Morgunblaðið - 19.07.2014, Qupperneq 10
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ 2014
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Þetta er fyrst og fremstmannræktarfélag ogskemmtifélag. En þetta erlíka trúfélag, við erum með
útskorna altaristöflu sem við mæt-
um ævinlega með á fundi. Trúin
gengur út á það að gleðin borgar sig.
Við erum aldrei svo gömul, hrum eða
aum að gleðin borgi sig ekki,“ segir
Húnvetningurinn Reynir Hjartar-
son, en hann er Æjatolla í Hryllings-
félaginu, félagsskap sem stofnaður
var í kringum samnefndan graðhest
fyrir um áratug. „Við erum að leika
okkur og á öllum fundum er bannað
að tala um hestinn. En þegar við
bjuggum til þennan félagsskap, þá
voru allskonar félög til um allskonar
stóðhesta og ef þeir urðu nothæfir
þá sundraðist allt út af peninga-
legum hagsmunum. Ég vildi því
stofna félag um stóðhest þar sem
hesturinn skipti engu máli, heldur
gleðskapurinn,“ segir Reynir sem
fyrir um áratug keypti í félagi við
nokkra vini sína hestfolaldið Hryll-
ing hjá elsta hrossaræktarbúi lands-
ins, Vallanesi. „Hryllingur var und-
an Illingi á Tóftum en Illingur varð
þetta ár efstur á landsmóti í dómi
fjögurra vetra fola, hann sló heims-
met. Ég vildi fá þetta hestfolald sem
til var undan Illingi og Dúkku, bestu
hryssu Valda í Vallanesi, en Valdi
vildi ekki selja mér það og sagði að
ég gæti fengið öll önnur folöld. En
ég sótti það fast og hann sagði að
lokum: „Það verður þá svo að vera.“
Geyma eistun úr Hryllingi
Reynir segir að snemma hafi
komið í ljós að Hryllingur reyndist
vera trunta og einskis virði. „En það
er mesta gæfa félagsins, því ef hann
hefði orðið góður þá hefði það sundr-
að félaginu. Við geltum hestinn og
kúlurnar undan honum eru geymdar
á Kjóastöðum í Biskupstungum þar
sem tveir félagsmenn búa, Hjalti og
Ása. Síðan gaf ég einum meðlimi
Hrylling í fimmtugsafmælisgjöf,
Siglfirðingnum Rúnari Marvinssyni,
til að hafa sem reiðhest fyrir börn.“
En þó að Hryllingur hafi ekki
reynst mikill gæðingur þá hefur
hann alið af sér einstakt afkvæmi.
„Litningur sonur hans er einstakur í
heiminum, hann er þrílitur, rauður
að framan, hvítur um sig miðjan og
brúnn að aftan. Þetta á ekki að vera
hægt, en talið er að fóstrin hafi verið
tvö og þau hafi runnið saman í eitt.“
Reynt að steypa mér af stóli
Reynir segir að engin stjórn sé í
Hryllingsfélaginu, heldur sé hann
alráður Æjatolla. „Vegna þess að
lýðræði er ofmetið stjórnarfar.
Heppilegasta stjórnarfarið er sann-
gjarnt einræði, við höfum sannreynt
það í þessu félagi. Um leið og við
setjum á lýðræði þá fara allskonar
pótintátar að halda að þeir ráði ein-
hverju. Það er heillavænlegra að
njóta lífsins undir góðu einræði. Oft
hefur verið reynt að steypa mér af
stóli því einn meðlimur hefur haft
brennandi áhuga á að ná tökum í fé-
laginu. Ég hef ævinlega stutt hann í
sínu framboði. En félagsmenn hafa
viljað hafa áfram þetta sanngjarna
einræði og kosið mig.“
Ekki fá allir inngöngu
Í félagið hefur safnast fólk alls-
staðar af landinu og Reynir segist
vera afar þakklátur fyrir að hafa
fengið að kynnast öllu því fólki, í
gleði og söng. „Þannig kynntist ég
einum mínum besta vini, Jóni á
Högnastöðum.“ Af einhverjum
ástæðum eru óvenju margir læknar í
félaginu, en þó hafa ekki allir læknar
komist inn sem viljað hafa. „Það er
ekkert auðvelt að komast í þetta fé-
lag og hluturinn í hestinum kostar
mismikið, eftir því hver býður í. Ég
hef neitað þó nokkuð mörgum um
inngöngu,“ segir Reynir og bætir við
að tvær ófrávíkjanlegar reglur gildi
um inngönguskilyrði í félagið. „Við-
komandi má ekki eiga heima á
Reykjavíkursvæðinu og þarf að
sanna að hann eða hún sé skemmti-
legri en í meðallagi.“
Ljóðin mega ekki vera leir
Reynir segir að árlega séu
haldnir vorfagnaðir í ólíkum lands-
hlutum, en félagsmenn hafi einnig
farið til Færeyja, Danmerkur og
Þýskalands til að halda fundi. Hesta-
ferðir og þorrablót eru líka fastir lið-
ir og um áramót hittist fólk á Grund
í Eyjafirði, þar sem lögheimili Hryll-
ings er. „Hryllingsfélagið er mjög
menningarlegt fyrirbæri, á öllum
samkomum okkar kemur fólk vel
undirbúið, ýmist með greinar, kvæði
eða vísur, en hagyrðingar eru marg-
ir góðir í félaginu. Síðan er lesið upp
og sagðar sögur, því það er margt
sagnafólk í þessu félagi. Menn koma
með heilu ljóðabálkana og það má
ekki vera leir, það verða að vera
stuðlar og höfuðstafir. Margir halda
að fundirnir okkar séu fyllerís-
samkomur, en svo er ekki. Það er
ekkert merkilegra í veröldinni en að
gleðja fólkið í kringum sig og þó við
látum stundum eins og fífl þá erum
við trú þeirri sannfæringu okkar að
lífsgleðin lengi lífið, en ef hún gerir
það ekki, þá gerir hún að minnsta
kosti það líf sem lifað var
skemmtilegra.“
Hryllingur er ljúf-
asti hestur í heimi
Hryllingsfélagið var á sínum tíma stofnað í kringum stóðhestinn Hrylling, en mesta
gæfa félagsins er sú að hann reyndist vera trunta. Svo segir Æjatolla Reynir Hjart-
arson, alráður leiðtogi félagsins, sem segir lýðræði ofmetið stjórnarfar. Gleðin er
ævinlega við völd í félaginu og vorfagnaðir, hestaferðir og þorrablót eru fastir liðir
og mikið lagt upp úr vísnagerð og söng. Bannað er að tala um hestinn á fundum.
Æjatolla Reynir eitursvalur á góðri stund í hestaferð. Einhver gæti spurt
hvort einvaldurinn sé spilliefni og eflaust er til vísa um það í félaginu.
Áning Sultuslakir Hryllingsfélagar í Ljósavatnsskarði í einni hestaferðinni.
Gleðistund Fátt er betra en hestaferð með góðum félögum á björtum degi.
200
300
400
1000 m
500 m
2000 m
1500 m
500
Heitasti staðurinn
í sumar!
Kvika
Verið velkomin í heimsókn í sumar!
Jarðvarmasýning er opin 10-17 alla daga.
Gagnvirk orkusýning er opin 10-17 alla daga.
!"#$%& ' ( )*#' Starfsfólk tekur á móti gestum alla
laugardaga í júlí, frá 13 til 17.
(+#,-./0 Leiðsögn um svæðið miðvikudaga
og laugardaga, frá 14 til 17.
www.landsvirkjun.is/heimsoknir
Á ferð um Norðurland er upplagt að heimsækja
+,+-./0123-3 1-3 45678 9: ;<==/0. >5/8.5<3?@=A/B
verkefni í vinnslu jarðvarma. Gestastofan er opin
alla daga og það er alltaf heitt á könnunni.