Morgunblaðið - 29.03.2014, Blaðsíða 19
FRÉTTIR 19Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MARS 2014
Ný og betriheimasíða!
NORRÆN SUMUR GERA
KRÖFU
UM HÁMARKS FRAMM
ISTÖÐU
Á Íslandi vitum við að
sumarveður getur þýtt
alls konar veður!
Þess vegna hefur Noki
an þróað sumar- og he
ilsársdekk sem
henta fjölbreyttu veður
fari norðlægra slóða.
NOKIAN
FINNSK SUMAR- OG HEILSÁRSDEKK
Í HÆSTA GÆÐAFLOKKI
Ný dekkja
leitarvél
á MaX1.is!
Finndu réttudekkin undirbílinn þinn!
Skoðaðu
MAX1.is
Mundu
:
naglad
ekkin
af fyrir
15. apr
íl!
Fáðu vaxtalaust kortalán eða
10% staðgreiðsluafslátt af dekkjum!
velduMargverðlauNuðNokiaN gæðadekkhjá MaX1
Reykjavík:
Bíldshöfða 5a
Jafnaseli 6
Knarrarvogi 2
Hafnarfjörður:
Dalshrauni 5 515 7190
Opnunartími:
Öll verkstæði opin virka daga kl. 8-17
Laugardaga: sjáMAX1.is
Aðalsímanúmer:
Mikið úrval fyrir fólksbíla, jeppa og sendibíla
BAKSVIÐ
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Ætla má að um tvær milljónir páska-
eggja séu framleiddar í stærstu sæl-
gætisverksmiðjum landsins á þessu
vori, en vertíðin þar stendur nú sem
hæst. Það var raunar strax í janúar
sem eggjaframleiðslan hófst en
þunginn verður jafnan meiri eftir því
sem nær líður páskum. Hjá Nóa-
Síríusi er framleidd um ein milljón
eggja að þessu sinni og nærri 400
þúsund hjá Freyju. Þá eru ótaldir
ýmsir aðrir framleiðendur.
Hefðir og góðar uppskriftir
„Páskaeggin og jólakonfektið eru
alltaf föstu póstarnir í starfsemi okk-
ar. Eggin frá Nóa eru í ýmsum
stærðum og framleiðsla þeirra fer
eftir gömlum og góðum hefðum og
uppskriftum sem landsmenn þekkja.
Við leikum okkur hins vegar meira í
framleiðslu undir vörumerkinu
Nizza. Házkaegg eru afurðin þar,
þau eru í ýmsum stærðum, með
margvíslegu góðgæti og í þeim eru
smellin orðatiltæki í stað málshátta,“
segir Kristján Geir Gunnarsson,
framkvæmdastjóri markaðs- og
sölusviðs fyrirtækisins.
Um 150 manns vinna í verksmiðju
Nóa-Síríusar og þar af eru þessa
daga um 30 manns í páskaeggjunum.
Gerð þeirra er að miklu leyti handa-
vinna, til dæmis skreytingar. „Þó má
segja að allir okkar starfsmenn taki
þátt í þessari framleiðslu með ein-
hverju móti. Við hefjum undirbún-
inginn raunar strax í ágúst, til dæm-
is með því að nálgast hráefnið, sem
er að stofninum til kakóbaunir frá
Fílabeinsströndinni,“ segir Kristján
Geir sem segir framleiðsluna munu
verða í gangi alveg fram á síðasta
dag, það er fram á miðvikudaginn í
dymbilviku.
„Framleiðslan gengur vel og egg-
in koma alveg á færibandi,“ segir
Ævar Guðmundsson, eigandi sæl-
gætisgerðarinnar Freyju í Kópa-
vogi. Páskaeggin þar á bæ eru í
stærðunum 1-10 og sinna um 25
manns framleiðslu á þeim. „Þetta er
handavinna og við þurftum meiri
mannskap til þess að anna þessu.
Tókum því inn hóp af verkfalls-
krökkunum úr framhaldsskólunum
og þau hafa alveg bjargað varpinu,
ef svo má segja um páskaeggjagerð-
ina,“ segir Ævar.
Verkfallskrakkarnir bjarga varpinu
Páskaeggjavertíðin er í hámarki Tvær milljónir eggja eru framleiddar Handavinna og
hráefni frá Fílabeinsströndinni Smellin orðatiltæki í stað málshátta koma nú í öðruvísi eggjum
Morgunblaðið/Þórður
Vertíð Allar skreytingar á páskaeggjunum eru handgerðar og því hefur þurft að fá viðbótarmannskap í framleiðsl-
una hjá Freyju. Þá kemur til gagnkvæmur hagur því framhaldsskólakrakkar í verkfalli vilja fá að vinna.
Freyjumenn Páll Matthíasson verksmiðjustj. og Ævar Guðmundsson eigandi.
Almennt hafa egg í gegnum tíð-
ina verið tákn um frjósemi og
endurfæðingu og voru það
löngu fyrir tilkomu kristindóms-
ins. Um árþúsundir og aldir
tíðkaðist sá siður að hafa máluð
hænuegg uppi um páska og þá
jafnan í gulum lit sem er tákn
vonarinnar – sem aftur tengist
þá upprisu Jesú frá dauðum
sem er meginboðskapur
páskanna.
„Meðal kristinna eru páska-
egg rakin til frumkristinna söfn-
uða í Mesópótamíu þar sem
tíðkaðist að rjóða egg til minn-
ingar um að blóði Krists var út-
hellt með krossfestingunni,“
segir á Wikipedia.
Áratugir eru síðan súkkulaði-
eggin tóku við á Íslandi. Ævar
segir framleiðsluna hafa tals-
vert þróast á þeim tíma og
sömuleiðis hafi málsháttunum
verið skipt út, enda sé sam-
félagið og íslenskt mál sí-
breytilegt. „Málshættir sem
vitna um ójafnfrétti kynjanna
hafa verið teknir út og þeir sem
eru tvíræðir á einhvern hátt,“
segir Ævar Guðmundsson, sæl-
gætiskóngur í Freyju.
Frjósemis-
tákn úr
frumkristni
EGG Í GEGNUM
ÁRÞÚSUNDIN