Morgunblaðið - 18.07.2014, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 18.07.2014, Blaðsíða 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. JÚLÍ 2014 dáðist að þessu þreki og þessari æðrulausu umhyggju fyrir öllum. Þannig tókst þú svo á við illvígan sjúkdóm og í þeirri langvinnu bar- áttu tókst þér að bæta umhyggju fyrir samfélaginu öllu við þitt stolta risastóra hjarta. Þjóðin fékk að fylgjast með þér í Ljósa- göngunni frá Hveragerði til Reykjavíkur og eins þegar þú safnaðir fyrir skjám handa lang- veikum börnum á líknardeildinni. Kæri vinur, við áttum margar góðar stundir saman og fyrir það er ég þakklátur. Síðustu árin tefldum við oft og lengi vel töldum við sigrana í því einvígi en við vor- um hættir að telja og síðasta skákin er búin í bili. Orðstír þinn lifir og lífsþróttur þinn og um- hyggja er okkur öllum lífsbót og til eftirbreytni. Ég vil minnast á og þakka starfsfólki líknardeildar fyrir kærleiksríka umönnun og hlýtt viðmót. Hugur minn er hjá Ingu, börn- unum þínum og barnabörnum, foreldrum og systur. Willum Þór Þórsson. Kynni okkar Sigga hófust þeg- ar hann kom til liðs við Hauka frá Þrótti árið 2000, með vini sínum, Willum Þór Þórssyni. Þá hafði hann tímabilið áður verið kallaður úr sumarfríi til að tryggja Þrótti áframhaldandi veru í 1. deild þar sem hann skoraði sigurmark Þróttar í lokaleiknum. Siggi kom inn í Haukahópinn með sína alkunnu nærveru, hvatti menn áfram, reif kjaft og sagði brandara og sögur. Ég tel að það að fá Sigga inn í liðið hafi á end- anum gert gæfumuninn fyrir vel- gengni liðsins. Fyrir utan ótrú- lega mikilvæg mörk á ögurstundu í leikjum þá var það keppnisskap- ið og sigurviljinn sem smitaði alla í kringum hann. Okkar samskipti héldu svo áfram eftir að ég fór að starfa fyrir Knattspyrnufélagið Þrótt sem má kalla okkar stórfjöl- skyldu og þar fylgdum við liðinu okkar upp og niður til skiptis úr úrvalsdeild. Það fyrsta sem kom upp í huga mér þegar ég frétti af andláti þínu var þegar við sátum saman í rútu á leið í leik gegn Hugin á Seyð- isfirði, í úrslitakeppni 3. deildar. Þú sagðir mér frá því að þú hafðir farið nokkru áður í stúdíó hjá Jóni vini þínum Ólafssyni og tekið upp lag fyrir Ingu konuna þína. Þú leyfðir mér síðan að hlusta á upp- tökuna sem þú varst með í spil- aranum. Þetta var lagið It must be love með Madness. Virkilega vel gert hjá þér og sýndi þig svo- lítið í hnotskurn og ást þína til Ingu. Það var þetta lag og þessi minning sem fyrst kom upp í huga mér. Allt þitt viðhorf í þessum löngu veikindum þínum hefur rækilega tryggt að minning þín mun lifa um langa tíð. Þegar þú vissir í hvað stefndi þá tekur þú upp á því að ganga frá Hveragerði til Reykjavíkur, til þess að hjálpa öðrum. Ég á ekki til önnur orð að lýsa því en It must be love. Ég vil að lokum fá að senda fjölskyldu þinni og nánustu vinum mínar innilegustu samúðarkveðj- ur. Hvíl í friði, kæri vinur. Þinn vinur, Helgi Sævarsson. Mamma kallaði þig aldrei ann- að en Sigga senter og margir þekktu þig aðeins undir því nafni. Enda spilaði ég aldrei með eins hreinræktuðum senter og þér, allt frá því við vorum smápollar, upp alla yngri flokka og svo í mörg ár með meistaraflokki í okk- ar ástkæra félagi Þrótti. Við urðum Íslandsmeistarar í 5. flokki 1975. Það ár spilaði ég senter með þér og voru það full- komlega kvótalausar veiðar – við mokuðum inn mörkum en það sem meira var, feður okkar tóku upp á því að greiða okkur fyrir hvert skorað mark. Er það fyrsti vísir að atvinnumennsku í Þrótti þótt sú þróun hafi í kjölfarið verið hæg og róleg. Eftir leiki var síðan farið út í sjoppu og gúffað í sig fyr- ir allan peninginn, enda voru eng- ir sérstakir nammidagar á þeim árum. Það er dálítið merkilegt þegar maður horfir nú um öxl og rifjar upp ferðasöguna hve mikill senter þú varst. Og þá á ég ekki bara við inni á fótboltavellinum, heldur í lífinu sjálfu. Það var alltaf stefnt fram á við – stiklað stórum skref- um fram þá velli sem á veginum urðu. Barátta þín við veikindin síðustu 10 árin er eitthvert besta dæmið um þetta. Þar var spilaður sóknarleikur allt þar til dómarinn flautaði leikinn loksins af eftir ótal framlengingar og vítaspyrnu- keppni. Æðruleysi, jákvæðni og framtakssemi var leiðarvísir hvers dags og gerði þetta okkur öllum, sem í kringum þig voru, svo miklu auðveldara að takast á við þetta með þér. Mér er sérstaklega minnis- stætt þegar þú komst á tímabili reglulega til mín á skrifstofuna til að fá lúpínuseyðið. Ég hafði þá ný- lega bragðbætt seyðið, en þú sýndir þeirri viðleitni enga virð- ingu svo ég varð að framleiða ákveðinn skammt fyrir þig án bragðefna – þetta var síðan tekið á stút og farið langt ofan í tveggja lítra flöskuna í einum teyg. Allt eins „original“ og maður- inn sjálfur. Þróttur hefur orðið stærri með þér, Siggi minn. Þrótturinn sem þú hefur sýnt í baráttu þinni er aðdáunarverður og okkur Þrótt- urum öllum leiðarvísir inn í fram- tíðina. Hvernig eigi að berjast við mótlæti og vinna eins marga sigra og mögulega geta verið í boði. Mig langar fyrir hönd okkar strákanna í Þrótti, sem vorum þér samferða í boltanum, að þakka þér fyrir öll mörkin innan vallar sem utan. Við sendum Ingu þinni og barnahópn- um innilegar samúðarkveðjur og geymum minningu um góðan dreng. Haukur Magnússon. Vinur minn og félagi, Siggi Hallvarðs, er fallinn frá. Sigga kynntist ég fyrst 1990 þegar ég var púpa í meistaraflokki Þróttar en hann stjarna liðsins sem maður var búinn að horfa á á vellinum og dást að og því merkilegt að vera byrjaður að æfa með honum. En Siggi tók manni vel eins og honum einum var lagið, enda skemmti- legur með eindæmum og góð manneskja sem var ekki í vand- ræðum með að kynnast fólki. Siggi var mikill markaskorari og var það allan sinn feril en hann þjálfaði líka með fínum árangri enda var hann tilbúinn til að leið- beina mönnum og gefa góð ráð. Sigga þekkti maður ekki öðruvísi en sem glaðværan mann sem gott var að vera með enda var alltaf gaman þegar hann var með okkur í Þrótti hvort sem það var á æfing- um eða í leikjum. Siggi var mikill Þróttari sem gerði mikið fyrir fé- lagið og mun nafn hans lifa í félag- inu um ókomna tíð. Kæri vinur, ég kveð þig með söknuði en minningarnar eru góð- ar, en það verður samt skrítið að geta ekki kallað þig með færeysku nöfnunum aftur, Högni og Súni, sem við bjuggum til á færeyska tímabilinu hér á Íslandi. En ég trúi því að þér líði vel á nýjum stað. Fjölskyldu Sigga sendi ég samúðarkveðjur. Páll Einarsson. Kveðja frá Knattspyrnu- sambandi Íslands Genginn er góður félagi, Sig- urður Hallvarðsson, markaskor- ari af Guðs náð. Ég minnist ófárra stunda á vellinum þar sem Siggi Hallvarðs skoraði og gerði út um leikinn, oft á einstaklega glæsileg- an hátt. Hann hafði einfaldlega þessa gáfu að skora mörk og þau urðu mörg á ferlinum. Sigurður er tíundi markahæsti leikmaður ís- lenskrar deildarkeppni í knatt- spyrnu frá upphafi. Það var einnig sérlega skemmtilegt að fylgjast með Sigga á fjölum Laugardals- hallar en þar lék hann manna best og raðaði inn mörkum til fjölda ára í Íslandsmótinu innanhúss í knattspyrnu. Hæfileikar Sigga til að koma skoti á mark úr hvaða færi sem var á litlum leikvelli komu þar bersýnilega í ljós og oft- ar en ekki lá boltinn í netinu. Siggi Hallvarðs var Þróttari inn að hjarta og í raun setti ég alltaf samasemmerki á milli Þróttar og Sigga. Þróttarar og knattspyrnuhreyfingin öll hafa misst góðan félaga en minningin um Sigga Hallvarðs mun lifa. Mörkin, sigrarnir og sanna Þrótt- argleðin gleymist ei – sem end- urspeglast svo fallega í Lifi Þrótt- ur! Knattspyrnuhreyfingin saknar góðs félaga sem lagði sitt af mörk- um fyrir okkar góðu íþrótt innan sem utan vallar. Ekki síst hin síð- ustu ár utan vallar með ein- stökum dugnaði og baráttu sem er okkur öllum til eftirbreytni. Við sendum fjölskyldu Sigga og vinum innilegar samúðar- kveðjur. Geir Þorsteinsson, formaður. Okkur langar í fáeinum orðum að minnast liðsfélaga okkar og vinar, Sigurðar Hallvarðssonar, sem fallinn er frá eftir hetjulega baráttu. Siggi Hallvarðs skipti yfir í Hauka árið 2000 og það reyndist gæfuspor fyrir félagið. Hann átti stóran þátt í því að við unnum 3. deildina það sumar og 2. deildina ári síðar eftir mörg ár án árang- urs. Siggi var einstakur maður, glettinn húmoristi og sterkur kar- akter sem hafði mikil áhrif á liðið. Siggi bjó yfir gríðarlegum sigur- vilja sem smitaði út frá sér og gerði líklega á endanum gæfu- muninn í árangri liðsins, ásamt mörkunum en Siggi hafði einstakt nef fyrir að skora – ósjaldan þeg- ar neyðin var mest, þegar næsta mark skipti sköpum. Við gleym- um því líklega seint þegar hann skoraði mark gegn Fjölni í undan- úrslitum 3. deildar sem nánast tryggði það að við færum upp um deild. Það var sem þungu fargi væri af okkur létt, markmiðið var í sjónmáli. Siggi var einnig léttur sem fjöður eftir markið og hljóp alla leið út að sundlauginni, nokk- urn spöl frá Fjölnisvellinum, til að fagna markinu. Það var honum líkt. Við minnumst Sigga af hlýhug en munum ekki aðeins mikilvægu mörkin heldur minnumst líka tryggðar hans og ósérhlífni, hár- beittrar kímnigáfu og traustrar vináttu. Siggi hafði sterk áhrif á okkur strákana og ekki grunaði okkur þá hversu víðtæk og djúp- stæð þau áhrif yrðu nokkrum ár- um síðar þegar hann hélt áfram að vera okkur sannur innblástur er hann barðist á öðrum vett- vangi, öllu erfiðari viðureignar. Siggi var baráttujaxl og sönn hetja sem tókst á við veikindi sín af æðruleysi og einstöku hug- rekki. Siggi var Siglfirðingur og Þróttari en okkur finnst við þó eiga svolítið í honum líka. Þó svo Siggi hafi aðeins leikið með okkur í tvö ár, og komið fram á seinni hluta ferilsins, þá var tilfinning okkar aldrei sú að hann nálgaðist það sem hvert annað verkefni. Siggi var samherji af heilum hug sem lagði sig alltaf allan fram fyr- ir hönd liðsins og liðsfélaga sinna. Eftir að Siggi hætti hélt hann áfram að koma á leiki, stóð í brekkunni í bláa kuldagallanum og hvatti okkur áfram. Hann var félagi okkar og góður vinur. Ef við hittum Sigga á förnum vegi mörgum árum síðar og heilsuðum honum með útrétta höndina þá bandaði hann henni bara í burtu, lagði frá sér hækjurnar og faðm- aði mann að sér. Þannig var Siggi. Þegar við yfirgefum þessa ver- öld þá skiljum við fátt eftir annað en það sem við gáfum af okkur á meðan við lifðum. Og það gerði Siggi, hann gaf meira en margir. Hann skilur eftir sig minningar um skemmtilegan félaga, ótrúleg- an keppnismann og einstaka manneskju. Siggi var okkur öllum hvatning til að gera betur og þannig minnumst við vinar okkar og samherja. Í leik fór hann fyrir liðinu með góðu fordæmi og stýrði síðan fagnaðarópunum eftir sig- urleiki á sinn einstaka hátt: „Var það ekki!?“ Jú, það var það svo sannarlega, Siggi minn. Við vottum fjölskyldu Sigga samúð okkar og óskum henni styrks í sinni sorg. Siggi, hvíldu þig nú hvar sem þú ert niðurkom- inn. Fyrir hönd félaga þinna í meistaraflokki Hauka 2000-2001, Darri Johansen. Nöfn Þróttar og Sigurðar H. Hallvarðssonar hafa verið og munu verða samofin um ókomna tíð. Óhætt er að segja að Siggi sé einn af dáðustu sonum félagsins. Þróttur naut hans bestu ára í bolt- anum, bæði sem leikmanns og eins eftir að ferlinum lauk. Siggi var fæddur á Siglufirði en fluttist ungur með foreldrum sín- um til Reykjavíkur. Foreldrar hans settust að í ört vaxandi hverfi sem í dag er kennt við Laugardal. Á malarvellinum inn við Sæviðarsund steig hann sín fyrstu spor á knattspyrnuvellin- um. Og það varð ekki aftur snúið, Þróttur varð stór hluti af lífi Sigga og Siggi varð stór hluti af Þrótti. Siggi hafði sannkallað mark- anef og hrelldi markmenn um árabil. Um leið var hann mikill leiðtogi innan sem utan vallar og sannkallaður grallari. Þó Siggi hafi lengst af leikið með Þrótti þá lék hann eitt tímabil með Hugin Seyðisfirði ásamt því að þjálfa lið- ið Fjölni og loks tvö tímabil með Haukum. Alls staðar þar sem Siggi kom við á sínum langa knattspyrnuferli er hans minnst með hlýhug. Fyrir um áratug greindist Siggi með heilaæxli. Með sömu eljunni og kraftinum sem hafði einkennt hann sem knattspyrnu- mann tókst honum að sigrast á veikindunum, þó aðeins tíma- bundið. Í erfiðleikum sínum var honum mikið í mun að hjálpa öðr- um eins og kom svo berlega í ljós þegar hann safnaði 8 milljónum króna fyrir endurhæfingar- og stuðningsmiðstöðina Ljósið. Siggi var okkur öllum mikil fyrirmynd í leik og starfi. Knattspyrnufélagið Þróttur sendir aðstandendum Sigga inni- legar samúðarkveðjur. Sigurlaugur Ingólfsson, formaður Knattspyrnu- félagsins Þróttar, f.h. aðalstjórnar félagsins. Í mínum augum var Sigurður Hallvarðsson eins og verðhlaupa- hestur sem sætti sig aldrei við að bíða lægri hlut. Hann var reistur á velli, stórstígur, eldfljótur og einbeittur, með markanef enda útsjónarsamur með eindæmum. Leið hans lá ekki til hliðar, heldur beint að markinu og fyrirstaðan var engin. Siggi var erfiður við- ureignar og málaði leikinn yfir- leitt sínum litum þótt hann léki fyrir liðsheildina. Fyrir mér hefur Siggi Hallvarðs ævinlega verið sendiherra Þróttar. Þegar ég hugsa um félagið kemur Siggi fyrst upp í hugann. Og hann var líka sendiherra manngæsku, hug- prýði og dugnaðar enda drengur- inn einstakur persónuleiki. Þótt Þróttarinn mikli, þessi elskandi faðir og eiginmaður, sé fallinn frá er hann engu að síður sigurvegari og skilur okkur eftir djúpt snortin yfir þeirri sýn sem hann hafði á lífið og því sem hann lagði á sig fyrir aðra. Fyrir hönd Valsmanna sem öttu kappi við Sigurð Hallvarðs- son og nutu vináttu hans utan vallar sendi ég fjölskyldu hans, ættingjum og vinum samúðar- kveðjur. Þorgrímur Þráinsson. ✝ Móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og systir, INGIBJÖRG BERGÞÓRSDÓTTIR frá Fljótstungu, lést laugardaginn 12. júlí. Jarðsungið verður frá Reykholti laugardaginn 19. júlí kl. 10.30. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Minningarsjóð Guðmundar Böðvarssonar, kt. 680379-0259, banki 0326-13-301487. Hjörtur B. Hjartarson, Helga Brynjólfsdóttir, Jónína M. Árnadóttir, Guðbjörn Sigvaldason, Þorsteinn Árnason, Pia Hesselvig, barnabörn, barnabarnabörn og systkini. ✝ Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar SIGURGEIRS SIGURÐSSONAR bónda, Lundarbrekku í Bárðardal, sem lést föstudaginn 27. júní og var jarðsettur laugardaginn 5. júlí. Hjördís Kristjánsdóttir, dætur, tengdasynir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær móðir mín, amma og langamma, ODDFRÍÐUR BJARNEY MAGNÚSDÓTTIR (Fríða), lést föstudaginn 11. júlí á Droplaugarstöðum. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á MS-félag Íslands. Ingibergur Hraundal, Þórir Jónsson Hraundal, Ragnheiður Kristinsdóttir, Fríða Bjarney Jónsdóttir, Jón Karl Helgason og barnabarnabörn. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og margföld amma, GERÐUR STURLAUGSDÓTTIR hvunndagshetja frá Múla í Ísafjarðardjúpi, löngum til heimilis að Hamraborg 32, Kópavogi, lést á hjúkrunarheimilinu Mörk laugardaginn 12. júlí. Útförin verður frá Kópavogskirkju mánudaginn 21. júlí kl. 15.00. Kristján, Sturlaugur, Arnar, Daðey, Rúnar, Guðlaug, Sigurborg og Þórunn Daðabörn. Tengdabörn og afkomendur. ✝ Ástkær systir okkar, GUÐBJÖRG GUÐJÓNSDÓTTIR (Stella), Litluvöllum 18, Grindavík, áður Höfn, Grindavík, er látin. Útförin fer fram frá Grindavíkurkirkju mánudaginn 21. júlí kl. 14.00. Guðmundur Guðjónsson, Pétur Guðjónsson, Jón Elli Guðjónsson. ✝ Ástkær eiginkona mín, dóttir, systir og mágkona, ÁSTRÍÐUR HAFDÍS GUÐLAUGSDÓTTIR GINSBERG, Dverghöfða 25, Hafnarfirði, lést á Landspítalanum miðvikudaginn 16. júlí. Útförin auglýst síðar. Heinz Dieter Ginsberg, Guðrún Jónsdóttir, Hilmar Guðlaugsson, Jóna Steinsdóttir, Kristín Guðlaugsdóttir, Aðalheiður Birna Gunnarsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.