Morgunblaðið - 30.04.2014, Blaðsíða 25
MINNINGAR 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 2014
✝ Hulda Sig-urbjörnsdóttir
Knudsen fæddist í
Reykjavík 30. júní
1932. Hún lést á
Droplaugarstöðum
25. apríl 2014.
Hulda var dóttir
hjónanna Val-
gerðar Þórmunds-
dóttur frá Bæ í
Borgarfirði, f. 21.
september 1905, d.
25. október 1989,
og Sigurbjörns Lárussonar
Knudsen úr Stykkishólmi, f. 12.
maí 1908, d. 2. maí 1972. Sig-
urbjörn starfaði sem iðnverka-
maður en Valgerður var hús-
freyja og saumakona. Systkini
Huldu eru Unnur Knudsen, f.
1939, og Gylfi Knudsen, f. 1944.
Hinn 19. apríl 1952 giftist
Hulda Ásgeiri Daníel Einarssyni
sölumanni, f. 14. ágúst 1929, d.
23. mars 1973. Foreldrar hans
voru hjónin Ásta Málfríður
Bjarnadóttir og Einar Stef-
ánsson múrarameistari. Börn
Huldu og Ásgeirs eru: 1) Ómar,
f. 1951. Börn Ómars eru a) Ólöf
Huld, f. 1973, móðir hennar er
María Stefánsdóttir, f. 1951. b)
Arnar Hlynur, f. 1974, móðir
Þór, f. 1981, og c) Helga Rún, f.
1991. Síðar hóf Hulda sambúð
með Jakobi Þór Óskarssyni
leigubílstjóra, f. 22. júlí 1924, d.
23. október 2013. Foreldrar
hans voru Óskar Tryggvi Þor-
leifsson og Elín Jóhanna Guð-
mundsdóttir. Dóttir Huldu og
Jakobs er: 5) Ásgerður Ósk, f.
1976, eiginmaður hennar er
Stefán Kjærnested, f. 1971, börn
þeirra eru a) Viktoría Ósk, f.
2003, b) Kristófer Ingi, f. 2004,
c) Arndís Ósk, f. 2008, og d)
Hrafnhildur Ósk, f. 2012.
Hulda ólst upp í Verka-
mannabústöðunum við Hring-
braut og síðar í Mávahlíð 3 þeg-
ar fjölskylda hennar fluttist
þangað. Hulda og Ásgeir hófu
búskap í Skipasundi 29 og
bjuggu þar um árabil. Síðar
fluttust þau í íbúð í nýbyggðu
fjölbýlishúsi í Skipholti 43 þar
sem Hulda bjó lengst af eða þar
til heilsu hennar hrakaði og hún
fluttist á Droplaugarstaði. Á sín-
um yngri árum starfaði Hulda
m.a. við bókband hjá Bókfelli hf.
Hún annaðist börn og heimili á
meðan börnin voru að vaxa úr
grasi en eftir að Ásgeir varð
óvinnufær vegna veikinda starf-
aði hún m.a. í verksmiðjunni
Hrein. Lengst af starfaði hún í
prentsmiðju Morgunblaðsins.
Útför Huldu fer fram frá
Dómkirkjunni í Reykjavík í dag,
30. apríl 2014, og hefst athöfnin
kl. 13.
hans er Björg Sig-
urlaug Guðmunds-
dóttir, f. 1951.
Fyrrverandi eig-
inkona Ómars er
Elísabet María Har-
aldsdóttir, f. 1949,
synir þeirra eru c)
Ómar Sigurbjörn, f.
1989, og d) Einar
Auðólfur, f. 1991. 2)
Sigurbjörn f. 1952.
Fyrrverandi eig-
inkona Sigurbjörns
er María Helga Guðmunds-
dóttir, f. 1953, dóttir þeirra er a)
Íris Huld, f. 1972. Núverandi
eiginkona Sigurbjörns er Sigríð-
ur Þorvarðardóttir, f. 1953,
börn þeirra eru b) Þorvarður, f.
1976, og c) Hulda, f. 1981. 3)
Málfríður, f. 1955, eiginmaður
hennar er Bragi Sigurður Bald-
ursson, f. 1952, börn þeirra eru
a) Baldur Geir, f. 1976, b) Hulda
Guðrún, f. 1978, og c) Svanhild-
ur Anna, f. 1981. Dóttir Braga
frá fyrra sambandi er Berglind,
f. 1974, móðir hennar er Guð-
björg Gunnarsdóttir. 4) Val-
gerður, f. 1958, eiginmaður
hennar er Jón Rafnar Þórð-
arson, f. 1956, börn þeirra eru a)
Regína Björk, f. 1979, b) Ásgeir
Elsku mamma. Þá er komið að
hinstu kveðju, stund sem er svo
raunveruleg en jafnframt svo
óraunveruleg á sama tíma.
Þú varst mikil fjölskyldukona
og naust þín best í faðmi þinna
nánustu, sem voru nú ófáir og allt-
af var mikil gleði á hjalla þegar
fjölskyldan hittist í Skipholtinu.
Þú varst svo miklum og góðum
mannkostum gædd, þú varst
skemmtileg með eindæmum og
mesti húmoristi sem ég þekki, þú
vildir alltaf allt fyrir alla gera,
varst hörkudugleg og ósérhlífin,
þolinmóð, ástrík, hlý og umfram
allt góð kona.
Þú varst líknin, móðir mín,
og mildin þín
studdi mig fyrsta fetið.
(Örn Arnarson)
Fyrstu æviárin ólstu upp í Vest-
urbænum, þú minntist þess oft við
mig að hafa verið kölluð stelpan í
Verkó með mislitu augun. Þú byrj-
aðir afar ung að vinna, varst sjálf-
stæð og dugleg og gast því
snemma létt undir með fjölskyldu
þinni. Ég veit að lífið fór ekki alltaf
mjúkum höndum um þig mamma
mín en þú tókst á við erfiðleikana
af þrautseigju og styrk.
Það þarf ekkert að orðlengja
um hlutina, þú varst einfaldlega
besta mamma í öllum heiminum.
Og fyrir það hef ég alltaf upplifað
mig svo óendanlega lánsama. Ég
verð þér ævinlega þakklát fyrir
allar stundirnar sem við áttum
saman, en á sama tíma finn ég að
nú eftir að þú kvaddir verður aldr-
ei neitt aftur eins og það var.
Ég veit að það hefur verið tekið
vel á móti þér hinum megin, af
pabba, Ásgeiri, ömmu Völu og afa
Bjössa. Ég sé þig í anda um-
kringda fólkinu þínu sem kvaddi á
undan þér, þú ert í essinu þínu og
reytir af þér brandarana eins og
þér einni er lagið. Mér finnst loka-
lína Davíðs Stefánssonar í Kvæð-
inu um fuglana eiga svo vel við:
Nú fagna englar Guðs í Paradís.
Þín elskandi dóttir,
Ásgerður Ósk.
Elsku Hulda. Þú hefur reynst
mér ljúf tengdamamma og öll okk-
ar samskipti verið góð frá fyrstu
kynnum. Ekki grunaði mig að þín
síðasta heimsókn til okkar á Sól-
vallagötuna hefði verið á föstudag-
inn langa. Þú naust þess að vera
umkringd fjölskyldunni og fylgj-
ast með afkomendum þínum. Þú
varst alltaf svo ljúf og góð við okk-
ur öll. Þú hafðir frábæra svarta
kímnigáfu og hefðir getað séð fyrir
þér sem uppistandari ef þú hefðir
kosið það. Ég þakka þér kærlega
fyrir að hafa alltaf verið svo góð við
barnabörnin og ég veit að þau
sakna ömmu sinnar mikið.
Hvíl í friði.
Þinn tengdasonur,
Stefán.
Elsku amma, með mislitu aug-
un og einstakt skopskynið. Ég
kveð þig með miklum söknuði. Ég
veit að þú vissir hvað mér þótti
vænt um þig og ég vona að þú hafir
einnig vitað hvað þú varst mér
mikil fyrirmynd. Þú varst eldklár,
dugleg og fórst þínar eigin leiðir.
Það var töggur í þér. Þú varst svo
skemmtileg og fyndin, svo hlý og
góð. Þegar við hittumst hjá
mömmu annan í páskum vorum
við að spjalla um hvað þú ættir
orðið marga afkomendur og þér
fannst það svo ótrúlegt, við höfð-
um ekki einu sinni almennilega
tölu á því. Enda mynda börnin þín,
barnabörnin, barnabarnabörnin
og barnabarnabarnabarnið stóran
hóp sem gaman er að tilheyra. Ég
er svo stolt af því að vera komin af
kjarnakonu eins og þér og vona að
ég búi yfir þó ekki væri nema broti
af þínum kostum. Ég veit að það
verður vel tekið á móti þér á næsta
áfangastað.
Þín nafna,
Hulda Guðrún.
Jæja, elsku amma mín. Þá er
komið að kveðjustund. Stund sem
maður trúir vart að sé runnin upp.
„En svona er víst lífið,“ eitthvað
sem þú hefðir og hefur sagt við
mann í gegnum tíðina. Fyrir mér
varst þú algjör nagli og eiginlega
bara algjör hetja, hvernig þú barst
þig að í lífinu og fórst að hlutunum.
Í seinni tíð, eftir að ég varð eldri og
þroskaðri og fór oftar í heimsókn
bæði í Skipholtið góða og á Drop-
laugarstaði, þá lærði ég ýmislegt
um þig; hvernig það var hérna í
gamla daga, hvað þú varst ótrú-
lega dugleg kona, þegar stríðið
stóð sem hæst og langafi var í
heimavarnarliðinu og þurfti að
skipa fólkinu inn er flugvélarnar
flugu yfir, þetta fannst mér allt svo
ómetanlegt að heyra og fræðast
um með þér og afa.
Þú varst svo ótrúlega fyndin
manneskja, amma mín, ég get ekki
lagt meiri áherslu á það, með svo
fágaðan og kaldhæðinn húmor að
þú náðir alltaf að láta mann veltast
um af hlátri í hverri heimsókn. Það
eru svo margir góðir gullmolarnir
sem þú hefur sagt í gegnum tíðina.
Þegar ég var yngri spurðu vinir
mínir hvort ég væri að fara til
Andrésar Andar vídeó-ömmu, af
því að þú áttir endalaust til af
Andrésar Andar-blöðum og ennþá
meira af vídeóspólum, í seinni tíð
spurðu þeir hvort ég væri að fara í
heimsókn til ömmu fyndnu, af því
að þú varst svo skemmtileg og góð
og ég hafði svo gaman af þér og að
segja sögur af þér. Svo risastór
karakter!
Ég gleymi aldrei þeim stundum
þegar maður var hjá þér í pössun
eða heimsókn, ég hlakkaði alltaf
svo mikið til. Það var bara alltaf
svo gott að koma, alltaf varst þú
búin að vippa í pönnukökur, ef við
systkinin vorum hjá þér þá var öllu
skipt jafnt og bróðurlega milli okk-
ar, popp fyrir popp, þú leyfðir
manni líka stundum að horfa á
bannaðar myndir. Horfði á Ókind-
ina með þér þegar ég var ungur,
ásamt fullt af fleiri myndum, en
aldrei varð maður samt hræddur
hjá þér. Maður var bara öruggur í
mjúkum faðmi þínum.
Í minni seinustu heimsókn til
þín áður en þú veiktist, sem var
nokkrum dögum áður en það skall
á, heimsókn sem ég er svo ánægð-
ur með. Það lá svo vel á þér, eins
og alltaf bara og það var svo gam-
an hjá okkur, spjölluðum um ým-
islegt, hlógum, horfðum á einn
Simpson-þátt saman. Ég spurði
þig hvort þér liði ekki ágætlega
bara hérna á Droplaugarstöðum,
hvort það væri eitthvað sem þig
vantaði, jú sagðir þú, þér leið bara
vel, en þú saknaðir afa og fannst
skrítið stundum að vita af öðrum í
herberginu hans, en sagðir líka að
þú vissir alveg af honum í þessu
herbergi og að hann væri að fylgj-
ast með þér.
Elsku amma mín, nú ert þú hjá
körlunum þínum sem þú elskaðir
og ert að fylgjast með okkur. Öll-
um okkar sem þótti svo vænt um
þig, og það var ekkert smá mikið af
fólki sem elskaði þig og dáði. Enda
mikill meistari.
Mun sakna þín mikið, amma
mín, þú verður alltaf ein af mínum
uppáhaldsmanneskjum í þessu lífi.
Ásgeir Þór Jónsson.
Ég mun alltaf sakna ömmu
Huldu mjög mikið og það er sárt
að hún er farin. Ég tel alla heppna
sem kynntust henni og ég er svo
heppin að hún er amma mín.
Margar af mínum æskuminning-
um gerast í Skipholtinu hjá ömmu
og afa því þar var svo spennandi að
vera. Það var alltaf jafn gaman hjá
ömmu og afa, það var alltaf hægt
að finna sér eitthvað að gera í
Skipholtinu við að annaðhvort
horfa aftur og aftur á sömu VHS-
spólurnar, teikna á stóru Morgun-
blaðsblöðin, skoða Andrésar and-
ar-blöð eða hlaupa í hringi eftir
munstrinu á teppinu þeirra svo
eitthvað sé nefnt.
Þegar ég er úti í búð eru margir
hlutir eins og ilmir og sætindi sem
minna mig á ömmu og Skipholtið.
Mér leið alltaf svo vel þegar ég
kom í heimsókn til ömmu og afa að
ég sofnaði í næstum hvert einasta
sinn þó ætlunin væri bara að kíkja
í smá kaffi með mömmu minni.
Amma var svo góð að manni
hlýnaði í kringum hana. Amma
Hulda var fyndnasta og skemmti-
legasta manneskja sem ég hef á
ævi minni kynnst og ég kom alltaf
heim með harðsperrur í maganum
og kinnunum af hlátri þegar ég var
búin að hitta hana. Það var fátt
skemmtilegra en að sitja með
henni í matarboði og hún var að
gretta sig yfir sögum. Ég hef alltaf
sagt að amma bjó til húmorinn og
ég var alltaf jafn spennt að hitta
hana og hlæja með henni. Ég hef
oft hugsað út í það að ef við hefðum
verið jafnaldrar hefðum við verið
bestu vinkonur því hún var svo
skemmtileg, þá hefði ég líka verið
svo heppin að fá að þekkja hana
lengur en ég er þakklát fyrir
hverja mínútu sem ég eyddi með
henni. Minningar um hana munu
gleðja mig alla ævi.
Sakna þín og elska þig af öllu
mínu hjarta,
Helga Rún Jónsdóttir.
Elsku góða og mjúka amma
mín.
Ég kveð þig með sorg í hjarta
en umfram allt með virðingu og
þakklæti.
Takk fyrir allar góðu stundirn-
ar, takk fyrir ferðalögin, takk fyrir
matarboðin, takk fyrir spjallið
okkar og takk fyrir að hlusta og
vera til staðar.
Ég vil líka þakka þér fyrir allan
hláturinn og gleðina, ég á svo
sannarlega eftir að sakna svarta
húmorsins þíns, hann var alveg
einstakur.
Ég ætla ekki að hafa þetta
lengra, ég gæti skrifað endalaust
um þig og allar góðu minningarnar
sem þér tengjast en ég veit að þú
vissir hvað mér þótti vænt um þig
og ég veit hvað þér þótti vænt um
mig.
Ég kveð því að sinni með þökk
fyrir allt.
Þitt ömmubarn,
Svanhildur Anna.
Amma Hulda var ein skemmti-
legasta, fyndnasta og kaldhæð-
nasta amma sem fyrirfannst þótt
víða væri leitað. Húmoristi og
snillingur eru orð sem oft voru
sögð í sömu setningu og amma
Hulda. Amma sá vel um sína með
pönnsum, kandís og ballerínukexi
og ekkert toppaði að fá að gista hjá
ömmu þar sem maður fékk að
horfa á myndir sem maður fékk
ekki að horfa á heima hjá mömmu
og pabba og til að tryggja frið á
milli okkar systkina og frænd-
systkina taldi hún hvert poppkorn
ofan í skálarnar okkar svo ekki
væri hægt að metast um hver hefði
nú fengið mest eða minnst. Já,
amma passaði sko upp á sína og
hafði ríka réttlætiskennd, það eru
ekki allar ömmur sem keyra niður
gamla kærasta manns í Hagkaup
með kerrunni sinni sem hefnd fyr-
ir að hafa valdið barnabarninu sínu
ástarsorg.
Amma hafði einstaka mann-
eskju að geyma og ég er svo glöð í
hjarta mínu að börnin mín hafi líka
fengið að kynnast þessari stór-
merkilegu konu og fá að leika á
stofugólfinu í Skipholtinu með dót-
ið sem ég fékk að leika mér með
þegar ég var lítil og fá kandís og
kex og sitja í eldhúskróknum og
spjalla um hitt og þetta. Allar
stundirnar í eldhúskróknum hjá
ömmu eru frábærar og yndislegar
minningar sem ég mun varðveita
að eilífu. Ekki má svo gleyma
„Andrésar Andar-kompunni“ sem
var reyndar bara fatahengi sem
innangengt var í en fyrir okkur
barnabörnunum hafði þetta að
geyma einn mesta fjársjóð ömmu,
nefnilega nokkra metra af Andr-
ésblöðum. Stundum tók ég ekki
einu sinni blöðin með mér fram
heldur sökkti mér í lesturinn bara
inni í fatahenginu, enda var þar
líka hiti í gólfinu og einkar notalegt
að vera og stökkva inn í heim
Andabæjar svo tímum skipti.
Amma Hulda og afi Jakob voru
líka einstakt sett. Þau voru mjög
samheldin og gerðu allt saman,
ferðuðust til að mynda mikið inn-
anlands og þá þótti þeim skemmti-
legast að keyra norður og eyða
smátíma þar á sumrin. Amma var
einstaklega bílhrædd allt sitt líf en
einum ökumanni treysti hún vel og
það var hann afi, enda leigubíl-
stjóri til margra ára og þótti þeim
skemmtilegt taka styttri og lengri
bíltúra saman. Bílhrædda konan
hafði samt alla tíð mikinn áhuga á
bílum svoleiðis að hún fylgdist
mikið með hvaða tegundir voru á
veginum og spurði oft um tegundir
á bílum og velti fyrir sér hvort
þetta væri ný tegund. Eins sam-
heldin og þau voru þótti henni
ömmu nú oft gaman að gera grín
að afa og skjóta á hann góðlátlega
enda eins og áður sagði mikill
húmoristi. Eitt sinn bað hún afa að
fjarlægja göngugrindina sína þeg-
ar við Hekla Björk dóttir mín vor-
um í heimsókn hjá þeim svo hann
myndi nú ekki hræða barnið og
svo hló hún.
Fyrir nokkrum árum fóru for-
eldrar mínir norður eitt sumarið
með gamla settið í afturstætinu.
Afi sofnaði nú reyndar þegar kom-
ið var ekki lengra en upp á Kjal-
arnes en amma fylgdist með sveit-
inni og bílunum og spjallaði á
meðan. Þegar foreldrar mínir
spurðu þau svo hvort þau myndu
ekki vilja koma með þeim í dags-
ferð út í Hrísey leist afa strax vel á
það en amma tók ekki eins vel í það
og sagði að afi hefði nú ekkert að
gera við það, hann hefði farið
þangað áður, á síldarárunum um
1960! Þetta var alveg klassísk
amma. Já, allt fram á það síðasta
var amma hnyttin og nú síðast á
páskadag stakk hún upp á því við
hann pabba minn að þau þættust
vera sofandi í sófanum þegar
mamma væri loks tilbúin að skutla
henni heim, og það gerðu þau.
Síðustu dagarnir þínir amma
eru mér ómetanlegir þótt erfiðir
hafi verið. Að fá að halda í hönd
þína, nudda á þér fæturna, strjúka
þér um ennið og segja þér að ég
elska þig og heyra það til baka
mun ég geyma í hjarta mínu að ei-
lífu.
Regína Björk Jónsdóttir.
Jæja, þá er komið að kveðju-
stund, elsku amma mín. Það kem-
ur upp fullt af skemmtilegum
minningum frá því ég var yngri og
kom í heimsókn til ykkar Jakobs
afa í Skipholtið. Mér er minnis-
stæður bunkinn af Andrés-blöðun-
um sem voru inni í skápnum hjá
ykkur sem ég skoðaði alltaf þegar
ég kom í heimsókn, borðaði fíkju-
kex og drakk mjólkurglas á með-
an.
Þú hefur alla tíð verið hress, já-
kvæð og með skemmtilegan húm-
or sem þú hélst til seinasta dags.
Eins lengi og ég man eftir þá eydd-
ir þú áramótunum heima hjá
pabba, mömmu og okkur fjöl-
skyldunni, tókst þátt í áramóta-
gleðinni með áramótahattinn á
höfðinu og bros á vör.
Elsku Hulda amma, minningin
um þig mun alltaf lifa í hjarta
mínu. Kveðja,
Hulda.
Þá er komið að kveðjustund við
þig, elsku Hulda amma. Það hefði
verið óskandi að samverustundirn-
ar við þig hefðu getað verið fleiri
nú síðustu ár en vegalengdin okk-
ar á milli hamlaði því. Þó reyndum
við alltaf að líta í heimsókn til þín í
Skipholtið og nú síðustu árin á
Droplaugarstaði, ef við vorum á
ferðinni í Reykjavík.
Þrátt fyrir fáar samverustundir
undanfarin ár á ég fullt af hlýjum
og góðum minningum um þig,
elsku amma mín. Heimsóknirnar
til ykkar Jakobs afa í Skipholtið
skilja eftir sig svo margar hlýjar
og góðar minningar. Það sem kem-
ur strax upp í huga mér er bunk-
inn af Andrésar Andar-blöðum
sem við gengum alltaf í þegar við
komum í heimsókn þegar við vor-
um börn. Hin síðari ár þegar ég og
Eva komum í heimsókn með stelp-
urnar okkar voru þær svo spennt-
ar yfir því að koma í heimsókn til
ykkar í Skipholtið og fá að leika
sér með skólahúsið og skóhúsið
sem þið hélduð eftir af leikföng-
unum hennar Ásgerðar þegar hún
óx úr grasi. Einnig þótti okkur
gríðarlega vænt um þegar þið
komuð í heimsókn til okkar Evu
þegar við vorum nýflutt á Reyð-
arfjörð. Það að þið skylduð leggja
leið ykkar til okkar var okkur
mjög dýrmætt.
Andrúmsloftið heima hjá ykkur
var alltaf svo afslappað og gott að
við gátum setið og spjallað við ykk-
ur og stelpurnar dundað sér án
þess að liggja á að fara sem er
sjaldgæft nú til dags.
Elsku Hulda amma, nú hefur þú
fengið ró og vænti ég þess að end-
urfundir þínir og Jakobs afa hafi
verið góðir. Kveðja,
Þorvarður.
Þegar kæra Hulda mágkona er
kvödd er margs að minnast um
góða og hlýja konu og vináttu sem
aldrei bar skugga á. Minnisstætt
er þegar ég kom í mína fyrstu
heimsókn til hennar og Ásgeirs
eiginmanns hennar, ég litaðist um
á fallegu og smekklegu heimili
þeirra hjóna, en mér varð samt
starsýnt á mynd af síðskeggjuðum
manni með mikið keilulaga höfuð-
djásn og spurði í einfeldni minni
hvort þau væru með mynd af jóla-
sveini uppi á vegg. Mikið skamm-
aðist ég mín þegar þau sögðu mér
að þetta væri Baháúlláh, spámað-
ur Bahaja. Þá varð mér ljóst að ég
ætti aldeilis eftir að kynnast þessu
fólki betur. Hulda tók þessu vand-
ræðalega atviki með miklum gáska
og fjöri sem fylgdi henni alla tíð.
Nú kom í ljós að á þessu heimili
voru höfuðstöðvar Bahaja-trúar-
bragðanna og var Ásgeir forstöðu-
maður safnaðarins hér á landi, sá
um ýmsar athafnir þeirra og gifti
meira að segja skólasystur mína
og Sikileying í Árbæjarkirkju
hinni gömlu, sem olli töluverðu
fjaðrafoki og taugatitringi hér-
lendis.
Hulda var með eindæmum
gestrisin, hafði góða nærveru og
tók manni alltaf fagnandi, þess
vegna var alltaf gott að koma við
hjá henni í Skipholtinu. Börnin
fjögur og heimilið voru í forgangi
en mikinn skugga bar á þegar
veikindi Ásgeirs urðu þeim mikill
fjötur um fót og enduðu með and-
láti hans langt um aldur fram.
Hulda gafst ekki upp þrátt fyrir
þessa erfiðleika og nú kom aldeilis
í ljós þessi ótrúlegi kraftur og
seigla sem fylgdi henni allt frá
barnæsku, en mamma hennar tal-
aði svo oft um hve Hulda hafi verið
sterk í leikjunum við strákana í
verkó og meira að segja Guðmund-
ur Jaki hafi orðið að láta í minni
pokann fyrir henni.
Hulda átti góð ár í vændum eftir
andlát Ásgeirs, hún kynntist góð-
um manni, Jakobi Þór Óskarssyni,
og eignaðist með honum eina dótt-
ur. Þau ferðuðust mikið saman og
voru mjög nánir vinir, en Jakob
lést fyrir um hálfu ári. Ég vil
þakka samfylgdina og votta öllum
börnunum og fjölskyldum þeirra
samúð mína.
Minning þín er mér ei gleymd;
mína sál þú gladdir;
innst í hjarta hún er geymd,
þú heilsaðir mér og kvaddir.
(Káinn)
Guðrún
Kristjónsdóttir.
Hulda Sigurbjörns-
dóttir Knudsen
HINSTA KVEÐJA
Elsku amma.
Þú varst svo góð og
skemmtileg og við hefðum
ekki getað fengið betri
ömmu. Þú varst besta
amma í öllum heiminum.
Nú ertu komin til afa og
Nóa voffa.
Við söknum þín,
Viktoría, Kristófer,
Arndís og Hrafnhildur.