Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.04.2014, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.4. 2014
Í
ár eru 400 ár frá því Hall-
grímur Pétursson fæddist og
af því tilefni er kominn út
bæklingur og bók eftir Karl
Sigurbjörnsson biskup um
mesta sálmaskáld þjóðarinnar.
„Hallgrímskirkja bað mig um að
taka sæti í undirbúningsnefnd um
viðburði minningarársins og þegar
við uppgötvuðum að það vantaði
bækling um Hallgrím á íslensku og
öðrum tungumálum var ég beðinn
um að skrifa hann sem ég gerði,“
segir Karl. „Þessi bæklingur er yf-
irlit yfir sögu og ævi Hallgríms og
áhrif hans í samtímanum og kemur
út á íslensku, ensku, þýsku og
dönsku. Jakob F. Ásgeirsson gaf
svo íslenska textann út í bókaformi
og bókin er ríkulega myndskreytt
eins og bæklingurinn.“
Fyrirheit og hrun
Þú hlýtur sem prestur og biskup
að hafa kynnst því vel hvað skáld-
skapur Hallgríms er þjóðinni kær.
„Hallgrímur Pétursson skipar
einstakan sess í trúarlífi okkar og
ég held að enginn einstaklingur
hafa haft jafn mikil áhrif á heila
þjóð og hann. Hann er risi í ís-
lenskri bókmenntasögu, og skáld-
skapur hans hefur haft gríðarlega
mikil áhrif. Svo hefur saga hans og
persóna verið þjóðinni afar nákom-
in og áleitin. Ég naut þeirrar gæfu
að vera prestur í Hallgrímskirkju
um langt árabil og var stöðugt að
hitta fólk sem lýsti fyrir mér þeim
áhrifum sem það hefði orðið fyrir
af Hallgrími, ekki bara skáldskap
hans heldur líka sögu hans. Hann
var vel ættaður, gáfaður og efnileg-
ur ungur maður, var á blússandi
framabraut þegar hann féll með
Guðríði og síðan hokra þau suður
með sjó í niðurlægingu og fátækt-
arbasli. Svo fær hann Saurbæ og
lifir sín bestu æviár þar og þar
semur hann þetta stórkostlega
verk sem eru Passíusálmarnir,
verður holdsveikur og lifir seinustu
árin í þeirri kröm og þjáningu. Ég
held að þjóðin sjái sjálfan sig að
einhverju leyti í þessum örlögum.
Hin glæstu fyrirheit og hið mikla
hrun, það er saga íslensku þjóð-
arinnar.“
Unglingurinn og sam-
hengið
Eldri kynslóðir lærðu ljóð utan að í
skóla og fyrir fermingu og þar á
meðal einhver brot úr Passíusálm-
unum. Þetta hlýtur að hafa verið
þín reynsla.
„Ég ólst upp við Passíusálmana
og fékk þá í tannfé og í ferming-
argjöf. Ég lærði snemma að hlusta
á þá með andakt, án þess að skilja
það sem í þeim stóð, en skynjaði þá
lotningu sem var borin fyrir þeim.
Eins og aðrir af minni kynslóð
lærði ég frá blautu barnsbeini alls
konar vísur, kvæði og sálma og
píndist undir því í skólanum að
læra skáldskap utan að eins og
manni var gert. Það var þvílíkur
fjársjóður sem manni var gefinn
með því að vera látinn læra ljóð ut-
an að. Aldrei hefði maður til dæmis
kynnst Grími Thomsen nema af því
að maður varð að læra Skúlaskeið í
skólanum. Þegar ég var ungur
prestur voru áberandi kenningar
um að ekki ætti að stunda ítroðslu,
eins og það var kallað að láta börn
og unglinga læra utan að texta, ljóð
og sálma. Ég varð móttækilegur
fyrir þessu og lagði þess vegna
ekki áherslu á að láta ferming-
arbörn læra kveðskap utan að. Ég
skammast mín fyrir að hafa kok-
gleypt þessa firru.
En af því að við minnumst á
fermingar þá er merkilegt að
hugsa til þess að þrátt fyrir allt
sem sagt er og tuðað um kirkjuna
þá er ennþá verið að ferma þús-
undir unglinga og á myndum af
fermingarbörnum sést að þau eru
með Sálmabókina í hendinni.
Sálmabókin veitir innsýn í andlega
menningu Vesturlanda, elsti sálm-
urinn þar er frá fjórðu öld og er
eftir Ambrósíus og elsta kvæðið á
norrænni tungu sem sungið er enn
í dag er „Heyr himna smiður“ frá
byrjun 13. aldar og síðan eru þarna
sálmar frá öllum tímum bókmennta
og trúarsögunnar allt til okkar
dags. Þarna er að finna samhengi
sem nær yfir langt tímabil og teng-
ir saman kynslóðirnar. Ungling-
urinn fær þetta samhengi í hend-
urnar og það er ekki svo lítið. Mér
finnst það stórkostlegt. Við verðum
að gæta þess vel að þessi siður
haldist.“
Passíusálmunum smyglað
til Ungverjalands
Það er fallegur siður að lesa Pass-
íusálmana í Hallgrímskirkju og víð-
ar á föstudaginn langa. Þetta er
merki um gríðarlegar vinsældir
sem eiga sér varla fordæmi.
„Þegar ég var ungur voru Pass-
íusálmarnir lesnir í Hallgríms-
kirkju alla daga föstunnar en svo
Kristin trú
er alltaf í
fleirtölu
KARL SIGURBJÖRNSSON BISKUP RÆÐIR UM PASSÍUSÁLM-
ANA OG HALLGRÍM PÉTURSSON, PÁSKANA OG KRISTNA
TRÚ SEM HANN SEGIR VERA SAMFÉLAGSLEGT FYRIRBÆRI.
HANN VARAR VIÐ ÞVÍ AÐ HIÐ TRÚARLEGA SÉ ÞVINGAÐ
UNDIR YFIRBORÐIÐ EÐA ÞAGGAÐ NIÐUR.
Kolbrún Bergþórsdóttir kolla@mbl.is
Svipmynd
AUKIN ÞJÓNUSTA
VIÐ EIGENDUR SKODA
• Bílson er sérhæft og vottað þjónustuverkstæði sem
uppfyllir allar ströngustu kröfur Skoda.
• Fullkomin forgreiningarstöð þar sem greina má flest
allt um ástand bílsins og gæði.
• Bílson hefur gæðavottun Bílgreinasambandsins með gæðaúttekt frá BSI á Íslandi auk
starfsleyfis til endurskoðunar frá Samgöngustofu.
Við leitumst við að vera samstíga því besta í Evrópu.
Komið, sjáið og sannfærist.
Kletthálsi 9 • Sími 568 1090
- V E R K S T Æ Ð I Ð -