Morgunblaðið - 29.03.2014, Qupperneq 44
44 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MARS 2014
AKUREYRARKIRKJA | Æðruleys-
ismessa kl. 11, athugið breyttan
tíma. Prestur er sr. Jóna Lísa Þor-
steinsdóttir. Hjalti Jónsson sér um
tónlistina. Kaffisopi í Safnaðarheim-
ilinu að messu lokinni. Sunnudaga-
skóli í Safnaðarheimilinu kl. 11. Um-
sjón sr. Svavar Alfreð Jónsson og sr.
Hildur Eir Bolladóttir.
AKURINN | Samkoma kl. 14, í Núpa-
lind 1, Kópavogi. Guðmundur E. Er-
lendsson leiðir biblíulestur.
ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 11. Prestarnir þjóna fyrir altari.
Kristina Kalló Szklenár organisti.
Kirkjukórinn leiðir almennan safn-
aðarsöng. Þjóðlagasveit Tónlistar-
skólans á Akranesi undir stjórn Skúla
Ragnars Skúlasonar. Sunnudagaskól-
inn á sama tíma í safnaðarheimili
kirkjunnar í umsjón Fritz, Díönu og
Valbjörns. Stuttur fundur með for-
eldrum fermingarbarna eftir messu.
ÁSKIRKJA | Fjölskylduguðsþjónusta
kl. 11 í umsjá Kristnýjar Rósar Gúst-
afsdóttur djákna og Magnúsar Ragn-
arssonar organista. Sögur og söngur,
brúður og bænir. Kjörin sam-
verustund fyrir börn, foreldra, ömmur
og afa.
ÁSTJARNARKIRKJA | Guðsþjón-
usta kl. 11. Kór Ástjarnarkirkju syngur
undir stjórn Matthíasar V. Bald-
urssonar tónlistarstjóra kirkjunnar.
Prestur er sr. Gunnar Jóhannesson,
starfandi héraðsprestur Kjalarness-
prófastsdæmis. Sunnudagaskóli á
sama tíma. Allir komi með hatt eða
höfuðfat. Hressing og gott samfélag
á eftir.
BESSASTAÐAKIRKJA | Messa og
aðalsafnaðarfundur Bessa-
staðasóknar. Messa í Bessastaða-
kirkju kl. 11. Sr. Hans Guðberg Al-
freðsson prédikar og þjónar fyrir
altari. Álftaneskórinn syngur undir
stjórn Bjarts Loga Guðnasonar org-
anista. Aðalsafnaðarfundur strax að
lokinni messu í safnaðarheimilinu
Brekkuskógum 1. Á fundinum verður
boðið upp á súpu og brauð.
BESSASTAÐASÓKN | Sunnudaga-
skóli í Brekkuskógum 1 kl. 11. Um-
sjón með stundinni hafa Helga Björk,
Jón Örn og Guðmundur Jens.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 11, sr. Bryndís
Malla Elídóttir þjónar og Örn Magn-
ússon stjórnar söngnum. Barn borið
til skírnar. Boðið verður upp á hress-
ingu í safnaðarheimilinu á eftir. Tóm-
asarmessa kl. 20 sem ber yfirskrift-
ina „Jesús mettar“. Magnea
Sverrisdóttir skóladjákni prédikar og
Þorvaldur Halldórsson sér um tónlist-
ina. Boðið verður upp á fyrirbæn með
smurningu og/eða handayfirlagningu.
Molasopi og te í safnaðarheimili að
messu lokinni.
BÚSTAÐAKIRKJA | Barnamessa kl.
11. Lífleg og gefandi samvera fyrir
alla fjölskylduna. Fræðsla, söngur og
lofgjörð. Aðalsafnaðarfundur Bú-
staðasóknar kl. 13. Guðsþjónusta kl.
14. Sr. Kristján Björnsson í Eyjum
prédikar. Frímúrarakórinn syngur
ásamt félögum úr kór Bústaðakirkju
undir stjórn Jónasar Þóris. Liljubræð-
ur aðstoða ásamt messuþjónum og
prestur er sr. Pálmi Matthíasson.
Kaffi eftir messu.
DIGRANESKIRKJA | Messa og
sunnudagaskóli kl. 11. Prestur sr.
Magnús B. Björnsson. Kvennakór
Kópavogs. Organisti Gróa Hreins-
dóttir. Súpa í safnaðarsal. Helgistund
kl. 15. Hugleiðing, vitnisburðir og fyr-
irbænir. Tónlist: Tríó Gunnars Böðv-
arssonar. Vitnisburður, Auðbjörg
Reynisdóttir. Pylsuveisla á neðri hæð
eftir sunnudagaskólann.
DÓMKIRKJA Krists konungs,
Landakoti | Messa kl. 10.30, kl. 13
á pólsku og kl. 18 á ensku. Virka
daga kl. 18, og má., mi. og fö. kl. 8,
lau. kl. 16 á spænsku og kl. 18 er
sunnudagsmessa.
DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11, séra
Anna Sigríður Pálsdóttir predikar og
þjónar fyrir altari. Barnastarf á kirkju-
loftinu í umsjón Ólafs Jóns og Sig-
urðar Jóns. Dómkórinn og organisti er
Kári Þormar.
EYRARBAKKAKIRKJA | Messa kl.
11. Cand. theol. Þorgils Hlynur Þor-
bergsson predikar. Söngkór Miðdals-
kirkju kemur í heimsókn og syngur
ásamt kirkjukór Eyrarbakkakirkju, org-
anistar og söngstjórar eru þeir Hauk-
ur A. Gíslason og Jón Bjarnason.
FELLA- og Hólakirkja | Messa kl.
11. Séra Svavar Stefánsson prédikar
og þjónar fyrir altari. Kór Fella- og
Hólakirkju syngur undir stjórn Guð-
nýjar Einarsdóttur organista. Með-
hjálpari Jóhanna Freyja Björnsdóttir.
Fermd verður Díana Ýr Reynisdóttir.
Orð dagsins:
Jesús mettar 5 þús.
manna.
(Jóh. 6)
✝ Margrét Huldafæddist í Tröð,
Fróðárhreppi á
Snæfellsnesi 20.
febrúar 1918. Mar-
grét lést á dval-
arheimilinu Jaðri í
Ólafsvík 23. mars
2014.
Foreldrar henn-
ar voru Magnús
Guðbrandur Árna-
son frá Holti á Snæ-
fellsnesi,
f. 5.6. 1884, d. 28.2. 1963 og
Ragnheiður Helga Skarphéð-
insdóttir frá Guðlaugsvík á
Ströndum, f. 10.6. 1893, d. 27.5.
1975.
Margrét var næstelst fimm
systkina, en þau voru, Árni Ágúst
f. 1914, Ragna Jenný f. 1924, Karl
f. 1928 og Skarphéðinn f. 1930.
Þau eru öll látin.
Margrét ólst upp í Tröð og
stundaði síðan nám við Hús-
mæðraskólann á Staðarfelli frá
1940-1941 og eignaðist hún
margar vinkonur þar sem héldu
sambandi alla tíð síðan.
Hinn 8. maí 1948 kvæntist hún
Sigurði Brandssyni frá Ásbjarn-
arhúsi í Ólafsvík, f. 14. okt. 1917,
og hófu þau búskap í Fögruhlíð í
Fróðárhreppi.
Haustið 1968
brugðu þau búi og
fluttust að Hjarð-
artúni 5 í Ólafsvík,
þar sem þau bjuggu
alla tíð, þar til Mar-
grét fluttist á dval-
arheimilið Jaðar
nokkrum árum eftir
lát Sigurðar, en
hann lést 31. maí
1996.
Margrét og Sigurður eign-
uðust 6 börn, en þau eru:
Birgir f. 1944. kvæntur Jónu
Valdísi Árnadóttur og eiga þau 5
börn. Brandur f. 1947,
kvæntur Áslaugu Bjarnadótt-
ur og eiga þau 2 börn. Ragnheið-
ur Magnea f. 1949, gift Gunn-
laugi Jónassyni og eiga þau 3
börn. Ingólfur Jón f. 1950, kvænt-
ur Sigríði Öldu Hrólfsdóttur og
eiga þau 6 börn. Kolbrún f. 1953,
d. 1985, var gift Steinþóri Sig-
urðssyni og eiga þau 2 börn. Val-
gerður f. 1958, gift Bo-Ingmar
Larsson og eiga þau 2 börn.
Útför Margrétar fer fram frá
Ólafsvíkurkirkju í dag, og hefst
athöfnin kl. 14.
Jarðsett verður í Brimilsvalla-
kirkjugarði í Fróðárhreppi.
Ég þakka allt frá okkar fyrstu kynnum,
það yrði margt, ef telja skyldi það.
Í lífsins bók það lifir samt í minnum,
er letrað skýrt á eitthvert hennar blað.
Ég fann í þínu heita stóra hjarta
þá helstu tryggð og vináttunnar ljós.
Er gerir jafnvel dimma vetur bjarta,
úr dufti lætur spretta lífsins rós.
(Margrét Jónsdóttir)
Full þakklætis fyrir liðnar
stundir bið ég Möggu Guðs bless-
unar í nýjum heimkynnum og bið
Guð að styrkja fjölskyldu hennar.
Þín tengdadóttir.
Áslaug Bjarnadóttir.
Elsku frænka mín hefur nú
kvatt þetta jarðlíf, södd lífdaga. 96
urðu árin hennar hér. Magga
frænka á og mun alltaf eiga stóran
sess í mínu hjarta. Hugurinn reik-
ar til æskuáranna. Magga er þar
ljóslifandi. Hún býr á næsta bæ
við ömmu og afa. Hún býr í
Fögruhlíð með Sigga sínum og
barnahópnum þeirra. Ég á ynd-
islegar minningar úr sveitinni
vestur í Fróðárhreppi. Bæði við
leik og störf. Í sveitinni lærði ég
að vinna og bera virðingu fyrir
náttúrunni. Það var margt að læra
af Möggu. Hún var hagsýn og úr-
ræðagóð húsmóðir. Gerði mikið úr
litlu og kunni að nýta það sem til
var. Henni var margt til lista lagt.
Það virtist allt leika í höndunum á
henni. Hún prjónaði, saumaði,
málaði og fékkst við ýmiskonar
handverk. Allt svo fallegt og vel
gert. Magga var ekki rík af ver-
aldlegum gæðum en nóg var til af
þeim andlegu.
Hjartahlýja er fallegt orð sem
gleður og umvefur. Magga
frænka bjó yfir hjartahlýju sem
umvafði alla þá sem voru henni
kærir. Kímnigáfu hafði hún og
yndislega nærveru. Þó að lífið hafi
ekki alltaf farið mjúkum höndum
um hana elsku frænku mína þá
heyrði ég hana aldrei kvarta. Hún
var alltaf brosandi og lífsgleðin
skein af henni. Magga og mamma
voru alla tíð nánar. Samrýmdar
systur. Góðar vinkonur. Þær
hjálpuðust að og samgangur milli
fjölskyldnanna var mikill. Við
börnin nutum góðs af og vorum
miklir vinir og leikfélagar. Þegar
von var á Möggu í heimsókn til
okkar á Digranesveginn þá fylltist
andrúmsloftið af tilhlökkun og eft-
irvæntingu. Það var alltaf gaman
og gott að hitta Möggu. Það var
mikið spjallað, hlegið og spurt
frétta og ég átti góða vinkonu í
henni. Þrátt fyrir að minnið hafi
verið farið að bresta síðustu árin
þá bjó Magga alltaf yfir mikilli
reisn. Það eru forréttindi að hafa
átt hana Möggu að. Ég er þakklát
fyrir ljúfu minningarnar sem
tengjast hlýju og góðu frænku
minni.
Ragnheiður Alfonsdóttir
(Heiða).
Margrét Hulda
Magnúsdóttir
Það ríkir söknuð-
ur í fjölskyldu
minni. Í honum felst
eftirsjá eftir góðum
manni sem var að kveðja lífið, var
fjölskyldunni kær og hefur mark-
að djúp spor í lífi okkar. Þessi
kveðjustund er einnig endur-
minning æskuáranna sem hann
var stór hluti af og með honum
kveð ég brot af sjálfri mér, mynd
af æsku og sakleysi. Þó tregi fylli
hjörtu okkar þá er hann samofinn
hlýhug og þakklæti fyrir allar
þær góðu samverustundir sem
fjölskyldur okkar áttu saman.
Gunnar Guðmundsson féll frá
10. mars síðastliðinn. Hann var
eiginmaður Thelmu Sigurgeirs-
dóttur frænku minnar og systur
föður míns. Þau systkinin hafa
ætíð verið mjög náin. Þannig hef-
ur það verið frá því ég og systir
mín munum eftir okkur og er
enn. Fastur liður í tilveru for-
eldra okkar alla tíð og þá sérstak-
lega föður okkar hafa verið tíðar
heimsóknir til Gunnars og
Gunnar
Guðmundsson
✝ Gunnar Guð-mundsson
fæddist 25. nóv-
ember 1932. Hann
andaðist 10. mars
2014. Jarðarför
Gunnars fór fram
19. mars 2014.
Thelmu. Þessi
tryggðarbönd
systkina höfðu áhrif
á fjölskylduna alla.
Það var alltaf til-
hlökkunarefni að
sækja þau hjón
heim og gott að hafa
átt þau að alla tíð.
Það var lán okkar
systra að eiga svo
gott frændfólk að.
Þegar Gunnar kem-
ur inn í líf Thelmu og þau hefja
sambúð var faðir okkar, Sigur-
geir, ungur að árum eða níu ára
en varð fljótt tíður gestur á
þeirra heimili. Gunnar tók bróður
sinnar heittelskuðu frá fyrstu
stundu afar vel og urðu þeir fljótt
órjúfanlegir vinir. Þá hófust
þessar tíðu heimsóknir, tryggð-
arbönd urðu til sem við systurnar
gengum að þegar við uxum úr
grasi.
Bæði Gunnar og Thelma voru
því stór hluti af fjölskyldunni á
æskuárum okkar systra. Við vor-
um svo lánsamar systurnar að
þau áttu saman sex börn. Þau
voru yndisleg frændsystkin að
alast upp með. Fallegar fjórar
frænkur sem glaðlyndið skein af
og við systurnar litum upp til en
strákarnir tveir sem eru yngstir í
hópnum, Guðmundur og Sigur-
geir, voru leikfélagar okkar í
æsku. Fjölskyldurnar fóru oft
saman í lautarferðir í Heiðmörk á
okkar yngri árum. Þá voru Vil-
helmína amma og Elsa föðursyst-
ir oftar en ekki með í för. Við
hlupum saman áhyggjulaus í
mosanum og hátindur þessara
ferða var þegar fullorðnir settu
okkur krakkana í teppi og köst-
uðu upp til skýja að okkur fannst.
Fátt var skemmtilegra en þegar
gripið var í teppið og það mátti
helst engan enda taka. Í þessum
ferðum var Gunnar manna dug-
legastur að hugsa um krakkana
og gleðigjafi í einu og öllu. Síðar
meir eru það skíðaferðirnar sem
eru mér minnisstæðar en Gunn-
ar, Thelma og strákarnir þeirra
voru helstu félagar fjölskyldunn-
ar á tíðum skíðaferðum á ung-
lingsárum. Þetta voru ánægju-
legar samverustundir og í
þessum fjölmörgu skíðaferðum
var Gunnar okkur ávallt innan
handar. Í minningunni var Gunn-
ar alltaf nærri og oftast tilbúinn
að hendast niður brekkurnar
glaðlyndur með unglingunum.
Ég er þakklát fyrir að hafa átt
Gunnar að og fyrir þá tryggð og
vináttu sem hann hefur alla tíð
sýnt foreldrum mínum. Hann var
glaðlyndur, hlýr og hjálpsamur
maður. Þannig minnist ég Gunn-
ars sem velviljaðs og góðs manns
sem mér þótti afar vænt um og
fann ávallt að sú væntumþykja
var endurgoldin.
Matthildur Sigurgeirsdóttir.
Elsku, besti afi okkar. Það var
alltaf gott að koma í heimsókn til
þín og ræða um allt og ekkert.
Við munum aldrei gleyma stund-
um okkar saman. Þú varst alltaf
léttur í lund, þolinmóður og svo
góður við allt og alla. Þú varst
fullur af fróðleik og skemmtileg-
um sögum og kenndir okkur að
sjá alltaf það jákvæða í lífinu. Við
munum aldrei gleyma þér, elsku
afi, þú ert hetjan okkar. Hvíldu í
friði og guð geymi þig.
Atli Gunnar, Þórdís og Sif.
✝
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við
andlát og útför
ERLINGS N. GUÐMUNDSONAR,
Hörðubóli,
Dalabyggð.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki heima-
þjónustu heilsugæslunnar í Búðardal og
starfsfólki dvalarheimilisins Silfurtúns fyrir góða umönnun.
Ragnhildur Beatrice Erlingsdóttir, Sigurjón Hannesson,
Kristrún Erna Erlingsdóttir, Baldur Kjartansson,
Guðríður Erlingsdóttir, Stefán Hólmsteinsson,
Líneik Dóra Erlingsdóttir,
Guðmundur Erlingsson, Ninna Karla Katrínardóttir,
Una Auður Kristjánsdóttir, Hjalti Samúelsson,
barnabörn og langafabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð, vináttu og hlýhug við andlát
og útför elskulegrar móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu og heiðruðu
minningu
STEINUNNAR J. STEINSEN.
Sérstakar þakkir viljum við færa starfs-
fólki Sunnuhlíðar fyrir góða umönnun og séra Braga Skúlasyni
fyrir aðstoðina.
Rúnar Steinsen, Guðrún Guðmundsdóttir,
Steinn Steinsen, Ásta María Björnsdóttir,
Anna Steinsen, Sigurður Már Einarsson,
Ragnheiður Steinsen,
Rakel Steinsen,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýju við andlát og útför
okkar ástkæra eiginmanns, föður, tengda-
föður, afa og langafa,
GUNNARS JÓNS FINNSSONAR
frá Siglufirði,
Melseli 22,
Reykjavík,
Elsebeth Finnsson,
Kristinn Gunnarsson, Lilja K. Hallgrímsdóttir,
Ásta María Gunnarsdóttir,
Rafn Gunnarsson,
Anna Gunnarsdóttir,
Súsanna Gunnarsdóttir, Jón Vilhjálmsson,
Bylgja Gunnarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug vegna andláts og
útfarar ástkærs eiginmanns, föður, tengda-
föður, afa og langafa,
GUNNLAUGS PÉTURSSONAR
Sóleyjarima 19.
Sérstakar þakkir til starfsfólks dagdeildar
Eirar og allra þeirra lækna og hjúkrunarfólks sem önnuðust hann
í gegnum árin.
Ásdís Arinbjarnardóttir,
Birna Guðný Gunnlaugsdóttir, Sigurjón Sigurjónsson,
Pétur Þór Gunnlaugsson,
Bryndís Gunnlaugsdóttir, Páll G. Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu mér,
börnum, tengdabörnum og fjölskyldum
þeirra samúð og vinarhug við andlát og
útför ástkærs eiginmanns míns,
SIGURÐAR RAGNARS
GUÐBRANDSSONAR
blikksmíðameistara,
Njarðarvöllum 6,
áður Aðalgötu 19,
í Reykjanesbæ.
Sérstakar þakkir til starfsfólks heimahjúkrunarþjónustu
Reykjanesbæjar og Sjúkrastofnunar Suðurnesja fyrir einstaka
umönnun og aðlúð.
Guð blessi ykkur öll.
Sigríður Einarsdóttir,
börn, tengdabörn og fjölskyldur.
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda
Morgunblaðinu greinar eru
vinsamlega beðnir að nota
innsendikerfi blaðsins. Neðst
á forsíðu mbl.is má finna upp-
lýsingar um innsending-
armáta og skilafrest. Einnig
má smella á Morgunblaðs-
lógóið efst í hægra horninu og
velja viðeigandi lið.
Minningargreinar