Morgunblaðið - 29.03.2014, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MARS 2014
Eitt er það sem Reykjavíkurborgfjallar ekki um í kynning-
arbæklingi sínum um verkefnið
Betri hverfi og það er þátttaka al-
mennings í verkefninu. Betri hverfi
snýst um að íbúar taki í rafrænni
kosningu þátt í ákvörðun um marg-
vísleg verkefni í hverfum sínum.
Ýmsir hafahaft miklar
mætur á þessari
aðferð til að
auka þátttöku
almennings í
ákvarðanatöku, en hver skyldi ár-
angurinn vera hjá Reykjavík-
urborg?
Ef horft er til kosningaþátttöku,sem hlýtur að vera einn mik-
ilvægasti mælikvarðinn þegar meta
á aðferð við að fá fram vilja almenn-
ings, þá er staðreyndin sú að hún
hefur öll árin verið mjög léleg. Og
ekki skiptir minna máli að hún hef-
ur farið minnkandi með árunum.
Í ár var þátttakan aðeins rúmlegafimm þúsund manns og hafði
dregist saman um fjórðung á tveim-
ur árum.
Hver er skýringin á þessum afartakmarkaða og minnkandi
áhuga á rafrænum kosningum í
Reykjavík?
Er reynsla borgarbúa af fram-kvæmd borgaryfirvalda á því
sem ákveðið er svo léleg að þeir sjá
að þátttaka er tilgangslaus?
Eða eru rafrænar kosningar ogaukið íbúalýðræði almennt of-
metin fyrirbæri?
Skyldi Jón Gnarr Kristinsson getaútskýrt hvað veldur vanda raf-
rænna íbúakosninga í Reykjavík?
Hvað veldur minni
áhuga borgarbúa?
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 28.3., kl. 18.00
Reykjavík 4 skýjað
Bolungarvík 2 skýjað
Akureyri 4 heiðskírt
Nuuk 0 skýjað
Þórshöfn 7 heiðskírt
Ósló 12 heiðskírt
Kaupmannahöfn 12 heiðskírt
Stokkhólmur 10 heiðskírt
Helsinki 5 heiðskírt
Lúxemborg 16 heiðskírt
Brussel 17 léttskýjað
Dublin 7 skýjað
Glasgow 6 skúrir
London 12 heiðskírt
París 15 heiðskírt
Amsterdam 17 léttskýjað
Hamborg 7 skýjað
Berlín 8 skýjað
Vín 16 léttskýjað
Moskva 1 heiðskírt
Algarve 15 léttskýjað
Madríd 15 léttskýjað
Barcelona 15 skýjað
Mallorca 17 léttskýjað
Róm 15 léttskýjað
Aþena 17 skýjað
Winnipeg -8 léttskýjað
Montreal 2 alskýjað
New York 10 skúrir
Chicago 4 alskýjað
Orlando 25 skýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
29. mars Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 6:56 20:10
ÍSAFJÖRÐUR 6:58 20:18
SIGLUFJÖRÐUR 6:41 20:01
DJÚPIVOGUR 6:25 19:40
Stangveiðitímabilið hefst á þriðjudag-
inn kemur, 1. apríl, þegar veiðimenn
taka að kasta fyrir sjóbirting og stað-
bundinn silung í völdum ám og vötn-
um, einkum á Suðurlandi.
Meðal veiðisvæðanna sem verða
opnuð má nefna Tungulæk og Steins-
mýrarvötn í Landbroti, Vatnamótin
austan Skaftár, Geirlandsá og
Tungufljót í Skaftártungu. Þar er
Stangaveiðifélag Reykjavíkur ekki
lengur leigutaki, heldur Einar Lúð-
víksson, sem einnig fer með veiðina í
Eystri-Rangá.
Þá hefst veiði einnig í Minnivalla-
læk í Landsveit, í Soginu og í Varmá,
og í fimm vötnum á Veiðikortinu: í
Hraunsfirði, Meðalfellsvatni, Syðri-
dalsvatni við Bolungarvík, Þveit við
Hornafjörð og Vífilsstaðavatni. Ef vel
viðrar hefja margir veiðimenn á höf-
uðborgarsvæðinu veiðitímabilið við
það síðastnefnda. Fyrir norðan hefst
sjóbirtingsveiði í Húseyjarkvísl og þá
er einnig veitt í Litluá í Kelduhverfi.
Bára Siguróladóttir í Keldunesi sagði
í gær að þar hefði nær allan snjó tekið
upp og engar fyrirstöður væru fyrir
veiðimenn. Þeir sömu hefja veiðar í
Litluá og í fyrra en þá var metveiði í
ánni. Um 3.000 silungar veiddust á
vatnasvæðinu og segir Bára mikið
sjást nú af fiski í Litluá.
Veiðimöguleikar á þessum tíma árs
ráðast alltaf að einhverju leyti af
veðrinu. Ágætlega spáir fyrir þriðju-
daginn, sex til sjö stiga hita sunnan-
lands og úrkomu, en svalara norð-
anlands. efi@mbl.is
Morgunblaðið/Einar Falur
Birtingar Vorveiðimaður með afla
tveggja félaga í Landbrotinu.
Stangveiði
hefst á
þriðjudag
Landsvirkjun hefur um áratugaskeið
starfrækt sumarvinnuflokka ungs
fólks. Hóparnir sinna viðhaldi, upp-
byggingu og fegrun starfsstöðva
Landsvirkjunar og vinna jafnframt að
ýmsum samstarfsverkefnum víða um
land. Samvinna sumarvinnuflokka
Landsvirkjunar og félagasamtaka,
sveitarfélaga og stofnana hefur skilað
sér í auknum umhverfisgæðum og betri
aðstöðu til útivistar og ferðamennsku.
Í boði er vinnuframlag sumarvinnu-
flokka og flokksstjórn yfir þeim.
Verkefnin lúta að ræktun, hreinsun,
viðhaldi og öðrum umhverfisbótum
ásamt ýmsum samfélagsverkefnum.
Óskað er eftir að samstarfsaðilar
leggi fram vel skilgreind verkefni.
Umsóknareyðublað með nánari
upplýsingum er að finna á vef
Landsvirkjunar, www.landsvirkjun.is.
Nánari upplýsingar í síma 515 9000,
og hjá thora.maria.gudjonsdottir@
landsvirkjun.is.
Umsóknarfrestur rennur út 30. apríl.
Umsóknareyðublöð er að finna á
landsvirkjun.is.
Landsvirkjun auglýsir eftir samstarfs-
aðilum að verkefninu Margar hendur
vinna létt verk sumarið 2014.