Morgunblaðið - 29.03.2014, Page 48
48 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MARS 2014
Smiðjuvegi 34 |Rauð gata | www.bilko.is | Sími 557-9110
Tökum Olískort.
Einn aðal þáttur í reglulegu
viðhaldi bíls er að passa að
vélin sé smurð á réttum tíma.
Láttu okkur um að smyrja
bílinn, -notum aðeins hágæða
olíu frá Olís.
Kom
du n
úna
og fá
ðu fr
ía
vetr
arsk
oðun
í lei
ðinn
i!
Í vetr
arsko
ðun p
össum
við
að fro
stlög
ur sé
í lagi
, peru
r
og rú
ðuþu
rrkur
í
topp
stand
i. Að
auki
álags
prófu
m við
rafge
yma.
Hera Björk Þórhallsdóttir er 42 ára í dag. Hún ætlar að verjaafmælisdeginum í verslun sinni Púkó og smart á Laugaveg-inum.
„Ég stefni á að njóta lífsins í miðbænum en það er þó aldrei að vita
nema ég fari út að borða um kvöldið með eiginmanninum,“ segir
Hera. „Almennt er ég mikið afmælisbarn enda gefur það manni til-
efni til þess að bregða út af vananum. Á síðasta ári hélt ég til dæmis
heljarinnar veislu sem ég kallaði Hera í hamingjukasti. Hún var
haldin skömmu eftir að ég sigraði í Viña Del Mar Festival-keppninni
í Síle á síðasta ári en sú veisla tókst svo vel að hún verður ekki end-
urtekin í bráð.“
Hera og fjölskylda hennar búa sig nú undir að flytja til Síle í lok
apríl. „Þar er öll orkan okkar núna. Það er svo margt sem þarf að
huga að og ef ég ætti að óska mér einhvers í afmælisgjöf þá væri það
einfaldlega að málin leystust.“ Hera segist hafa heillast af Síle þeg-
ar hún var þar fyrir ári. „Ég hef lengi átt mér þann draum að geta
tjáð mig á spænsku og sá draumur mun nú loksins rætast. Þá er
mikilvægt að vera staddur þar í landi til þess að geta fylgt sigrinum
eftir en keppnin skiptir miklu máli í Suður-Ameríku. Verðlauna-
gripurinn hefur til dæmis enga merkingu hér heima en um leið og
maður sýnir einhverjum frá Suður Ameríku þessa styttu þá falla
þeir í stafi.“ mariamargret@mbl.is
Hera Björk Þórhallsdóttir er 42 ára í dag
Morgunblaðið/Golli
Gestkvæmt Að sögn Heru hafa margir vinir og kunningjar boðað
komu sína til Síle en svo er að sjá til hverjar heimtur verða.
Óskar sér helst að
málin leysist
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Systurnar Bryndís
Eva og Þórdís Ósk
Stefánsdætur (11
ára) og Ísabella
Ingólfsdóttir (10
ára) héldu tombólu
við verslun Sam-
kaupa við Byggða-
veg á Akureyri.
Þær söfnuðu með
því 2.934 krónum sem þær styrktu
Rauða krossinn með. Ísabella kom og
afhenti ágóðann af tombólunni.
Hlutavelta
Hafnarfjörður Sunnefa Ósk fæddist
31. júlí kl. 18.47. Hún vó 3.685 g og var
50 cm löng. Foreldrar hennar eru
Kristín Björk Karlsdóttir og Aron Karl
Bergþórsson.
Nýir borgarar
Garður Guðlaug Helga fæddist 9. júlí.
Hún vó 3.410 g og var 51 cm löng. For-
eldrar hennar eru Sigurður Elíasson
og Lovísa Ósk Ragnarsdóttir.
Þ
órir Baldursson fæddist í
Keflavík 29.3. 1944 og
ólst þar upp. Hann var í
Barnaskóla Keflavíkur,
lauk landsprófi og
stundaði nám við MR í þrjá vetur en
hóf þá nám við Tónlistarskólann í
Reykjavík og útskrifaðist þaðan af
kennarabraut 1965. Hann var síðan
söngkennari við Laugalækjarskóla
1965-67.
Varstu ekki í hljómsveit í Kefla-
vík?
„Jú, jú. Pabbi lék í danshljómsveit
og ég byrjaði 7 ára að fikta við harm-
onikkuna hans, fékk svo mína eigin
nikku, fór í píanótíma til Vigdísar
Jakobsdóttur og lærði á franskt
horn og lék í lúðrasveit hjá Guð-
mundi Norðdahl.
Ég byrjaði að hlaupa í skarðið í
hljómsveitinni með pabba er ég var
10 ára, var 12 ára í skólahljómsveit-
inni GK og 14 ára var ég kominn í
hljómsveit sem lék í Krossinum um
hverja helgi og stundum uppi á Velli.
Eftir að ég hóf menntaskólanám
lék ég svo með ýmsum í Reykjavík,
leysti m.a. af í KK-sextettinum.“
Savanna tríó á Bítlatímanum
Varð Savanna tríóið til í MR?
„Já og nei. Við Björn Björnsson
vorum sessunautar í MR en Troels
Bendtsen kom úr Versló. Við kom-
um fyrst fram opinberlega á nýárs-
dag 1963, gáfum út litla plötu um
vorið og „Suðurnesjamenn“ slógu í
gegn. Vinsældirnar voru gífurlegar.
Fyrstu vikuna í apríl komum við
fram á 18 skemmtunum og fyrsta
hálfa árið 157 sinnum.
Við gáfum út aðra litla plötu
snemma árs 1964 og stóra plötu hjá
SG hljómplötum þá um haustið en
hún sló öll sölumet. Við gáfum út
aðra stóra plötu 1965, en sú þriðja,
1966, og sú fjórða, 1967, voru teknar
upp í London. Síðan hafa verið
gefnar út safnplötur og diskar og
1991 sendum við frá okkur diskinn
„Eins og þá“ sem ég er svolítið
stoltur af.
Savanna tríóið kom fram í fræg-
um skemmtisjónvarpsþætti Magn-
úsar Magnússonar, Tonight Show,
hjá BBC, 1965. Við vorum með
skemmtiþátt í íslenska Sjónvarpinu
á fyrsta útsendingardegi þess 30.9.
1966 og gerðum fjóra aðra þætti fyr-
ir Sjónvarpið. Loks komum við fram
í sænska sjónvarpinu sem fulltrúar
Íslands í samnorrænum sjónvarps-
Þórir Baldursson tónlistarmaður 70 ára
Úti að borða í Svíþjóð Þórir, Guðrún, eiginkona hans og Nina Lizell, fyrrv. kona hans, og börn þeirra þriggja.
Þúsundþjalasmiður í
íslenskri tónlistarsögu
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá merkum
viðburðum í lífi fólks, svo sem
stórafmælum, hjónavígslum, barns-
fæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu
mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að
Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta
af slóðinni mbl.is/islendingar eða á
islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón