Morgunblaðið - 29.03.2014, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 29.03.2014, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MARS 2014 María Margrét Jóhannsdóttir mariamargret@mbl.is Á fundi umhverfis- og skipulags- ráðs Reykjavíkur í vikunni var að nýju lögð fram tillaga að nýju deiliskipulagi Reykjavíkurflugvall- ar og var hún samþykkt með 6 at- kvæðum fulltrúa Besta flokksins, Páls Hjaltasonar, Elsu Hrafnhild- ar Yeoman og Karls Sigurðssonar; fulltrúa Samfylkingarinnar, Hjálmars Sveinssonar og Kristín- ar Soffíu Jónsdóttur; sem og full- trúa Vinstri hreyfingarinnar Græns framboðs, Sóleyjar Tóm- asdóttur. Tillagan fer næst fyrir borgarráð. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins Júlíus Vífill Ingvarsson, Hildur Sverrisdóttir og Marta Guðjóns- dóttir greiddu atkvæði gegn tillög- unni og sögðu að þverpólitísk sátt ríkti um nefnd sem hefði til með- ferðar framtíðarstaðsetningu inn- anlandsflugvallar og að hún væri enn að störfum. Segja nefnd enn að störfum „Formaður nefndarinnar hefur óskað eftir svigrúmi til að klára þá vinnu áður en pólitísk afskipti séu höfð af svæðinu þar sem flugvöll- urinn er nú. Því er gagnrýnivert að formaður borgarráðs sem og aðrir fulltrúar meirihlutans í borg- arstjórn virðast samt leynt og ljóst enn vinna að þeirri stefnu að byggð muni rísa í Vatnsmýri og með því ýja að því að niðurstaða nefndarinnar verði virt að vettugi. Til að virða þá tímabundnu þver- pólitísku sátt varðandi nefndar- vinnuna að framtíðarstaðsetningu flugvallarins greiða fulltrúar Sjálf- stæðisflokksins í umhverfis- og skipulagsráði atkvæði gegn tillög- unni,“ segir í bókun fulltrúa Sjálf- stæðisflokksins. Fulltrúar meirihlutans sögðu hins vegar að nýtt deiliskipulag Reykjavíkurflugvallar hefði engin áhrif á rekstur flugvallarins og að það væri gert sem hluti af sam- komulagi Reykjavíkurborgar, inn- anríkisráðuneytisins og Icelandair. „Það er vandséð hvernig hægt er að túlka atkvæði gegn deili- skipulaginu sem stuðning við þá þverpólitísku sátt sem nú ríkir um framgöngu málsins,“ segir í bókun fulltrúa meirihlutans. Umrædd tillaga að nýju deili- skipulagi var auglýst í byrjun árs og bárust rúmlega 40 athuga- semdir. Deiliskipulag flug- vallar samþykkt  Sjálfstæðismenn segja leynt og ljóst unnið að byggð í Vatnsmýrinni  Engin áhrif á rekstur, segir meirihluti Morgunblaðið/ÞÖK Vatnsmýri Meirihlutinn er sagður vinna að byggð í Vatnsmýrinni. Umdeilt skipulag » Rúmlega 40 athugasemdir bárust við nýtt deiliskipulag á Reykjavíkurflugvelli sem sam- þykkt var á fundi umhverfis- og skipulagsráðs sem haldinn var 26. mars. » Fulltrúar í Sjálfstæð- isflokknum hafa lýst yfir vilja til þess að endurskoða skipu- lagið vegna öryggis- og rekstr- arsjónarmiða og hvort tillagan brjóti gegn eignarrétti. Ríkisstjórnin samþykkti í gær frum- varp Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, innanríkisráðherra, um að netörygg- issveit Póst- og fjarskiptastofnunar verði flutt til almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra. Fram kemur í tilkynningu frá ráðuneytinu, að frumvarpinu sé ætl- að að tryggja aukið öryggi á þessu sviði og tryggja að forvarnir, við- brögð og áherslur er varða netör- yggi séu í samræmi við það sem best gerist í nágrannalöndunum. Úttekt í kjölfar öryggisbrests Hanna Birna lét gera sérstaka út- tekt á net- og upplýsingaöryggi fjar- skipta í kjölfar alvarlegs öryggis- brests sem varð vegna tölvuinnbrots hjá fjarskiptafyrirtækinu Vodafone aðfaranótt 30. nóvember 2013. Var Páli Ásgrímssyni hdl., sem hefur sérhæft sig í samkeppnis- og fjar- skiptarétti, falið verkefnið. Tilgang- ur úttektarinnar var að greina heild- stætt stöðu ofangreindra öryggis- mála, þar með talið ábyrgð fjarskiptafyrirtækja, ábyrgð og eft- irlit opinberra stofnana, þá helst Póst- og fjarskiptastofnunar, Per- sónuverndar og ríkislögreglustjóra, réttarstöðu neytenda og laga- rammann og koma með ábendingar um hvernig tryggja megi net- og upplýsingaöryggi sem best. Niðurstaða úttektarinnar var sú að farsælast verði að færa netörygg- issveitina, verkefni hennar og eftirlit til almannavarnadeildar ríkislög- reglustjóra Ráðuneytið segir, að vistun net- öryggissveitarinnar hjá almanna- varnadeild ríkislögreglustjóra gefi betri möguleika á að samhæfa skipu- lag viðbúnaðar og viðbragða vegna öryggisatvika sem kunna að hafa áhrif. Þetta sé sérstaklega mikil- vægt hvað snerti ómissandi innviði þjóðfélagsins. Netöryggissveit flutt til lögreglu  Niðurstaða úttekt- ar á net- og upplýs- ingaöryggi fjarskipta Morgunblaðið/Rósa Braga Íslenska ullin er einstök Sjá sölustaði á istex.is Suðurlandsbraut 48 (bláu húsin í Faxafeni) - Sími 553 3450 - Vefverslun: www.spilavinir.is - sendumumallt land! Fermingargjafir Sendum um allt land spilavinir.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.