Morgunblaðið - 08.08.2014, Síða 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. ÁGÚST 2014
Arnar Már Eyfells Davíðsson stundaði nám við FjölbrautaskólaSuðurnesja og starfar í dag sem sölu- og þjónustufulltrúi hjáNOVA. „Ég er tiltölulega nýbyrjaður að vinna hjá NOVA,
byrjaði fyrir þremur mánuðum. Starfið er einstaklega skemmtilegt,
en eins og segir í auglýsingunni er þetta stærsti skemmtistaður í
heimi,“ segir Arnar í gamansömum tón.
Arnar hefur mikinn áhuga á leiklist og dansi og tók þátt í upp-
færslu nemendafélags Fjölbrautaskóla Suðurnesja á Dirty Dancing
sem sýnd var í Andrews Theater í Reykjanesbæ fyrr á árinu. „Upp-
færslan tókst einstaklega vel hjá okkur svo það mætti segja að ég sé
kominn með æði fyrir söng og dansi í dag,“ segir Arnar.
Hann mun taka sér smá frí frá vinnu í haust og ætlar að skella sér
með kærustu sinni, Þóreyju Þórsdóttur, til New York. „Við ætlum
að dvelja þar í eina viku. Ég er mjög spenntur að fara enda hef ég
aðeins millilent í borginni en aldrei fengið að njóta þess að vera
þar,“ segir Arnar.
Afmælisdagurinn verður hefðbundinn vinnudagur hjá Arnari en
hann ætlar að skella sér í sumarbústað um leið og honum lýkur.
„Við kærastan ætlum að stinga af í bústað rétt hjá Blönduósi. Þar
ætlum við að grilla og njóta þess að vera til,“ segir Arnar. pfe@mbl.is
Arnar Már Eyfells Davíðsson er 21 árs í dag
Ljósmynd/Arnar Már Eyfells Davíðsson
Lífið Arnar hefur mikinn áhuga á leiklist og dansi. Hann ætlar að
njóta lífsins í faðmi kærustunnar í sumarbústað fyrir norðan í dag.
Stingur af í
bústað eftir vinnu
Íslendingar Pétur Atli Lárusson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Árnað heilla
50 ára
Brynja Pála Helgadóttir er 50 ára í
dag, 8. ágúst. Brynja ólst upp í Árbæj-
arhverfi í Rvk. Hún stundaði nám við
Menntaskólann við Sund og HÍ, er
menntuð ljósmóðir og starfar við
Landspítalann.
Jóna Rós og Sunna Kristín héldu tom-
bólu fyrir utan Bónus á Egilsstöðum.
Þær seldu leikföng sem þær eru hætt-
ar að nota fyrir 3.700 kr. sem þær
gáfu í hjálparstarf Rauða krossins.
Hlutavelta
Margrét St. Nielsen og Sveinn Sveinsson fagna gullbrúðkaupi sínu í dag, 8.
ágúst. Þau munu fagna þessum merka viðburði í faðmi fjölskyldu og vina á Kaffi
Norðurfirði í Árneshreppi á Ströndum. Þeir sem vilja koma og gleðjast með þeim
eru hjartanlega velkomnir á Kaffi Norðurfjörð að kveldi.
Gullbrúðkaup
M
ikael Torfason fædd-
ist í Reykjavík 8.
ágúst 1974 og ólst
upp í Reykjavík.
„Fyrst var ég á
Laugaveginum, svo í Árbænum en
pabbi er úr Árbænum og einn af
stofnendum Fylkis og við erum því
sturlaðir Fylkismenn. Svo bjó ég í
Breiðholti og loks Vogahverfinu og
því gekk ég í Vogaskóla. Ég eyddi
líka miklum tíma á Barnaspítala
Hringsins og var svokallað langveikt
barn. Þá fór ég í Menntaskólann við
Sund, Kvennaskólann í Reykjavík og
Menntaskólann við Hamrahlíð. Ég
hef setið á skólabekk í West Los Ang-
eles College og HÍ.“
Starfsferill
Mikael hefur starfað við blaða-
mennsku síðan 1996. „Mitt fyrsta
gigg var þegar ég var pistlahöfundur
á Helgarpóstinum sáluga. Síðan þá
hef ég verið blaðamaður á DV, rit-
stjóri Fókuss, sem var fylgirit DV, og
ritstjóri DV var ég um tíma auk þess
sem ég hef starfað sem aðalritstjóri
Birtíngs, ritstjórnarfulltrúi Frétta-
Mikael Torfason, aðalritstjóri fréttamiðla 365 – 40 ára
Fjölskyldan Brúðkaupsmynd í tilefni af giftingu Mikaels og Elmu Stefaníu, f.v.: Gabríel Darri Mikaelsson, Jóel
Torfi Mikaelsson, Mikael Torfason, Ísold Barðadóttir, Kristín Una Mikaelsdóttir og Elma Stefanía Ágústsdóttir.
Fjölmiðlamaður og skáld
Í Washington Leikararnir í Harmsögu, Snorri Engilbertsson og Elma Stef-
anía, leikstjórinn Una Þorleifsdóttir og höfundurinn Mikael Torfason.
falleg minning á fingur
www.jonogoskar.is Sími 5524910 / Laugavegi 61 / Kringlan / Smáralind
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
12
16
6
6
Giftingarhringar