Morgunblaðið - 29.03.2014, Page 52
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Arthur Russell var bandarísk-ur tónlistarmaður sem gatmeð engu móti fest sig við
eitthvað eitt er tónlistargyðjan
seiddi hann til sín (sem hún gerði
af miklum krafti allt hans líf).
Russell var menntaður selló- og
píanóleikari en samdi og lék
diskótónlist, nútíma- og tilrauna-
tónlist, popp- og rokk og þjóðlaga-
tónlist. Hann átti það til að hræra
þessu saman líka og er hann starf-
aði var hann ljósárum á undan
sinni samtíð, staðreynd sem verð-
ur æ ljósari eftir því sem árin líða.
Russell skapaði „tónlist“ og
gerði engan greinarmun á flokk-
unum, skiptingu og pólitík sem oft
þvælist fyrir hreinleika list-
arinnar. Sköpunarmáttur Russell
var ótvíræður en að sama skapi
var honum svo gott sem ókleift að
klára nokkurn skapaðan hlut og
koma honum út til fólksins. Hin
síðustu ár hefur áhugi á tónlist
Russell aukist til muna og fer út-
gáfufyrirtækið Audika Records
fremst í flokki þegar kemur að því
að miðla henni til fjöldans.
Bergmál
Í vikunni kom platan World
Of Echo (upprunalega gefin út
1986) út á tvöföldum vínyl. Sú
plata, sem var eina breiðskífan
sem Russell tókst að koma út á
meðan hann var á lífi (hann dó úr
alnæmi árið 1992, fertugur að
aldri), hefur verið endurútgefin
mörgum sinnum og þó að þar gefi
að líta aðeins eina hlið á ferli hans
er um hreint magnaðan grip að
ræða. Tónlistin samanstendur af
rödd, sellói og tölvuhljóðum og
-töktum og er dáleiðandi, ber með
sér næmi og fegurð sem erfitt er
að lýsa. Tímalaust verk, eins og
má reyndar segja yfirhöfuð um
list Russell.
Audika Records var stofnað
sérstaklega til að koma tónlist
Russell út en hann átti yfir 1000
Fjölsnærð fegurð
Einstakur Russell átti erfitt með að einblína á eitthvað eitt í tónlist sinni.
spólur með tónlist á er hann lést.
Fyrsta platan sem Audika gaf út
var Calling Out Of Context (2004)
og svo fylgdu fyrsta endurútgáfan
á World Of Echo (2005) og First
Thought Best Thought (2006, til-
raunakennd nútímatónlist sem
hann samdi á fyrri hluta ferilsins).
Einnig má nefna Love Is Overtak-
ing Me (2008) en hún inniheldur
„hefðbundnustu“ smíðar Russell;
kántrí- og þjóðlagaskotin popplög.
Fingraför höfundarins eru mjög
svo greinileg þrátt fyrir venjuleg-
heit smíðanna.
Russell er mikið lofaður fyrir
framlag sitt til diskótónlistarinnar
en þau lög komu flest út á 12
tommum, oft undir öðru nafni. So-
ul Jazz Records gaf út plötuna
The World of Arthur Russell árið
2004 sem gefur sæmilega innsýn í
þann þátt en einnig er platan 24-
>24 Music, sem kom út undir
nafni Dinosaur L, til en hún var
endurútgefin árið 2007 en kom út
upprunalega árið 1982 á merki
Russell sjálfs, Sleeping Bag Re-
cords. Margt er þó enn nið-
urgrafið og ærlegur safnkassi, í
samstarfi þeirra aðila sem eiga
réttinn á diskósmíðum Russell,
væri afar vel þeginn.
Ást
Vínylendurútgáfur á Love Is
Overtaking Me og Calling Out Of
Context, fyrir tilstilli Audika, eru
væntanlegar á næstu mánuðum og
ljóst að markaðurinn er hvergi
nærri mettur. Heimildarmynd um
feril þessa merka manns, Wild
Combination, var þá frumsýnd ár-
ið 2008. Myndin er næm og falleg
(eiginlega eins og tónlist Russell)
og færir áhorfandann nær ein-
hvers konar skilningi á flóknu
gangverki þessa einstaka lista-
manns.
»Hin síðustu ár hef-ur áhugi á tónlist
Russell aukist til muna
og fer útgáfufyrirtækið
Audika Records fremst
í flokki þegar kemur
að því að miðla henni
til fjöldans.
Endurútgáfa á verkum Arthur Russell í fullum gangi
Áhrif þessa margbrotna listamanns sjaldan meiri en nú
52 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MARS 2014
Söfn • Setur • Sýningar
LISTASAFN ÍSLANDS
Síðasta sýningarhelgi á Torgi: Ástarsaga á HönnunarMars
Þriðjudagur 1. apríl kl. 12:
Hádegisfyrirlestur um skautbúning Alexandrínu Danadrottningar
Betur sjá augu – Ljósmyndun íslenskra kvenna 1872-2013 í Myndasal
Silfur Íslands í Bogasal
Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár - grunnsýning
Skemmtilegir ratleikir
Safnbúð og kaffihús
Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200,
www.thodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn
Opið alla daga nema mánudaga í Þjóðminjasafni 11-17.
Listasafn Reykjanesbæjar
MANNLEGAR VÍDDIR
Sefán Boulter og Stephen L. Stephen
sýna mannamyndir
15. mars – 27. apríl
Bátasafn Gríms Karlssonar
Byggðasafn Reykjanesbæjar
Opið virka daga 12-17,
helgar 13-17.
Aðgangur ókeypis
reykjanesbaer.is/listasafn
FORM, LITUR, LÍKAMI: HÁSPENNA / LÍFSHÆTTA
Magnús Kjartansson 7.3.-11.5. 2014
GERSEMAR - DÝR Í BÚRI 8.11. - 11.5. 2013
SAFNBÚÐ - Listrænar gjafavörur
KAFFISTOFA - Ljúffengar veitingar
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is
Opið daglega kl. 11-17, lokað mánudaga.
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is
Sýningin, HÚSAFELL ÁSGRÍMS. Opið sunnudaga kl. 14-17.
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is
Sýningin, BÖRN AÐ LEIK. Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-17
Shop Show
Samtíma hönnun
Sunnudag 30. mars kl. 15
Samtal við hönnuði, Brynhildur
Pálsdóttir og Róshildur Jónsdóttir
Hnallþóra í sólinni
Dieter Roth
Hádegistónleikar
Þriðjudag 1. apríl kl. 12
Bylgja Dís Gunnarsdóttir sópran
Opið 12-17, fim. 12-21, lokað þri.
www.hafnarborg.is, sími 585 5790
Aðgangur ókeypis
Verið
velkomin
Opið kl. 12-17. Lokað mánud.
Verslunin Kraum í anddyri
Garðatorg 1, Garðabær
www.honnunarsafn.is
Ný sýning
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
Staðsetning nefnist einkasýning
Þórarins Blöndal sem stendur yfir
um helgina í 002 Galleríi að Þúfu-
barði 17 í Hafnarfirði. Sýningin er
sú fyrsta af átta myndlistarvið-
burðum á fyrstu Myndlistarhátíð
002 Gallerís, sem stendur frá 28.
mars til 1. júní 2014.
„Þórarinn sýnir nokkur þrívíð
verk og ljósmyndir sem eru unnin í
nánu samhengi við sýningarrými
002 Gallerís, en það er íbúð og
vinnustofa myndlistarmannsins
Birgis Sigurðssonar. Þetta óvenju-
lega gallerí hefur verið starfrækt
um þriggja ára skeið í ósköp venju-
legri kjallaraíbúð í blokk í Hafn-
arfirði, en nú í fyrsta sinn flytur
Birgir ekki allt sitt hafurtask úr
íbúðinni fyrir sýningu í galleríinu,“
segir um sýninguna.
Sýningin er opin í dag og á morg-
un milli kl. 14-17. Aðgangur er
ókeypis og eru allir hjartanlega vel-
komnir. Allar nánari upplýsingar
um dagskrá Myndlistarhátiðar 002
Gallerís á Facebook síðu 002 Gall-
eríis.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Heimahús Þórarinn Blöndal og
Birgir Sigurðsson að Þúfubarði 17.
Þórarinn Blöndal
sýnir í 002 Galleríi
Framtíð óperuflutnings á Íslandi
verður til umræðu á málþingi sem
fram fer í Kaldalóni Hörpu í dag milli
kl. 11 og 14.
„Frummælendur munu fjalla lít-
illega um stöðuna í dag og framtíð-
arsýn fyrir listformið. Ætlunin er að
skapa góðan grunn fyrir pallborðs-
umræður sem verða að loknu hléi.
Málþinginu er ætlað að gefa okkur
kost á að skoða stöðu Íslensku óp-
erunnar í núverandi umhverfi og ekki
síður að fá mynd af grasrótar-
starfsemi óperufólks á Íslandi. Bæði
málefnin eru mikilvæg og staðan á
margan hátt erfið. Ólíklegt er að öll
vandamál leysist með einu málþingi.
Hinsvegar hefur kastljósinu nú verið
beint að óperulistforminu við góðan
árangur uppfærslunnar á óperunni
Ragnheiði og ástæða til að nýta sér
þann meðbyr,“ segir m.a. í tilkynn-
ingu.
Frummælendur eru Gunnar Guð-
björnsson frá Félagi íslenskra tónlist-
armanna – klassískri deild FÍH, Stef-
án Baldursson óperustjóri Íslensku
óperunnar, Hildigunnur Rúnars-
dóttir frá Tónskáldafélagi Íslands,
Hörn Hrafnsdóttir frá Óp-hópnum,
Daníel Bjarnason tónskáld og hljóm-
sveitarstjóri, Garðar Cortes, fyrrum
óperustjóri, og Arnbjörg María Dani-
elsen sópransöngkona.
Þátttakendur í pallborðsumræðum
eru Magnús Ragnarsson, aðstoð-
armaður menntamálaráðherra, Arn-
björg María Danielsen, Daníel
Bjarnason, Halldór Guðmundsson,
forstjóri Hörpu, Loftur Erlingsson úr
stjórn Félags íslenskra söngkennara,
Júlíus Vífill Ingvarsson, stjórnar-
formaður Íslensku óperunnar, og
Arna Kristín Einarsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar
Íslands. Fundarstjóri er Margrét
Bóasdóttir, söngkona og kórstjóri.
Vinsæl Uppfærslan á Ragnheiði
hefur aldeilis fengið hljómgrunn
meðal landsmanna.
Málþing um framtíð
óperuflutnings
Sjónum verður beint að grasrótinni
Stephen Lárus Stephen leiðir gesti
um sýningu sína, sem nefnist Mann-
legar víddir, í Listasafni Reykjanes-
bæjar í dag kl. 14. Leiðsögnin fer
fram á ensku.
Í safninu sýnir einnig Stefán Bo-
ulter, en þeir hafa báðir sérhæft sig
í gerð mannamynda. Sýningarstjóri
er Aðalsteinn Ingólfsson.
„Yfirlýst markmið Stephens er
að koma á framfæri viðmóti fyr-
irsæta sinna, án þess að ganga of
nærri einkalífi þeirra,“ segir í til-
kynningu. Þess má geta að málverk
hans af Sólveigu Pétursdóttur, fv.
alþingismanni og forseta Alþingis,
vakti nokkurt umtal þegar það var
vígt fyrir tveimur árum. „Hér gefst
gullið tækifæri til að sjá saman
komin mörg helstu portrett Steph-
ens Lárusar hin síðari ár, en mörg
þeirra hafa hvergi verið til sýnis
opinberlega.“ Sýningin, sem stend-
ur til 27. apríl, er opin virka daga
kl. 12-17 og um helgar kl. 13-17.
Aðgangur ókeypis.
Leiðsögn í
Duushúsum
Portrett Ein mynda Stephens.