Morgunblaðið - 29.03.2014, Page 11

Morgunblaðið - 29.03.2014, Page 11
vera með í ár til þess að vekja at- hygli á því að það er fyrirtæki á Ís- landi sem framleiðir leiktæki og er að taka þátt í nýsköpun. Við byrj- uðum fyrir fjórum árum á einhverju glænýju í miðju hruni með Krumma Flow og erum búin að fjárfesta mik- ið í þróunarferli þess. Nú er þróun- arvinnunni að ljúka í sumar og fannst okkur kjörið að fagna því með því að taka þátt í HönnunarMars,“ segir Eydís. Í haust ætlar Krumma að taka þátt í leiktækjasýningu í Nürnberg í Þýskalandi. „Við von- umst til að fá góð viðbrögð þar og stefnum á að hefja útflutning á vör- unum okkar. Okkur finnst spenn- andi að fara á ákveðinn hátt í öfuga átt við það sem aðrir eru að gera, sem einkennist að því að flytja leik- tæki inn til Íslands,“ segir Eydís að lokum. Náttúra Jenný Ruth og Ólafur Hall- dórsson á Reykjanesi í byrjun þró- unarvinnunnar á Krumma Flow. Ljósmynd/Sölvi Logason Tjörnin Leiktæki úr línunni Krumma Flow eru til sýnis við Tjörnina í dag og á morgun í tilefni af HönnunarMars. Leikur Leiktækin frá Krummu gefa ímyndunaraflinu lausan tauminn. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MARS 2014 NýlegirMitsubishi Pajero á rekstrarleigu til fyrirtækja Laugavegi 174 | Sími 590 5040 - Opið virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga kl. 12-16 HEKLA býður nú fyrirtækjum nýlegar Mitsubishi Pajero bifreiðar í rekstrarleigu. Í rekstrarleigu fá fyrirtæki nýlegar bifreiðar til umráða í 1 ár gegn föstumánaðar- gjaldi. Leigutaki losnar við alla fjárbindingu og endursöluáhættu. Greitt er fast mánaðarlegt leigugjald og bifreiðinni einfaldlega skilað í lok leigutímans. Dæmi: Pajero 3.2 Instyle Árgerð 2012, dísil Ekinn 38.000 km, sjálfskiptur Mitsubishi Pajero er knúinn 3,2 l dísilvél sem skilar 200 hestöflum. Meðal búnaðar bifreiðanna eru leðurinnrétting, rafdrifin framsæti, aukasæti (7 manna), bakkmyndavél, xenon ljós, ný heilsársdekk o.fl. (miðað við Instyle útfærslu). Mánaðarlegt leigugjald: 136.041 kr.m/vsk Á morgun klukkan 14 opna frænk- urnar Edda Lilja Guðmundsdóttir og Hlíf Leifsdóttir sýningu í Boganum í Gerðubergi, á verkum þar sem myndlist og textíll sameinast á striga. Edda Lilja Guðmundsdóttir er textílkennari að mennt og hefur hannað prjón og hekl, bæði fyrir sýningar og útgáfu mynstra. Hlíf Leifsdóttir hefur tekið þátt í mörgum námskeiðum í frístunda- málun m.a. hjá Myndlistaskólanum í Reykjavík í nokkur ár, ásamt nám- skeiðum í teikningu, vatnslita- og olíumálun. Hún hefur tekið þátt í mörgum samsýningum á vegum Myndlistaklúbbs Hvassaleitis og Fé- lags frístundamálara. Sýningin stendur til 20. júní og er opin frá kl. 9-17 virka daga og 13-16 um helgar. Myndlist og textíll sameinast á sýningu sem hefst á morgun Saumað í málverk í Gerðubergi Í dag frá klukkan 14 efnir Sið- fræðistofnun til vísindakaffis í Að- alsafni Borgarbókasafnsins. Vísinda- kaffið mun einblína á heimspekilegar og siðfræðilegar spurningar tengdar tauga- og heilarannsóknum. Fjallað verður um gervigreind, gervilimi, nýj- ustu rannsóknir á heilastarfsemi, tauga- og heilaeflingu, tauga- og heilabót og áhrif tauga- og heilarann- sókna á bókmenntir. Stuttar fram- sögur verða fluttar af þeim Heiðu Maríu Sigurðardóttur, taugasálfræð- ingi, Kristleifi Kristjánssyni, lækni og þróunarstjóra hjá Össuri, Pétri Henry Petersen, dósent við Læknadeild HÍ, og Bergljótu Kristjánsdóttur, pró- fessor í bókmenntafræði við HÍ. Fundarstjóri er Salvör Nordal, for- stöðumaður Siðfræðistofnunar. Vísindakaffið er hluti af evrópska rannsóknarverkefninu NERRI sem hefur fengið styrk úr sjöundu rammaáætlun Evrópusambandsins Viljum við ofurheila? Morgunblaðið/Kristinn Siðfræði Salvör Nordal for- stöðumaður stjórnar vísindakaffinu. Salvör Nordal stjórnar vísinda- kaffi um gervigreind og heilann Í kvöld klukkan 19 verður opnuð sýning fjöl- listakonunnar Sunnu Ben í verslun Kiosk að Laugavegi 65. Sýningin heitir „Í Dýr(ð/s)legum draumi“. Að sögn Sunnu er verk sýningarinnar, sem staðsett er í tveimur gluggum versl- unarinnar, unnið út frá blöndu af raunveruleika og draumaheimi. Sunna segist hafa mikinn áhuga á frumskógum þó hún hafi aldrei kom- ist í tæri við þá. Segir Sunna jafn- framt að franski naívistinn Henri Ro- usseau sé sér mikill innblástur, en hann málaði endalausa frumskóga en komst aldrei sjálfur í frumskóg. Er þetta í fyrsta sinn sem Sunna vinnur listaverk í glugga og hefur hún held- ur aldrei áður unnið í samstarfi við verlun. Þó hefur hún unnið ýmiskon- ar veggmálverk, meðal annars fyrir barinn Harlem. Sunna er með BA- gráðu í myndlist frá Gerrit Rietveld Academy í Amsterdam en hún út- skrifaðist þaðan árið 2012. „Það skemmtilega við að vinna verkið beint í glugga sem er svolítið óform- legur í sniði er að það er hægt að leika sér með víddir og hefðbundin snið. Það sem mig langaði að ná fram eru sjóntruflanir sem ávinnast með ofhlæði og því að koma mynd- efni fyrir á óvenjulegum stöðum á fletinum.“ segir Sunna að lokum. Sunna Ben sýnir í Kiosk

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.