Morgunblaðið - 29.03.2014, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 29.03.2014, Blaðsíða 38
38 UMRÆÐANBréf til blaðsins MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MARS 2014 Til sölu ef viðunandi tilboð fæst í allar fasteignir Laugarbakkaskóla í Miðfirði Húnaþingi vestra. Nánar tiltekið er um að ræða skólahús með kennslustofum, heimavist, mötuneyti, íþróttarhúsi og íbúðum auk þess einbýlishús og parhús á leigulóð sveitarfélagsins. Heildarflatarmál fasteignanna er tæpir 4000 fermetrar. Heitt vatn frá Hitaveitu Húnaþings vestra. Áhugaverðar eignir. Síðastliðin ár hefur húsnæðið verið nýtt sem sumarhótel. Laugarbakki er miðja vegu milli Reykjavíkur og Akureyrar og fasteignirnar eru um 2 km. frá Þjóðvegi 1. Tilboðsgjafar þurfa að skila greinargerð um fyrirhugaða starfsemi í húseignum skólans. Seljendur áskilja sér rétt að taka hvaða tilboði sem er og eða að hafna öllum. Tilboðum og greinargerðum skal skila til undirritaðs fyrir 22. apríl 2014. Nánari upplýsingar veitir Magnús Leópoldsson magnus@fasteignamistodin.is og á skrifstofu Fasteignarmiðstöðvarinnar sími 550-3000/ 892-6000 sjá einnig www.fasteignamidstodin.is. Húnaþing vestra er í Vestur Húnavatnssýslu og er því miðja vegu milli Reykjavíkur og Akureyrar eða í u.þ.b. tveggja klst. akstursfjarlægð frá þeim stöðum. Íbúar í Húnaþingi vestra eru um 1170. Í Húnaþingi vestra er til staðar öll almenn opinber þjónusta auk annarrar fjölbreyttrar þjónustu. Möguleikar til útivistar, íþrótta, afþreyingar og félagsstarfa eru fjölmargir og því er Húnaþing vestra góður kostur fyrir uppbyggingu fjölbreyttrar atvinnustarfsemi og fjárfestingar. LAUGARBAKKASKÓLI EYJAR II - KJÓSARHREPPI Til sölu jörðin Eyjar II í Kjósarhreppi.Hér er um að ræða töluvert landmikla jörð í næsta nágrenni Reykjavíkur. Töluverður húsakostur (ekki íbúðarhús) Á jörðinni var aðallega rekið kúa og fjárbú. Jörðin er aðili að vatnasvæði Laxár, Meðalfellsvatns og Sandsár. Nánari upplýsingar á skrifstofu Fasteignamiðstöðvarinnar. INGILEIFUR EINARSSON, löggiltur fasteignasali Jón Þór Ingimundarson, löggiltur fasteignasali MARÍA ÞÓRARINSDÓTTIR, SÖLUMAÐUR Sími 568 2444 • www.asbyrgi.is ÁRSKÓGAR 8 OPIÐ HÚS Í DAG MILLI 14.00-16.00 BJALLA 8134 Mjög falleg og rúmgóð 2ja herbergja íbúð 76,1m² á 13. hæð (efstu), fyrir eldri borgara 60 ára og eldri í þessu eftirsótta húsi. Þjónustumiðstöð og félagsstarf er í húsinu. Í stofu og eldhúsi er mikil lofthæð. Glæsilegt útsýni Íbúðin er laus til afhending- ar. Verð kr. 29,9 millj Lokið er talningu atkvæða í Alþing- iskosningum í apríl 2013. Hátt á ann- að hundrað þúsund sóttu kjörfund. 120.000 greiddu atkvæði flokkum, sem vilja, að Ísland sé ekki í Evrópu- sambandinu. Tala þeirra, sem greiddu eina flokknum, sem vildi Ís- land í Evrópusambandið, var einn fimmti þeirrar tölu, 24.000. Flokk- arnir, sem mynduðu svo ríkisstjórn, voru í kosningunum einhuga í mál- inu. Stjórn þeirra þurfti því ekki að gera neina málamiðlun um það efni. Þeir, sem urðu undir, halda fram sínu máli, eins og þeim er rétt. Hér verður drepið á rök, sem heyrast þessar vikurnar.  Við viljum í Evrópusambandið, af því að sérhagsmunir mega ekki ganga fyrir þjóðarhag (átt er við landbúnað og sjávarútveg). Þetta kom vitaskuld fram fyrir kosningarnar og var þá rætt fram og til baka, meðal annars á flokksþingi/ landsfundi núverandi stjórnar- flokka. 120.000 kusu flokka, sem ekki vildu í Evrópusambandið. Eftir því er mikið fylgi við sérhagsmuni. Hitt mundi vera sanni nær, að menn líta ekki svo á, að innlent vald til að skapa landbúnaði og sjávarútvegi stöðu, sé í þágu sérhagsmuna.  Við viljum ekki einangra Ísland. Þessu var gjarna haldið fram til að mæla með Evrópusambandsaðild. Það var vitaskuld mikið rætt. 120.000 kusu samt flokka gegn aðild, en 24.000 aðildarflokkinn. Það er út í hött, að fylgi 120.000 kjósenda hafi verið yfirlýs- ing um fylgi við einangrun.  Við viljum vöxt atvinnu- greina fyrir há- menntað fólk. Þetta var vita- skuld rætt í fyrra. Engar heimildir eru fyrir því, að 120.000 kjósendur hafi lýst andstöðu við vöxt atvinnu- greina, sem borga vel, með því að greiða flokkunum fjórum atkvæði sitt. Þrálátir fundir fyrir utan Alþing- ishúsið undanfarið eru kynntir í fréttum eins og þeir séu merkilegir. Þá fundi sækir ekki nema brot að til- tölu við þá, sem sóttu kjörfund. Það hlutfall kynni að vera álíka lágt og kjörsókn var fyrstu áratugina eftir endurreisn Alþingis í hlutfalli við íbúatöou. Þá var kjörfundur opinn, eins og fundirnir á Austurvelli. Einn fundur var í hverri sýslu. Efling lýð- ræðis og þingræðið er í því fólgið, að almenningi er gert kleift hvar sem er að tjá sig og með leynd. Ýmsir láta eins og fréttir af fundum nokkurra hundraða eða þúsunda á Austurvelli eigi með endurtekningu að vega upp á móti undirtektum 120.000 kjós- enda við flokkana fjóra, sem vilja ekki Evrópusambandsaðild. BJÖRN S. STEFÁNSSON, dr. scient. Talningu atkvæða lokið Frá Birni S. Stefánssyni Björn S. Stefánsson Í sunnudags Morgunblaðinu 16. þ.m. fjallar Viðar Þorkelsson, forstjóri Valitor, um rafræn viðskipti, einkum greiðslumiðlun með kortum eða snjallsímum. Ég vil spyrja hvort það sé ekki grundvall- arforsenda í slík- um viðskiptum að farið sé að lögum? Ég vil taka það skýrt fram að ég hef ekkert á móti rafrænum við- skiptum eða tækni, þegar forsendur eru í sam- ræmi við eðlilega og heiðarlega við- skiptahætti. Lögin og eðlilegir viðskiptahættir Í lögum um Seðlabanka Íslands kem- ur skýrt fram að í þessu landi er pen- ingahagkerfi og peningarnir skulu vera með fullu ákvæðisverði. Engin sjálfstæð lög eru til um kortin á hlið- stæðan hátt og gildir um lögeyrinn, ávísanir (tékkalög) eða víxla (víxla- lög). Kortin skera sig algerlega úr í þessu samhengi. Kortin hafa umtals- verðan kostnað í för með sér fyrir kaupmenn sem taka við slíkum greiðslum. Til að standa straum af þeim kostnaði, eru þeir í flestum til- fellum tilneyddir að hækka hjá sér vöruverð. Þegar komið er á korta- verðlag hjá þessum kaupmönnum, fá þeir viðskiptamenn þeirra sem nota peninga (lögeyri) ekki fullt verð fyrir peningana sína. Einnig má geta þess að þegar vöruverð þarf að hækka vegna kortanotkunar hækka greiðslur í ríkissjóð vegna virð- isaukaskattsins. Er það ástæðan fyrir því að stjórnvöld leyfa þessa óeðlilegu og óheiðarlegu viðskiptahætti? Fullyrðing Viðars um að korta- notkun auki veltu kaupmanna um 5- 10% er fáránleg. Ráðstöfunarfé heim- ilanna er takmörkuð stærð. Ef við gerum ráð fyrir að sú stærð sé t.d. 200 milljarðar og kostnaður vegna kortanotkunar sé 10%, sem er vægt reiknað hjá mörgum kaupmönnum, þá minnkar raunveltan í reynd um 20 milljarða en eykst ekki. Mismunurinn fer í tilgangslausa milliliði ásamt ýmsum snjóboltaáhrifum, sem stafa m.a. af virðisaukaskatti, leigu á pos- um, vaxtakostnaði áhættu o.fl. Það má halda því fram að kortin séu tæknivæddur þjófnaður í núverandi formi. Hver skyldi vera ástæðan fyrir því að bankar og kortafyrirtæki rukka ekki sína eigin viðskiptamenn (korthafa) um allan þann kostnað, sem þessum viðskiptum fylgir? Annar möguleiki er reyndar í stöð- unni, sem er þó mun kostnaðarsam- ari, en hann er sá að afnema regluna um „að notandinn borgar ekki“ og gera kaupmönnum frjálst að inn- heimta kostnað vegna kortaviðskipta á eðlilegum viðskiptaforsendum. Ekki gengur að svipta kaupmenn frelsi og hafa þá í þrælabúðum mið- stýrðs einokunarkerfis. Íslendingar eru tæknisinnaðir, en hver vill ekki hagstæðara vöruverð og losna undan ægivaldi kerfisins. Við þurfum ekki að ganga í ESB til að ná fram lækkun vöruverðs. Einungis þarf að taka til í hagstjórn þessa lands og frelsa þjóð- ina undan óstjórn og vitleysu. SIGURÐUR LÁRUSSON, kaupmaður. Rafræn kortaviðskipti Eftir Sigurð Lárusson Sigurður Lárusson Skjöldur er forvarnafélag hjúkr- unarfræðinema við hjúkr- unarfræðideild Háskóla Íslands sem stofnað var að frumkvæði fjögurra nemenda árið 2008 og tók formlega til starfa vorið 2009. Fé- lagið fagnar því 5 ára afmæli sínu um þessar mundir. Félagar koma úr röðum nemenda af öðru, þriðja og fjórða ári hjúkrunarfræðideild- ar Háskóla Íslands. Nemendur halda utan um starfið og marka stefnu félagsins, undir handleiðslu kennara hjúkrunarfræðideildar Háskóla Íslands, sem í ár eru dr. Sóley S. Bender og dr. Sigrún Gunnarsdóttir. Markmið Skjaldar er að efla sjálfsmynd ungs fólks með fræðslu og umræðu. Á hverju hausti fara hjúkrunarfræðinemar og kennarar þeirra í vinnuferð þar sem þeir móta fræðsluefni hvers vetrar. Þar undirbúa nemendur fræðslu fyrir ungt fólk um gildi góðrar sjálfsmyndar. Félagar í Skildi fara síðan í heimsóknir til nemenda í framhaldsskólum og leiða þar fræðslu og umræður í hópum um sjálfsmynd. Á þessu starfsári höf- um við meðal annars farið í Mennaskólann við Hamrahlíð, Menntaskólann í Reykjavík og Kvennaskólann og hefur fræðslan náð til um 700 nemenda. Sjálfsmynd getur haft áhrif á ákvarðanatöku hvers og eins og hefur forvarnargildi fyrir ungt fólk. Einstaklingar á þessu aldurs- skeiði standa frammi fyrir stórum ákvörðunum sem hafa áhrif á lík- amlegt og andlegt heilbrigði þeirra. Við í Skildi teljum nauð- synlegt að ungt fólk sé meðvitað um mikilvægi þess að efla sjálfs- mynd sína og hvaða áhrif hún get- ur haft á líf hvers og eins. Fræðsl- an er lífleg þar sem unnið er að ýmsum verkefnum í hópum sem vakið geta nemendur til umhugs- unar um sjálfa sig og kosti sína, auk mikilvægis þess að hafa trú á markmiðum sínum. Nemendur hafa tjáð sig um gagnsemi fræðsl- unnar og til dæmis nefnt að fræðslan sé gagnleg og gott sé að fá þessa fræðslu á þessum tíma- punkti í lífinu. En afhverju er sterk sjálfsmynd svo mikilvæg? Rannsóknir hafa sýnt að unglingar með góða sjálf- mynd eru líklegri til þess að:  Vera í nánum samskiptum við aðra.  Eiga auðveldara með að að- laga sig nýjum aðstæðum.  Vera hamingjusamari.  Líða betur andlega.  Ganga betur í skóla.  Vera almennt sáttari við líf sitt og aðstæður. Félagið er í sífelldum vexti og stefnt er að því að allt ungt fólk fái að njóta góðs af starfsemi Skjaldar. Nýlega hefur félagið sett á laggirnar nýja og öfluga heimasíðu þar sem fræðsluefni verður aðgengilegt þeim sem hafa áhuga. Von okkar er að fræðsla Skjaldar sé eitt lóð á vogar- skálarnar til að efla ungt fólk, með jákvæðni í brjósti og trú á sjálfan sig. Þar með verður ungt fólk öfl- ugra og virkara í samfélaginu. Fyrir hönd Skjaldar 2013-2014. SIGRÍÐUR ÖSP SUMARLIÐADÓTTIR, SOFFÍA HLYNSDÓTTIR OG SUNNEVA TÓMASDÓTTIR. Góð sjálfsmynd er ungu fólki mikilvæg Frá Sigríði Ösp Sumarliðadóttur, Soffíu Hlynsdóttur og Sunnevu Tómasdóttur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.