Morgunblaðið - 29.03.2014, Page 50
50 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MARS 2014
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú stendur þig vel í vinnunni í dag því
þig langar til þess að uppskera virðingu ann-
arra fyrir verk þín. Umbætur eru það sem þú
ert að leita eftir.
20. apríl - 20. maí
Naut Innsæi þitt varðandi það sem aðrir eru
að fást við hittir naglann algerlega á höfuðið.
Þú ert svo kappsfull/ur að þér hættir til að
sýna öðrum óþolinmæði.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Hagir þínir í vinnu gætu tekið
breytingum. Njóttu velgengni þinnar. Litlir
sigrar fela í sér barnslega gleði og einlægni.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Sýndu sérstaka aðgæslu í viðræðum
sem tengjast fjármálum í dag og passaðu
upp á að þú fáir rétt til baka í verslunum.
Ekki taka það sem aðrir segja alvarlega, sum-
um finnst gaman að sjá þig skipta skapi.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú ert fínasti undirmaður, vinnur vel,
ert skapandi og ansi nákvæm/ur. Vertu
óhrædd/ur við að íhuga nýstárlegar lausnir.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þér líður vel með sjálfa/n þig í dag, og
þú ert til í hvað sem er. Góðir hlutir gerast
þegar þú slakar á. Haltu bara þínu striki því
þú ert á réttri leið.
23. sept. - 22. okt.
Vog Eitthvað stórfenglegt er að gerast í lífi
þínu um þessar mundir. Spjall við ókunnugan
aðila gæti aldeilis víkkað út sjóndeildarhring
þinn.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Væntingar annarra skipta þig
nánast engu máli, því þínar eigin væntingar
eru stöðugt með þér. Láttu því ekki smávegis
andstreymi á þig fá og horfðu bjartsýn/n
fram á veginn.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Annað hvort er vinnan að gera út
af við þig eða þú ert að leita að nýrri vinnu á
fullu. Reyndu að nota kvöldið í að hlaða batt-
eríin.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Taktu ekki allt bókstaflega sem þú
heyrir heldur sannreyndu það sjálf/ur.
Bjóddu þeim sem kunna að meta verkið og
munu segja það sem þú vilt heyra.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Einhver vandræði koma upp í
vinnunni og þú þarft að leggja þig alla/n
fram til þess að ná sáttum. Ruglingur gær-
dagsins er liðinn hjá, í dag muntu afkasta
miklu.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú ert mikilvægur partur af hópi og
hefur vald til þess að hafa umtalsverð áhrif á
aðstæður. Minntu þig bara á, hvers vegna þú
ert að eltast við þín háleitu markmið.
Á laugardaginn birtist þessivísnagáta eftir séra Svein Vík-
ing:
Himni á má svartan sjá,
seinlegt verk að greiða ‘ann.
Ungafæða er sagður sá.
Sjómenn stundum veiða ‘ann.
Hjörtur Hjálmarsson á Flateyri
átti þessa lausn:
Skýjaflókum fylgir rok.
Flóka kennum við í ull.
Í eggi er flóki og lúðulok,
líka er flóki og mesta gull.
Helgi R. Einarsson ræður gátuna
þannig:
Hátt má flóka á himni sjá,
hart er flóka að greiða,
flókinn unga metta má,
menn og flókann veiða.
Gaman væri að fá nýjar gátur
sendar, en meðan svo er ekki kem-
ur hér enn ein gátan eftir Svein
Víking:
Soltinn hann um fjöllin fer.
Falskur þetta heiti ber.
Í þorskhausnum er sagður sá.
Sérstök skák er kennd við þá.
Karlinn á Laugaveginum hringdi
í mig í vikunni. Hann var ennþá í
Hveragerði og orðinn þreyttur á
veðrinu. Hann hafði skroppið niður
á Eyrarbakka og lýsingarnar voru
ekki fallegar:
Af sjó voru strókar upp stignir,
steypiregn, samt ekki lygnir.
Það er hvínandi rok
og fjúkandi fok
og rignir og rignir og rignir!
En maturinn, – er hann ekki góð-
ur? spurði ég og hann svaraði:
Baunir og brauð í hvert mál
hér borðar hver einasta sál
en alls ekki ket.
En ertur ég ét
og auðvitað rófur og kál.
Síðan fór karlinn út í eftirlæt-
isumræðuefni sitt, nefnilega pólitík
Ég sagði honum að mér litist ekki á
nýjustu skoðanakannanir á fylgi
flokkanna í borgarstjórnarkosning-
unum í vor. Hann skellti í góm og
sagði:
Ég sá hann upp Laugaveg lalla
í loðfeld, – og heilsaði varla.
Það var rauðbirkinn kjálkinn.
Hann var daufur í dálkinn.
Og Degi er tekið að halla.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Það er margur flókinn og
karlinn hefur sitt að segja
Í klípu
„EFTIR AÐ HAFA FARIÐ YFIR ALLAR
TÖLUR ER ÉG VARFÆRNISLEGA
TÆKIFÆRISSINNAÐUR.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„HEFURÐU GÓMAÐ EINHVERJA
MORÐINGJA NÝLEGA?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að vita að þið eigið
alltaf hvort annað að.
ÁHÆTTU-
FJÁRFESTAR
EHF.
LÖ
GG
A
ÞAÐ ER MJÖG MIKILVÆGT AÐ BYRJA
HJÓNABANDIÐ Á GÓÐUM NÓTUM.
SVO ÞÚ SKALT LÁTA
EIGINMANNINN KAUPA HANDA
ÞÉR GOTT PÍANÓ!
EF ÞÚ HELDUR AÐ ÉG KASTI HONUM
TIL BAKA ER ÞIG AÐ DREYMA!Takk og aftur takk, elskulegi veg-farandi sem hjálpaði ungri og
ljóshærðri konu að skipta um dekk á
Breiðholtsbrautinni í upphafi vik-
unnar. Jább, Víkverji er kvenmaður í
þetta skiptið, en öðrum einkunn-
arorðum Víkverja verður sleppt í
þetta skipti.
Framdekkið hvellsprakk og hljóðið
eftir því, líktist járnvír að slitna; „piij-
áng“. En þá að því sem öllu máli
skiptir – sjálfum dekkjaskiptunum.
Eftir að Víkverji stoppaði bílinn og
lagði honum á frárein, vippaði hann
sér fimlega út úr bílnum og reif upp
allt sem við átti að éta; aukadekk og
tjakk.
x x x
Á meðan Víkverji byrjaði að bisavið þetta, rjóður í vöngum af ein-
skærri verkgleði í hjarta raulaði
hann laglínurnar með Grýlunum: „Er
meiriháttar mál að skipta um dekk“
(reyndar er þrennra dyra Corollan
hans ekki átján hjóla trukkur líkt og
sungið er um í laginu. En tilfinningin
er oft svipuð, því hún er bæði með
heila sex gíra og gefur frá sér hljóð –
pípir – þegar rekið er í bakkgír eins
og um stóran trukk sé að ræða). Að
auki fór í gegnum hausinn á Vík-
verja: þetta er létt verk og löð-
urmannlegt.
x x x
Þrátt fyrir þennan augljósa gorgeirskaut upp kollinum: „Hvort átti
aftur að losa rærnar áður en bílnum
er lyft upp eða eftir og í hvora átt-
ina?“ Þá var gripið til þess ráðs að
sveifla veiðihárunum, bæði bráhárum
sem og haddi. Ekki var bitið strax á
agnið, þannig að þrautalendingin
varð sú að hringt var í betri helming-
inn og hann beðinn um að koma og
bjarga konu í neyð út í vegkanti.
x x x
En sem betur fer þá eru til hjálp-samir samferðamenn og einn
vaskur karlmaður kom til aðstoðar.
Hins vegar var Víkverji ekki alveg
nógu ánægður með sig að geta ekki
klórað sig fram úr þessu sjálfur. Því
hann gefur sig út fyrir að geta gert
allt sjálfur. En nú kann hann réttu
handbrögðin, verður hamrammur
næst og sveiflar hvorki hári né síma.
víkverji@mbl.is
Víkverji
Trúr er Guð sem hefur kallað ykkur til
samfélags við son sinn Jesú Krist,
Drottin vorn.
(Fyrra Korintubréf 1:9)