Morgunblaðið - 18.07.2014, Qupperneq 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. JÚLÍ 2014
Guðni Páll Viktorsson er Vestfirðingur, frá Þingeyri. Hann sérum útflutningsdeildina hjá Össuri. „Ég kann vel að meta aðvinna hjá Össuri. Vinnuandinn er góður og starfið er
skemmtilegt og fjölbreytt.“
Guðni reri á kajak umhverfis Ísland í fyrra. Hann kynntist íþrótt-
inni fyrir fimm árum og nú er hún hans helsta áhugamál. „Ég er
alltaf á kafi í kajaknum. Núna er ég nýkominn úr tólf daga ferð um
Vestfirði. Ég fer oft heim til Vestfjarða á sumrin og fer með fólk í
kajakferðir. Kajakróður er frábært sport. Ég upplifi mikið frelsi því
hægt er að skoða staði sem fáir hafa farið á. Í sumar ætla ég þó að
hafa það rólegt og gott. Síðasta sumar var langt og strembið, þegar
ég reri umhverfis Ísland á þremur mánuðum.“
Afmælisdagurinn verður hefðbundinn hjá Guðna. „Afmælisdag-
urinn verður ekkert stærri dagur en venjulega. Ég fæ mér eitthvað
gott að borða um kvöldið, annars geri ég ráð fyrir að reyna að kom-
ast burt úr borginni yfir helgina í kajakferð.“
Guðni styður Fylki í íslenska boltanum. „Þegar ég er ekki á kajak,
þá sinni ég fjölskyldumálum og vinum. Ég er gamall fótboltastrákur
þannig að ég fylgist líka mikið með íslensku deildinni, enda á ég
marga vini sem eru ennþá í boltanum. Ég er Fylkismaður og vona að
þeir tryggi sæti sitt í deildinni sem fyrst.“ isb@mbl.is
Guðni Páll Viktorsson er 27 ára í dag
Kajakkempa „Kajakróður er frábært sport. Ég upplifi mikið frelsi
því hægt er að skoða staði sem fáir hafa farið á,“ segir Guðni.
Vestfirðingur og
kajakræðari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Hermann Hjart-
arson, frá Ísafirði,
verður áttræður á
morgun, laugar-
daginn 19. júlí. Af
því tilefni verður
opið hús á milli kl.
14-18 að heimili
hans, Hæðarseli 2, Reykjavík.
Allir hjartanlega velkomnir.
Árnað heilla
80 ára
Baldur Jóhanns-
son, Reykjavík,
einn stofnenda
Snarfara, er átt-
ræður í dag, 18.
júlí. Hann fagnar
afmælinu með
fjölskyldu sinni.
80 ára
Kópavogur Sóley Sigurdís fæddist
10. september 2013 kl. 8.59. Hún vó
3.670 g og var 49,5 cm löng. Foreldrar
hennar eru Katrín Steinarsdóttir og
Sigurður Halldórsson.
Nýir borgarar
Kópavogur Sunna Sigríður fæddist
14. október 2011 kl. 22.55. Hún vó
3.670 g og var 49 cm löng. Foreldrar
hennar eru Katrín Steinarsdóttir og
Sigurður Halldórsson.
J
óhanna Eyrún fæddist í
Keflavík 18.7. 1974 á af-
mælisdegi móðurömmu
sinnar. Því var kjörið að
skíra barnið í höfuðið á
henni. Jóhanna ólst upp á Laug-
arvatni, æfði og keppti í frjálsum
íþróttum frá sex ára aldri og fór oft í
Eyrarsveitina til ömmu og afa í föð-
urætt, að aðstoða við sauðburð og
hjálpa ömmu með vorverkin í garð-
inum: „Þar brallaði ég margt með
frænku minni og nöfnu. Við settum
upp veitingahús í stofunni, fórum í
nautaat í fjörunni með sérvöldum
skeljum og í sjóræningjaleik á þök-
um útihúsanna. Hjá afa fengum við
besta harðfisk í heimi og rúsínan í
pylsuendanum var að gefa heimaln-
ingunum pela.“
Fjölskylda Jóhönnu flutti til
Reykjavíkur þegar hún var sextán
ára. Hún fór í ML, var þar á heima-
vist og kynntist þar eiginmanninum,
Rafni Steinþórssyni. Að loknu stúd-
entsprófi tók hún eins árs frí frá
námi en hóf síðan nám í mat-
vælafræði við HÍ og lauk BS-prófi í
þeirri grein. Skömmu síðar fæddist
frumburðurinn, Sigurður Darri, en
aðeins tveimur mánuðum fyrr hafði
Jóhanna eignast systur, Kristjönu.
Þær mæðgurnar eyddu því haustinu
1998 saman í fæðingarorlofi.
Jóhanna stundaði skrifstofustörf
hjá rannsóknarstofu í næringar-
fræði, hóf síðan meistaranám í nær-
ingarfræði við HÍ, vann verkefnið úr
íslenskum gögnum en tók bóklegu
Jóhanna Eyrún Torfad., nýdoktor í lífheilsuvísindum við HÍ – 40 ára
Í Seljalandslaug sumarið 2013 Jóhanna Eyrún með börnunum, Sigurði Darra, Hildi Bellu og Kolbrúnu Lenu.
Rannsakar mataræði,
lífslíkur og heilsufar
Fjórar blómarósir Kristjana systir, Jóhanna, Hildur Bella og Kolbrún Lena.
D
U
X®
,D
U
XI
A
N
A®
an
d
Pa
sc
al
®
ar
e
re
gi
st
er
ed
tr
ad
em
ar
ks
ow
ne
d
by
D
U
X
D
es
ig
n
A
B
20
12
.
Við tökum svefninn alvarlega.
Hjá DUX® byggist góður svefn á háþróaðri tækni,
góðu handverki, stöðugum prófunum
og vandlega völdum efnum.
Þegar þú sefur í DUX rúmi hvílir líkami þinn
á meira en 85 ára rannsóknum og þróun.
duxiana.com
DUXIANA háþróaður svefnbúnaður / Ármúla 10 / 568 9950
Gæði og þægindi síðan 1926