Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.04.2014, Qupperneq 39

Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.04.2014, Qupperneq 39
1988 mætti Bubbi Morthens með myndbands- upptökuvél á tónleika Síðan skein sól. Vakti það gríðarlega athygli tónleikagesta enda voru mynd- bandsupptökuvélar ekki á hverju strái í þá daga. Tónlistargagnrýnandi Morgunblaðsins skrifaði: „Á þessu stigi er ekki vitað hvort Bubbi vill geta stúderað samkeppnina heima í stofu eða hvort hann er að safna saman sagnfræðiheimildum fyrir komandi kynslóðir, en svör óskast.“ Myndbandsupptökuvélin var mikil munaðar- vara enda var hún mjög dýr. Vélin fór að vera vin- sæl á heimilum landsmanna í kringum tíunda ára- tuginn. JVC, Sony og Hitachi þóttu gera góðar vélar sem gerðu frí og aðra mannfagnaði ódauð- lega. Eftir að litla spólan kom minnkuðu vélarnar til muna. Þá var hægt að taka upp á litla VHS- spólu, setja hana í þartilgerða stóra VHS-spólu og spila upptökuna fyrir vini og vandamenn heima í stofu. Handheldar myndbandsupptökuvélar hafa haldið ágætum vinsældum þótt flestir nýti sér snjallsímana í dag til að taka upp eftirminnileg augnablik. GAMLA GRÆJAN Myndbands- upptökuvélin JVC GR-D23 kom með MiniDV spólu árið 2004. Sony hi8 kom á markað 1991 og tók upp á litlar hliðrænar (analogue) spól- ur sem hægt var að setja í stærri VHS spólur og það- an í myndbandstæki. Hitachi FP-10r kom árið 1981 og gat tekið upp í lit. Hún var tvö kíló að þyngd. 20.4. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39 * Ef svo heldur fram sem horfir munmannkynið visna, nema kannski fing-urinn sem ýtir á skjáinn. Frank Lloyd Wright arkitekt Pixar-fyrirtækið var stofnað fyrir 28 árum og hefur rakað til sín 27 Óskarsverðlaunum og grætt meira en átta milljarða dollara fyrir mynd- ir sínar á þeim tíma. Kvikmynda- mógúllinn George Lucas stofnaði Pixar-fyrirtækið en það var Steve Jobs sem kom því til bjargar þegar Lucas vildi selja það til Microsoft. En Pixar byrjaði ekki sem kvik- myndafyrirtæki. Fyrirtækið byrjaði á að selja tölvubúnað. Til að sýna hvað tölvubúnaður þeirra gerði bjó John Lasseter, tölvuséní Pixar, til stuttmynd sem var tölvugerð og boltinn fór að rúlla. Stórfyrirtækin Listerine, Trident og Lifesavers fengu Pixar í lið með sér og bjuggu til tölvugerðar auglýsingar. Leikfangasaga var fyrsta kvik- myndin frá Pixar og var mikil pressa frá Disney um að hafa myndina með meiri tónlist. Viddi og Bósi ljósár sungu ekki nóg fyrir smekk Disney. Konungur ljónanna, Fríða og dýrið og Aladdín voru öll með tónlistarþema en Pixar sagði ein- faldlega nei. Skömmu eftir að Leikfangasaga var frumsýnd hittust hugmynda- smiðir myndarinnar, þeir Lasseter, Peter Docter, Joe Ranft og Andrew Stanton, í hádegisverði. Félagarnir hittust til að skála fyrir góðum árangri. Þegar hádegisverðurinn var búinn höfðu fjórar hugmyndir að nýjum myndum fæðst: Pöddulíf, Skrímsli hf., Nemó og Wall-e. TÖFF TÆKNISTAÐREYND Sagan á bak við Pixar Pítsubíllinn hefur komið fyrir í öllum myndum Pixar – meira að segja Brave. iPad hvarsemer,hvenærsemer Smáralind | Sími 512 1330 Opið Sunnudaga 13-18 MacBookAir Öflug, léttog ótrúleg rafhlaða Verð frá:169.990.- Verð frá:49.990.- TÆKNI ÁN LANDAMÆRA Mótið var haldið í níunda sinn í Teheran. Mörg glæsileg tilþrif sáust þetta árið. Vélmennafótbolti í Íran Hvít vélmenni frá Van Amsterdam- háskólanum unnu úrslitaleikinn 2:1. Vélmenni frá Parand Azad-háskólanum undirbýr sig að taka miðju í leik gegn háskólanum í Qazvin. AFP Íranskar skólastúlkur fylgjast með viðureign háskólanna í Teher- an og Qasvin Azad sem sá síðarnefndi vann 3:1. Þýska liðið Nao-Team HTWK frá Leipzig í Þýskalandi tapaði Van Amsterdam-háskólanum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.