Morgunblaðið - 29.03.2014, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 29.03.2014, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MARS 2014 Suðurlandsbraut 48 (bláu húsin í Faxafeni) - Sími 553 3450 - Vefverslun: www.spilavinir.is - sendumumallt land! Fermingargjafir Sendum um allt land spilavinir.is Sunna Sæmundsdóttir sunnasaem@mbl.is „Við viljum gera fólki kleift að bretta upp ermarnar og mynda samtaka stemningu meðal íbúa fyrir að losa hverfið sitt við þenn- an ófögnuð,“ segir Guðmundur Vignir Óskarsson, verkefnastjóri á Umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkur- borgar, en borgaryfirvöld hyggjast nú fara í aðgerðir sem eiga að draga úr veggjakroti í Reykjavík. Íbúar sem sjálfir vilja bregðast við veggjakroti í sínu umhverfi og á sínum eignum verða aðstoðaðir með fræðslu auk þess sem þeim verða útveguð tæki og tól til verksins. Á árinu 2008 réðst Reykjavíkur- borg í átaksverkefnið „Hrein borg“ þar sem miklum fjármunum var varið í að hreinsa borgina af veggjakroti. Við upphaf átaksins var veggjakrotið í fyrsta skipti kortlagt með heildstæðum hætti í allri Reykjavík og þótti niður- staðan sláandi þar sem um 42 þús- und fermetrar í borginni voru þaktir veggjakroti. Samanburður var gerður árið 2012 þar sem verulegur árangur átaksins var staðfestur en í ljós kom að krot- uðum fermetrum hafði fækkað nið- ur í 16 þúsund. Guðmundur telur veggjakrotið hins vegar aftur farið að aukast þótt það hafi enn ekki verið staðfest með mælingum. „Eftir efnahagshrunið hefur dreg- ið úr þessari víðtæku vinnu sem borgin stóð fyrir í tengslum við átakið. Eignum borgarinnar hefur verið viðhaldið og áhersla lögð á að hafa þau mannvirki sómasam- leg en það hefur ekki verið haldið nógu vel utan um þann þátt sem snýr að einstaklingum og rekstr- araðilum og þeim hjálpað að halda þessu í skefjum,“ segir Guð- mundur. Gera þarf skýran greinarmun á veggjakroti og vegglist en Reykja- víkurborg hefur staðið fyrir málun veggmynda í tengslum við list- viðburði eða í einstökum tilfellum veitt heimild fyrir slíku, meðal annars í Hjartagarðinum á Hljómalindarreitnum. Guðmundur telur veggjakrotið og vegglistina haldast í hendur að einhverju leyti. „Það eru ekki bein tengsl sem hafa veruleg áhrif en fjölgun vegglistaverka getur þó haft ein- hver hliðaráhrif. Sumir leita að nærsvæðum og gera tilraunir og menn æfa sig. Það er fikt og spenna í kringum það,“ segir hann. Hann segir það einnig vera í skoðun að borgin láti þrífa eignir á áberandi stöðum í miðborginni á kostnað eiganda. „Það hefur verið inni í myndinni en var sett á bið í kjölfar hrunsins. Ég á þó von á að sú hugmynd verði skoðuð að nýju.“ Veggjakrot í Reykjavík eykst á ný  Miklum árangri í baráttunni við veggjakrot náð á árunum 2008 til 2012  Vegglistamenn prófa sig áfram með kroti  Reykjavíkurborg ætlar í samstarf með íbúum um að halda hverfum hreinum Veggjakrot Reykjavíkurborg varði um 15 milljónum í þrif á veggjakroti í fyrra en það er mun minna en 2008 þegar 159 milljónum var varið í þrif. List eða sóðaskapur? Skýr greinarmunur er gerður á vegglist og veggja- kroti en hægt er að sækja um leyfi fyrir gerð vegglistaverka hjá borginni. Guðmundur Vignir Óskarsson Morgunblaðið/Þórður Samvinna borgar og íbúa Reykjavíkurborg ætlar í samstarf með íbúum og veita þeim faglega ráðgjöf um hvernig sé best að þrífa veggjakrotið. „Við ætlum að virkja íbúa í samvinnu við borgina,“ segir Guðmundur. Sunna Sæmundsdóttir sunnasaem@mbl.is „Það skiptir engu máli hversu oft veggirnir verða málaðir hvítir. Oftast finnst fólki það gaman því þá er búið að búa til nýjan striga,“ segir Marlon Pollock graffítílistamaður. Hann segir graffítí bæði falla undir sóðaskap og list, það fari eftir því hver sé á bak við spreybrúsann en telur það þó vera vilja fæstra graffítílistamanna að vinna skemmdarverk. Reykjavíkurborg hefur á undanförnum árum boðið listamönnum upp á að sækja um leyfi fyrir því að leggja veggi undir verk sín. Marlon segir þróunina vera af hinu góða, en betur mætti þó gera. „Það ætti á skipulegan hátt að leyfa falleg, litskrúðug graffítí- listaverk á sem flestum stöðum í borginni og lífga þannig upp á ásýnd hennar. Sérstaklega ætti að heimila slík verk í undirgöngum sem flest eru mjög sóðaleg í dag en hægt væri að gera þau falleg ef eldri gröffurum væri látið í hendur að spreyja þau.“ Hann segir að einhverjir muni þó alltaf fá útrás með því að spreyja á þá veggi sem ekki má spreyja, óháð því hversu margir staðir eru leyfi- legir. „Uppreisnarandinn er í eðli mannsins og á meðan það er til fólk sem langar að brjóta reglur þá verða þær brotnar.“ Hann telur að frekar mætti leggja aukna fjármuni í for- varnir en að ausa þeim í málningu og þrif. Marlon vann með unglingum í Réttarholtsskóla í forvarnarverkefni þar sem mikið hafði verið um veggjakrot í hverfinu. „Ég ráðlagði þeim að þróa stílinn sinn á listrænan hátt þannig að þeir gætu hlotið virð- ingu fyrir verkin sín og sagði þeim að líklegra væri að þeir fengju að gera eitthvað flott ef þeir hættu að krota út skólann sinn. Veggjakrot í hverfinu minnkaði um 75% í kjölfar- ið,“ segir hann. List og sóðaskapur  Segir skipulega og fallega graffítí- list lífga upp á ásýnd borgarinnar Morgunblaðið/Brynjar Gauti Marlon Pollock Hann segir að hvít- ir veggir séu eins og auður strigi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.