir sem skiptast í tvö horn. Landsvirkjun, Samtök at- vinnulífsins og Samtök iðnaðarins o.fl. eru sammála flutningi á Hvammsvirkjun í nýtingarflokk, en telja að það sama eigi að gilda um all- ar virkjanirnar þrjár. Landvernd og fleiri halda því hins vegar fram að flokkun Hvammsvirkjunar í nýting- arflokk sé ekki byggð á sterkum efn- islegum rökum. Í greinargerð verkefnisstjórnar er m.a. vísað til þess mats faghóps að óvissa varðandi áhrif Hvammsvirkj- unar á laxfiska hefði minnkað nægj- anlega til að réttlætanlegt væri að færa virkjunina í nýtingarflokk. Í niðurstöðum segir „að í framkomn- um athugasemdum sé að finna ýms- ar gagnlegar ábendingar. Þær hafa þó nær allar komið fram fyrr í ferl- inu. Verkefnisstjórn telur ekki að þessar athugasemdir kalli á endur- skoðun á fyrri afgreiðslu verkefnis- stjórnarinnar“. Geta kallað á endurskoðun Fulltrúi atvinnuvega- og nýsköp- unarráðuneytis í verkefnisstjórn gerði fyrirvara við tillöguna þar sem ný gögn hafi komið fram í umsögn Landsvirkjunar um Urriðafossvirkj- un og Holtavirkjun. Segir í niður- stöðunni að skoða þurfi þau betur, sem geti kallað á endurskoðun á fyrri afgreiðslu verkefnisstjórnar varðandi flokkun virkjunarkostanna. omfr@mbl.is Óbreytt virkjanatillaga  Hvammsvirkjun í nýtingarflokk en tvær virkjanir í biðflokki  Samþykkt í ríkisstjórn að leggja tillöguna fram óbreytta Eggert feldskeri og tískuhönnuðurinn Helga Björnsson kynntu nýja línu úr íslensku lambsskinni í gömlu spennistöðinni við Austurbæjarskóla í gær- kvöldi. Línan sem um ræðir nefnist Deimatic. Frumsýning í spennistöðinni við Austurbæjarskóla Morgunblaðið/Árni Sæberg Fatalína úr lambsskinni Guðni Einarsson gudni@mbl.is Landsvirkjun ætlar að skerða afhendingu um- framraforku til Alcoa-Fjarðaáls meira en áður var boðað. Áætlað er að þetta þýði aukið fram- leiðslutap upp á 3-4 þúsund tonn. Það kemur til viðbótar 6-7 þúsund tonna framleiðslutapi vegna áður boðaðrar raforkuskerðingar. Fram- leiðsla álversins verður því 9-11 þúsund tonnum minni en ella vegna þess að ekki fæst nóg raf- magn frá Landsvirkjun, að sögn Magnúsar Þórs Ásmundssonar, forstjóra Alcoa á Íslandi. Til- kynnt var um viðbótarskerðinguna í fyrradag. Auk þess var boðað að skerðingin varaði lengur en áður var sagt eða út maí í stað þess að vara út apríl. Magnús Þór sagði að þetta þýddi að áhrif- anna á rekstur álversins gætti alveg út júní. „Við höfðum komist að samkomulagi um hvernig við myndum fara í skerðinguna sem bú- ið var að boða. Nú er búið að breyta því plani,“ sagði Magnús Þór. „Frá 1. apríl erum við skert niður í 519 MW alla daga.“ Hann sagði þetta vera slæm tíðindi. Alcoa- Fjarðaál myndi bregðast við með því að lækka straum í kerskálunum og hægja þannig á fram- leiðslunni. Önnur viðbrögð hafa ekki verið ákveðin að svo stöddu. Magnús Þór sagði að- spurður að ekki hefðu verið teknar neinar ákvarðanir um fækkun starfsfólks. Unnið að mati á skerðingum Einar Mathiesen, framkvæmdastjóri orku- sviðs Landsvirkjunar, sagði að unnið væri að mati á frekari skerðingum eins og fram hefði komið í yfirlýsingum frá fyrirtækinu á undan- förnum dögum og vikum. „Í þeirri stöðu sem nú er uppi í vatnsbúskap fyrirtækisins er það sameiginlegt hagsmunamál allra að tryggja öruggan rekstur raforkukerf- isins til vors,“ sagði Einar. „Við höfum tilkynnt okkar helstu viðskiptavinum að við þurfum mögulega að draga enn frekar úr raforku- vinnslu vegna slakrar stöðu í vatnsbúskapnum til viðbótar því sem við höfðum áður tilkynnt. Við nýtum okkur heimildir í raforkusamningum og óskum eftir að þeir dragi áfram úr raforku- notkuninni.“ Aðgerðir Landsvirkjunar miðast við að inn- rennsli verði samkvæmt lægstu spám, þrátt fyr- ir að margt bendi til þess að ástandið geti breyst. Hert á skerðingu raforku til stóriðju  Framleiðslutap Alcoa-Fjarðaáls 9-11 þúsund tonn í stað 6-7 þúsund tonna sem áður voru áætluð „Þessar áskriftarleiðir boða nýja tíma í fjar- skiptaheiminum. Hefðbundnar vörur eins og mínútur í símtölum og SMS hætta að telja hér innanlands,“ segir Orri Hauksson, forstjóri Símans. „Maður velur sér stærð gagnapakka og borgar fyrir hann fast gjald. Svo sendir þú eins mikið af SMS-um og þú get- ur og talar eins og þú vilt. Við teljum að þróunin sé í þessa átt. Hefðbundnar einingar í fjarskiptum muni hverfa sem mælikvarðar á kostnað. Í staðinn muni fólk velja sér ákveðna pakka sem innifela þetta allt og borga fyrir það fyrirsjáanlegt gjald.“ Orri segir að lúkningargjöld milli kerfa fjarskiptafyrirtækjanna hafi verið að lækka, þau hafa verið misjöfn á milli kerfa. Því komi einhver breytilegur kostnaður hjá Símanum vegna hringinga viðskiptavina í númer hjá öðrum fyrirtækjum en viðskiptavinirnir eiga ekki að finna fyr- ir því. Orri segir að fari viðskiptavinir yfir hámark gagnapakkans verði þeim gert viðvart. Greiða þarf sérstaklega fyrir umframgagnamagn. NÝIR TÍMAR Í FJARSKIPTAHEIMINUM Orri Hauksson Hefðbundnar einingar hverfa sem mælikvarði á kostnað Morgunblaðið/Ernir Nýjung Farsímanotkun verður í framtíðinni mæld í MB og GB.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.