Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.05.2014, Page 33

Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.05.2014, Page 33
25.5. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 33 Rannsóknir sýna að notkun sykurlauss Extra eykur munnvatnsframleiðslu, jafnar sýrustig, heldur tönnunum hreinum og stöðvar sýklaárásir á þær. Extraminnkar upptöku hitaeininga og dregur það úr streitu í amstri hversdagsins. Uppskriftin geymir um 100 litlar bollur 8 eggjahvítur 2 tsk. vanilluessens 500 g sykur 2 tsk. hvítvínsedik tsk. salt 2 msk. maísmjöl Hitið ofninn í 200°C. Eggjahvíturnar, sem best er að séu sem allra ferskastar, eru settar í skál ásamt van- illuessens og salti og þeyttar vel með rafmagnsþeytara. Bætið sykrinum út í smátt og smátt, 1 msk. í senn. Þeg- ar allur sykurinn er kominn út í og marensinn er glans- andi og stífur er ediki og maísmjöli hrært varlega saman við. Bökunarpappírsörk er lögð á bökunarplötu og litlar marenskökur formaður af kostgæfni. Sigurlaug reynir að hafa þær frekar litlar, fólk tekur eina og stingur upp í sig. Setjið kökurnar í ofninn, lækkið hitann í 150°C og bakið í um 30-35 mínútur (fer eftir stærð). Krem ½-1 l þeyttur rjómi nokkrar msk. af lemoncurdi, fer eftir smekk rifinn lime- eða sítrónubörkur kíwi, myntulauf og passionfræ eftir smekk Setjið lemoncurd í þeytan rjómann, setjið ofan á hverja pavlovubollu og skreytið með sítrónuberki, kiwi og passionfræjum eða öðru sem ykkur langar til. Pavlova tvíburanna 2 kg risarækjur þrjú box konfekttómatar, niðurskornir 6 hvítlauskrif, niðurskorin steinselja eftir smekk góð ólífuolía svart pasta eða venjulegt ef hitt fæst ekki Takið til stóra pönnu og steikið hvítlauk, steinselju og tóm- ata í góðri olíu þar til tómatarnir eru tilbúnir, mjúkir og heitir. Sjóðið pastað samkvæmt leiðbeiningum á pakkanum. Sigurlaug kaupir sínar rækjur ósoðnar í Kolaportinu. Rækjurnar fara út í tómatblönduna. Látið malla þar til rækjurnar eru fallega bleik- ar. Bætið pastanu út í og blandið vel saman. Stráið steinselju yf- ir og berið fram. Svart pasta með risarækjum Bláskel 1 kg bláskel 1 flaska þurrt hvítvín 4 laukar 2 púrrulaukar 6 hvítlauksgeirar steinselja eftir smekk, betra meira en minna Byrjið á því að skera laukinn gróft niður, saxið hvítlaukinn og steinseljuna. Steikið laukinn í góðri olíu, hellið skelinni út í pottinn, Sigurlaug mælir með skelinni frá Íslandsskel. Hellið hvítvíninu út í og setjið lok yfir og stráið steinselju loks yfir. Sig- urlaug notar djúpa pönnu með glerloki svo hún sjái þegar skelin opnar sig og þá er rétturinn tilbúinn. Gott er að bera franskar kartöflur fram með kræklingnum eða gott súrdeigsbrauð.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.