Morgunblaðið - 30.04.2014, Qupperneq 44
MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 120. DAGUR ÁRSINS 2014
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Málið komst upp á Facebook
2. Byrjaðir að taka niður …
3. 12 ára drengur kveikti eldinn …
4. Þvoðu þvott um miðja nótt
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Útilistaverk eftir Sigurð Guð-
mundsson, gjöf fyrirtækisins CCP til
Reykjavíkurborgar, verður afhjúpað í
dag kl. 17 á hafnarkantinum við Rast-
argötu í Vesturbugt, utan við höfuð-
stöðvar fyrirtækisins. Á myndinni
sést tölvuteikning af verki Sigurðar
sem ber titilinn Worlds Within a
World, eða Heimar í heimi.
Verk Sigurðar fyrir
CCP afhjúpað í dag
Meistaranemar
í listkennsludeild
LHÍ taka þátt í
Barnamenning-
arhátíð í Reykja-
vík, vinna með
nemendum í 6.
bekk Laugarnes-
skóla að mynd-
listar- og tónlist-
arverkefnum í Grasagarðinum í
Laugardal og leiða trúða-, grímu- og
söngleikjanámskeið í skólum og Æv-
intýrahöllinni í Iðnó. Þá stýra meist-
aranemarnir danssmiðju fyrir stráka í
samstarfi við JBS. Í dag verður opnuð
sýning á verkum grunnskólanema í
Grasagarðinum kl. 8.30 og 2. maí
verður sýndur afrakstur strákadans-
smiðjunnar í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Listkennslunemar
leiðbeina á hátíð
Í október næstkomandi verður
opnuð í samtímalistasafninu í Lyon í
Frakklandi viðamikil yf-
irlitssýning á verkum
Errós, sú fyrsta þar í
landi. Sýningarstjóri er
Danielle Kvaran og
koma verkin víða
að, fjölmörg frá
Listasafni Reykja-
víkur.
Yfirlitssýning Errós
í Frakklandi í haust
Á fimmtudag Hæg suðlæg eða breytileg átt og víða léttskýjað,
en suðaustan 5-10 á SV-horninu og skýjað með köflum. Hiti 3
til 10 stig, en allvíða næturfrost.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austlæg átt, víða 3-8 m/s, en 8-15 með
S-ströndinni og á annesjum nyrst. Skýjað að mestu og þurrt að
kalla, en bjartviðri NV-til og einnig fyrir vestan. Hiti allt að 10 stig.
VEÐUR
Haukar jöfnuðu metin í
rimmu sinni við erkifjend-
urna í FH í undanúrslitum Ís-
landsmóts karla í hand-
knattleik í gærkvöldi. Haukar
unnu FH-inga með þriggja
marka mun á heimavelli FH.
Hvort lið hefur unnið tvo
leiki. Þar af leiðandi verður
viðureign þeirra á heimavelli
Hauka á morgun hreinn úr-
slitaleikur um það hvort
leikur til úrslita um Ís-
landsmeistaratitilinn. »2
Hreinn úrslita-
leikur á morgun
Real Madríd leikur til úrslita um Evr-
ópumeistaratitilinn í knattspyrnu í
þrettánda skipti eftir að hafa farið
illa með ríkjandi meist-
ara, Bayern München, á
þeirra eigin heimavelli í
gærkvöld, 4:0. Spán-
verjarnir mæta
annaðhvort ná-
grönnum sínum í
Atlético Madríd
eða enska liðinu
Chelsea í úr-
slitaleiknum í
Lissabon 24.
maí, en þar
verður Cris-
tiano Ronaldo á
heimavelli. »1
Real Madríd á leið í
þrettánda úrslitaleikinn
Körfuboltamaðurinn Ragnar Nathan-
aelsson er genginn til liðs við sænska
félagið Sundsvall Dragons og segir
að Hlynur Bæringsson, leikmaður
liðsins, eigi mestan þátt í því en
Ragnar skrifaði undir samning aðeins
sólarhring eftir að sænska félagið
hafði samband. „Hlynur virðist hafa
haft mikinn sannfæringarkraft,“ seg-
ir Ragnar. »4
Þakkar Hlyni samning-
inn við Sundsvall
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Þetta er skemmtileg sýning með sýn
á ólík lönd og menningarheima,“ segir
Erlendur Pálsson á Sólheimum í
Grímsnesi. Hinn 6. maí verða Leik-
félag Sólheima og leikhópurinn Af-
anias frá Madrid á Spáni með sameig-
inlega sýningu í Þjóðleikhúsinu, sem
er afrakstur samstarfs sem hófst sl.
haust.
Afrakstur Evrópusamstarfs
Tildrög þessa eru að Sólheimar taka
þátt í Evrópusamstarfi ýmissa þeirra
sem sinna þjónustu við fatlað fólk, svo
sem stofnana og heimila í Portúgal,
Ítalíu og á Spáni. Aðilar í þessum lönd-
um geta sótt um stuðning í þróun-
arsjóði EFTA – rétt eins og Sól-
heimafólk gerði. Og útkoman er
fantafínt stykki.
Sólheimaleikhúsið hefur starfað í 84
ár og á heimsvísu á ekkert sambæri-
legt leikfélag jafnlanga sögu að baki.
Hefð er fyrir því að leikarar á Sól-
heimum frumsýni afrakstur vetrar-
starfs síns á sumardaginn fyrsta. Nú
er fólk ögn seinna á ferð. Þar kemur
Madridarsamstarfið til sögunnar, en
uppleggið í því er að Sólheimafólk
túlkar spænska menningu. Er þar
byggt á gamanleik eftir Federico
Garcia Lorca sem Edda Björgvins-
dóttir vann leikgerð úr og leikstýrir.
Unnið með Eddu
Það var listakonan Guðrún Erla
Geirsdóttir sem vann leikmyndina,
þar sem myndverk Sólheimafólks eru
áberandi. „Þetta er allt með þeim svip
sem er áberandi hér á staðnum,“ út-
skýrir Erlendur.
„Samstarfið við Eddu hefur verið
mjög skemmtilegt en hún hefur ein-
mitt starfað mikið með okkur í áranna
rás. Í þessu verki nýtir hún persónu
spænska höfundarins til að leiða verk-
ið áfram og dregur fram Sesselju Sig-
mundsdóttur, stofnanda Sólheima, þar
sem þau skiptast á skoðunum á kóm-
ískan hátt um verkið og skrif Lorca,“
segir Erlendur Pálsson um uppfærslu
síns fólks, sem verður á sviðinu fyrir
hlé. Eftir hlé stíga svo Spánverjarnir á
svið og túlka þá sitt sjónarhorn á ís-
lenska menningu. Uppfærsla hvors
hóps tekur um hálftíma.
Ímyndun og raunveruleiki
„Madridarfólkið kemur með dans-
verk sem túlkar sköpun íslenskrar
náttúru þar sem ímyndun og raun-
veruleiki eru á sviðinu. Í náttúru
landsins myndast átök en með tím-
anum mildast afl og mótast. Átök
breytast í bandalög, kraft og upp-
sprettur,“ segir Erlendur um sýn-
inguna sem verður á fjölunum á Sól-
heimum 1., 2. og 4. maí. Áðurnefnd
hátíðarsýning verður í Þjóðleikhúsinu
6. maí. Í lok júní endurgeldur Sól-
heimafólk svo heimsókn Spánverja og
fer til Madridar í júní þar sem verkin
verða sýnd í leikhúsi þar í borg.
Ísland leikur og Spánn dansar
Ólík lönd og
menning á leik-
sviði fatlaðs fólks
Ljósmynd/Pétur Thomsen
Leikur Spænsk menning er þema sýningar Sólheimaleikhússins og er nálgunin í verkinu mjög forvitnileg.
„Hingað að Sólheimum koma þúsundir gesta á
hverju sumri. Staðurinn sem slíkur hefur mikið að-
dráttarafl en ekki síður er fjölbreytt dagskráin
hér,“ segir Erlendur Pálsson um Menningarveislu
Sólheima sem verður í allt sumar. Í Sesseljuhúsi
verður sýning tengd rafbílamenningu og víðar á
staðnum eru minni sýningar um ýmis efni. Á laug-
ardögum verða fyrirlestrar um náttúru- eða sam-
félagsmál, svo sem um sjálfbært húsnæði, sveppa-
tínslu og fleira sem aftur tengist lífrænni ræktun
sem jafnan hefur verið meginstef alls starfs á Sól-
heimum.
Í Sólheimakirkju verða tónleikar líka alla laugardaga í sumar. Þar
koma ýmsir fram, s.s. Sólheimakórinn, Svavar Knútur, Valgeir Guð-
jónsson, Kristjana Stefánsdóttir söngkona, Lay Low og svo mætti
lengi áfram telja.
Sveppatínsla og tónleikar
MARGT Á BORÐUM Í MENNINGARVEISLU SÓLHEIMA Í SUMAR
Erlendur
Pálsson