Morgunblaðið - 19.07.2014, Síða 19

Morgunblaðið - 19.07.2014, Síða 19
Morgunblaðið/Golli Egilsstaðir Sveitarfélagið kannar hvort breyta þurfi deiliskipulagi. Ingvar Smári Birgisson isb@mbl.is Björn Ingimarsson, bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs, segir að verið sé að skoða hvort nægileg þjónusta sé til staðar til að þjónusta olíuvinnslu á Drekasvæðinu. „Leyfishafar tveggja leyfa af þremur hafa ákveðið að horfa til Reyðarfjarðar og Egilsstað- ar varðandi þjónustu. Þá er fyrst og fremst verið að horfa til hafnarað- stöðunnar á Reyðarfirði og flugvall- arins á Egilsstöðum. Við erum að skoða hvort gera þurfi breytingar á skipulagsmálum til að uppfylla þær þarfir og kröfur sem verða gerðar til aðstöðunnar. Þá er einnig verið að skoða hvort nægileg þjónusta sé til í sveitarfélögunum tveimur fyrir starfsemina. Við höfum átt fundi með leyfishöfum og öðrum sem myndu þjónusta þessa aðila og við erum að skoða þessa hluti vel,“ segir Björn. Á fundi bæjarstjórnar Fljótsdals- héraðs kom fram að horft yrði til þess að sveitarfélögin stæðu fyrir ráðstefnu í haust með áherslu á verkefnið, auk samskipta við erlenda aðila sem þykja til þess fallnir að vera verkefninu til framdráttar. Komu best út í úttekt Mannvits Ekki hefur sérstaklega verið horft til hvaða áhrif olíuvinnsla hefði á fólksfjölgun á Egilsstöðum. „Við höf- um ekki sérstaklega horft til mögu- legrar fólksfjölgunar, en ljóst er að ef farið verður út í olíuvinnslu mun það hafa mikil áhrif á uppbyggingu á Austurlandi og Norðausturlandi. Úttekt var gerð á nokkrum stöð- um á landinu, þar sem svæði voru metin út frá alhliða þjónustu og stað- setningu. Í þeirri úttekt komu Reyð- arfjörður og Egilsstaðir best út með 92,2 stig af 100. Hérna er mjög öflug þjónustustarfsemi, bæði í kringum vinnslu og uppbyggingu álversins og Kárahnjúkavirkjunar og við búum vel að því,“ segir Björn. Samkeppni hefur verið milli sveit- arfélaga um að verða þjónustumið- stöðvar fyrir mögulega olíuvinnslu á Drekasvæðinu, en ljóst er að mikil tækifæri eru til uppbyggingar fyrir þjónustumiðstöðvar olíuvinnslu, líkt og gerðist í olíubænum Stavanger í Noregi. Morgunblaðið/Golli Reyðarfjörður Verið er að skoða möguleika á að bæta hafnaraðstöðuna. Undirbúa bæina fyrir olíuna á Drekasvæðinu  Hafnaraðstaða í Reyðarfirði og flugvöllur á Egilsstöðum FRÉTTIR 19Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ 2014 ÞYKKSKORIÐ BEIKON Þykkt og bragðmikið fyrir þá sem vilja kröftugt beikon. Gæðavara úr völdu svínafille, matarmiklar og ljúffengar sneiðar. HEFUR ÞÚ STERKAR BEIKONTILFINNINGAR? Prófaðu þykkskorna beikonið frá SS. Þykkt og bragðmikið Gott á grillið eða pönnuna Sérvalið svínafille 100% íslenskt kjöt PI PA R\ TB W A – SÍ A Páll Fannar Einarsson pfe@mbl.is Grænmetismarkaðurinn í Mosfells- dal verður formlega opnaður klukk- an 10 í dag. Markaðurinn er í ná- grenni Mosfellskirkju og garðyrkju- stöðvarinnar Dalsgarðs og verður opið alla laugardaga fram á haust. Að venju verða margar gerðir í boði af nýuppteknu grænmeti, beint úr garðinum, ásamt kryddjurtum, rós- um, jarðarberjum, hænueggjum, sultum og mörgu fleiru. „Ég verð svo með nýjar kartöflur til sölu sem bera heitið „gullauga“ en ég er fyrst- ur með þær á markað. Ég verð einn- ig með alls kyns hollustuvörur svo úr nægu er að velja,“ segir Jón Jó- hannsson, eigandi Grænmetismark- aðarins að Mosskógum í Mosfellsdal. Beint úr Þingvallavatni Jón verður með silung veiddan úr Þingvallavatni til sölu á markaðnum en hann hefur ekki fengist hjá hon- um síðastliðin tvö ár. Í boði verður að fá silunginn frosinn í flökum, reyktan eða spriklandi ferskan. „Ég var með silung til sölu hjá mér í mörg ár en það var bóndi frá Heið- arbæ sem veiddi hann alltaf fyrir mig. Hann féll frá fyrir tveimur ár- um síðan og þá hætti ég að fá silung. Afkomendur hans eru hins vegar byrjaðir að veiða aftur og það er mjög spennandi,“ segir Jón. Góð stemning Markaðurinn hefur skipað sér fastan sess í hugum Mosfellinga og fleira fólks sem kemur reglulega til að kaupa nýtt grænmeti, en spurður hvort búast megi við miklum fjölda á markaðinn í dag, segir Jón: „Veður hefur náttúrulega alltaf eitthvað að segja um slíkt. Ég reikna þó með því að ef fólk fréttir af kartöflunum og silungnum þá eigi margir eftir að fá vatn í munninn og gera sér ferð til okkar.“ Undanfarin ár hefur jafnan mynd- ast góð stemning á markaðnum en lítill garður er á staðnum þar sem fólk getur m.a. fengið sér kaffisopa og spjallað. „Þetta snýst ekki bara um sölu- mennsku heldur er þetta einnig mjög félagslyndur staður,“ segir Jón að endingu. Morgunblaðið/Ómar Markaður Nýupptekið grænmeti ásamt fleiri afurðum verða til sölu. Grænmetismark- aður af stað í dag  Fyrstur á markað með gullauga Reyðarfjörður og Fljótsdals- hérað hófu samstarf með form- legum samstarfssamningi árið 2012 um að gera sveitarfélögin að þjónustumiðstöð olíu- vinnslunnar á Drekasvæðinu. Tveir af þremur leyfishöfunum hafa ákveðið að gera sveit- arfélögin að þjónustu- miðstöðvum sínum. Akureyri kom til greina sem þjónustu- miðstöð á tímabili, en Reyð- arfjörður og Egilsstaðir höfðu betur vegna nálægðar við Drekasvæðið. Samstarf ÞJÓNUSTA VIÐ OLÍU Rannsóknarnefnd samgönguslysa hefur birt skýrslu sína um slys sem varð 31. mars 2013. Þriggja ára stúlka, sem var farþegi á fjórhjóli, lést þegar hjólið valt. Slysið varð við heimreiðina að Skjöldólfsstöðum í Breiðdal. Öku- maður fjórhjólsins ók austur Suður- byggðaveg og ætlaði að beygja inn á heimreiðina að bænum. Stúlkan sat fyrir framan hann við bensíntankinn á hjólinu. Hvorugt þeirra var með hjálm. Við beygjuna jókst inngjöfin og hjólið valt með þeim afleiðingum að stúlkan lést samstundis. Ökumað- urinn meiddist einnig, vankaðist og átti erfitt með andardrátt. Rannsóknarnefndin „brýnir það fyrir forráðamönnum barna að þeir gæti varúðar, sýni ábyrgð og fylgi reglum sem um ökutækin gilda,“ segir í skýrslunni. Þar kemur einnig fram að fjórhjólið hafi ekki verið ætl- að til aksturs á vegum og bannað að flytja á því farþega. Ekið of hratt í hvassviðri Í skýrslu um banaslys sem varð á Þjóðvegi 1 í Norðurárdal, austan við Silfrastaði, 1. mars 2013, bendir Rannsóknarnefnd samgönguslysa á skyldur vegfarenda til aðstoðar við umferðarslys. Að sögn farþega óku nokkrir ökumenn framhjá slys- staðnum og veittu ekki aðstoð sem eftir var leitað. Slysið varð með þeim hætti að ökumaður jeppa á leið suður Norð- urlandsveg missti skyndilega stjórn á bílnum og kastaðist hann út af veg- inum. Bíllinn valt og 12 ára drengur, sem var farþegi í aftursæti, lést. Slysið varð í dagsbirtu. Hvassviðri var og gekk á með vindhviðum. Þá var rigning og vegurinn blautur. Að mati nefndarinnar má rekja orsök slyssins til vindhviðu og ökuhraða. „Nefndin ítrekar ábendingar sínar um að ökumenn þurfi að draga úr ökuhraða í hvassviðri til að draga úr hættu á því að ökutæki þeirra fjúki.“ gudni@mbl.is Vegfarendum ber að veita aðstoð  Skýrslur um slys þar sem börn létust Morgunblaðið/Júlíus Banaslys Rannsóknarnefnd sam- gönguslysa rannsakar banaslys.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.