Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.04.2014, Qupperneq 25

Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.04.2014, Qupperneq 25
Á þeim tólf árum sem ÍSÍ hefur staðið fyrir átakinu Hjólað í vinn- una hafa orðið til margar skemmtilegar sögur af þátttak- endum og til eru dæmi um að þátttaka geti haft áhrif á fasteigna- kaup og búferlaflutninga. „Ég kann mjög góða sögu af einum keppanda í átakinu. Eiginkona hans hafði lengi reynt að fá hann til þess að skoða þann möguleika að flytja úr einu af eldri hverfum borgarinnar í eitt úthverfanna. Hún sýndi honum reglulega myndir af álitlegum húsum í út- hverfinu en hann hafði ekki áhuga. Þá kom að því að hann tók þátt í Hjólað í vinnuna í fyrsta skipti eftir að konan gaf honum hjól. Honum fannst erfitt að hjóla til að byrja með en hafði strax gaman af því að taka þátt og fyllt- ist fljótt keppnisanda. Þegar hann fór að stúdera keppnina tók hann eftir því að margir vinnufélagarnir náðu að hjóla miklu lengri vega- lengdir þar sem þeir bjuggu lengra frá vinnustaðnum. Líkaði honum sú staðreynd illa. Þá sendi hann konunni tölvupóst um það hvort þau ættu ekki að skoða eitt af þessum húsum sem hún hefði sýnt honum myndir af. Úr varð að þau fluttu í úthverfið,“ segir Kristín Lilja og hlær. Fjölmargir kjósa að hjóla í vinnuna allan ársins hring en leggja bílnum. Morgunblaðið/Kristinn Þátttakan hafði áhrif á fasteignakaup 20.4. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25 S veinn Arnar Davíðsson, körfuknattleiksmaður í Snæfelli, er vígalegur á velli með mikið skegg og fjölmörg húðflúr. Sveinn Arnar og félagar eru komnir í sumarfrí eftir að hafa tapað fyrir KR í átta liða úrslitum í úrslitakeppni Dominos-deildar karla. Hversu oft æfir þú á viku? Sex körfuboltaæfingar í viku og aukaskotæfingar og lyftingaæfingar. Reyni að fara þrisvar í viku, tvisvar á dag, að skjóta aukalega og lyfta en næ því ekki alltaf vegna vinnu. Hvernig æfir þú? Ég er á 6-7 körfuboltaæfingum í viku þar sem ég er með öllu liðinu, svo eru það skotæfingar þar sem við í Snæfelli erum svo heppnir að hafa skotvél í íþróttahúsinu, með henni nær maður 500-700 skotum á engum tíma. Algjör snilld. Svo lyfti ég og notast við æf- ingar sem ég var í hjá einkaþjálfara í sumar. Henta slíkar æfingar fyrir alla? Ég myndi segja að svona æfingar hentuðu öllum og bara betra að byrja að æfa sem mest sem fyrst. Ég byrjaði ekki nægilega ungur að æfa svona mikið en ég er að reyna að vinna það upp núna. Hver er lyk- illinn að góðum ár- angri? Lykill- inn að góðum ár- angri er að vinna eins vel í sjálfum sér og maður getur og bæta sinn leik til þess að hjálpa lið- inu. Það er ekki bara vinnan í íþrótta- salnum sem skilar sér, maður verður líka að hafa hausinn í lagi. Líður þér illa ef þú færð ekki reglulega útrás fyrir hreyfiþörfina? Ég verð að hreyfa mig reglulega og halda því í vissri rútínu hreinlega bara til þess að halda geðheilsunni á réttum stað. Ég hef verið það mikið í íþróttum í gegnum tíðina að ég þekki ekkert annað en að æfa nánast á hverjum degi. Maður slappar mun betur af ef maður fer fyrst aðeins í ræktina og rífur í lóðin. Hvað er það lengsta sem hefur liðið á milli æfinga hjá þér? Ég man það nú ekki alveg, ætli það sé ekki síðasta sumar þegar ég skrapp til útlanda í tíu daga. Það var mjög kærkomið frí þar sem ég var búinn að æfa tvisvar á dag flesta dagana fyrir ferðina. Ertu almennt meðvitaður um mataræðið? Þegar kemur að mataræði er ég ekki besta fyr- irmyndin; ég borða nákvæmlega það sem mig langar í og ég borða mikið, en ég er samt alveg meðvit- aður um mataræðið og borða hollan mat með öllu góðgætinu sem ég borða. Hvað borðarðu til að halda þér í formi? Ég borða allt- af hafragraut á í vinnunni og prótein eftir æfingar. Ég læt mér nægja Hleðslu – ég er ekkert að hrista mér ein- hver búst og svona. Hvaða óhollustu ertu veikur fyrir? Ég er rosalega mik- ill hlaupkall. Félagar mínir segja allir að ég sé með skelfilegan smekk á nammi. Hvaða gildi hefur hreyfing og líkamsrækt fyrir þig? Bara einfaldlega hjálpar mér að halda mínu striki í líf- inu; ekki vera að fara út á einhverja braut sem ég svo ræð ekki við. Hjálpar mér líka að sjá fram á veginn og vita hvað bíður mín næst. Hvað eru algeng mistök hjá fólki við æfingar? Bara að gera æfingar vitlaust, fá ekki einhvern sem veit út á hvað þetta geng- ur til að kenna manni að gera hlut- ina rétt. Það getur skipt sköpum, þá sérstaklega í rækt- inni, til þess að koma í veg fyrir meiðsli. Hver er erfiðasti mótherjinn á ferl- inum? Justin Shouse, hann er ótrúlega lunkinn og skemmti- legur leikmaður sem þorir að taka af skarið þegar mikið ligg- ur við. Hver er besti samherjinn? Ég get eiginlega ekki gert upp á milli Íslend- inganna, við erum allir svo góðir vinir, búnir að spila saman svo lengi. Snæ- fellsliðið í heild myndi ég segja. Hver er fyrirmynd þín? Fyrirmyndin mín er Hlynur Bæringsson, mágur minn. Mér finnst gott að hafa hann sem fyrirmynd þar sem ég get fylgst vel með honum og leitað ráða hjá honum. Hver er besti íþróttamaður allra tíma? Ég held að ég verði að segja Jordan, hann var svo svaka- lega mikill íþróttamaður. En Lebron James er á hraðri leið að stela þeim titli að mínu mati. Skemmtileg saga/uppákoma frá ferlinum? Það var þegar ég var að keppa með Skallagrími á móti KR og heyrði í stúkunni 4 … 3 … 2 … 1 Ég man að ég leit á klukkuna um leið og ég heyrði fjóra og svo skaut ég boltanum yfir allan völlinn og það sprakk allt úr hlátri svo ég leit aftur á klukkuna og þá var 41 sekúnda eftir af hálfleiknum. En auðvitað hló maður bara að þessu. Skilaboð að lokum? Æfðu meira en þú nennir, þá nærðu árangri. KEMPA VIKUNNAR SVEINN ARNAR DAVÍÐSSON Æfa sem mest sem fyrst M or gu nb lað ið /Ó m ar Nú þegar hjól, hlaupahjól, hjólaskautar og fleira til er tekið fram er mikilvægt að fara yfir öryggisatriði og athuga hvort allir hjálmar og hlífar eru í lagi. Hjálmur getur komið í veg fyrir 79% alvarlegra höf- uðáverka. Fara þarf yfir hvort hjálmar barna eru heilir og passi. Öryggisatriði fyrir vorið*Peningar skipta mig engumáli. Við vitum öll að góðheilsa er miklu mikilvægari. Keanu Reeves einstakt eitthvað alveg STOFNAÐ1987 | S k i p h o l t 5 0 S í m i 5 8 1 4 0 2 0 | w w w . g a l l e r i l i s t . i s VA XTALAUS M ál ve rk : A u ð u r Ó la fs d ó tt ir Ú r v a l e i n s t a k r a m á l v e r k a o g l i s t m u n a e f t i r í s l e n s k a l i s t a m e n n breytingar á ýmsum umferð- aræðum borgarinnar þar sem gert er ráð fyrir hjólreiðafólki. Þær Sigríður og Kristín eru sannfærðar um að ÍSÍ eigi sinn þátt í þessari þróun. Þrýstingur skapast á valkosti í samgöngum „Á þessum tólf árum hefur hjólamenningin breyst til muna og mun fleiri farnir að hjóla reglulega og allt árið um kring. Í fyrra var örlítil fækkun þátt- takenda í átakinu sjálfu vegna slæmra veðurskilyrða en maður sá engu að síður mikinn fjölda fólks nota hjólið sem farartæki. Átakið Hjólað í vinnuna hefur klárlega haft áhrif á þessa þró- un,“ segir Sigríður og Kristín bætir við að eftir þátttöku í átakinu komist það upp í vana hjá fólki að nota hjólið meira en áður. „Fyrstu samgöngu- samningarnir, á milli vinnuveit- enda og starfsfólks, komu 2009 eða 2010 ef ég man rétt. Síðan þá hafa fjölmörg fyrirtæki fylgt í kjölfarið og gert slíka samn- inga. Reykjavíkurborg setti auk þess fram tíu ára áætlun um hvernig hægt væri að breyta hjólreiðakerfinu í Reykjavík sem kallast Hjólreiðaátak Reykjavík- urborgar. „Nú síðast sáum við breytingar í Borgartúninu og brúin á Geirsnefi er nýleg. Skapast hefur þrýstingur á að í boði sé að nota annan sam- göngumáta en einkabílinn,“ út- skýrir Kristín.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.