Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.08.2014, Qupperneq 2
Í fókus
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.8. 2014
Ég ætla bara að vera hérna í bænum með
stelpurnar mínar.
Svanhildur Snæbjörnsdóttir, 34 ára.
Bara hafa það kósí. Við förum kannski eitt-
hvað út fyrir bæjarmörkin.
Jenný Bára Sigurðardóttir, 31 árs og
Gunnar Einarsson, 46 ára.
Ég flýg aftur heim til Noregs um helgina.
Ann Guri Tiller, 56 ára.
Útgefandi Óskar Magnússon
Ritstjórar Davíð Oddsson, Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Ég og konan mín ætlum að eyða tíma
með fjölskyldu hennar. Við erum í
heimsókn á Íslandi.
Brynjar Guttorm Röine, 69 ára.
Morgunblaðið/Þórður Arnar Þórðarson
SPURNING DAGSINS HVAÐ ÆTLAR ÞÚ AÐ GERA UM VERSLUNARMANNAHELGINA?
Sigrún Kristjánsdóttir
sjónvarpskona býr í
björtu og fallegu einbýlishúsi
á Akranesi sem hún hefur
innréttað einstaklega vel
fyrir sig og fjölskyldu sína.
Innlit 26
Í BLAÐINU
Karlar eru í miklum minnihluta í stétt
kennara og fer fækkandi
Heimild: Hagstofa Íslands
4.500
4.000
3.500
3.000
2.500
2.000
1.500
1.000
500
0
1998 2001
Konur Karlar
2004 2007 2010 2013
Morgunblaðið/Þórður
BIRTA LÍF
KRISTINSDÓTTIR
SITUR FYRIR SVÖRUM
Elskar að
vera í París
Forsíðumyndina tók
Reebok fitness
Ekki er nauðsynlegt að fara út á lífið
að skemmta sér til þess að eiga góða
dansstund . Edda Lúvísa, hjá
Salsa Iceland, segist ekki í neinum
vafa um heilsusamleg áhrif dansins á
líkama og sál. Ekki skemmir tónlistin
fyrir sem fylgir senunni. Heilsa 22
Parið Helga og Helgi ákváðu
í fyrra að segja leigusamningi
sínum lausum og fara af landi
brott á vit ævintýra. Þau end-
uðu norðarlega í Noregi og
tóku sér selveiðar fyrir
hendur. Viðtal 42
Ný bók er komin út eftir
Nönnu Rögnvaldardóttur
en bókin er á ensku og nefnist
Icelandic Food and Cookery. Þar
má meðal annars finna ýmsar
sögur úr eldhúsinu hjá fjölskyldu
Nönnu og segir hún bókina því
afar persónulega. Bækur 50
Birta Líf Kristinsdóttir er bæði flugmaður og veðurfræð-
ingur en þau áhugamál hennar fara mjög vel saman. Hún
vakti þó ekki athygli landsmanna fyrr en hún fór að segja
fréttir af veðrinu í sjónvarpi en hún hefur staðið sig með
mikilli prýði í því starfi.
Hver er Birta Líf Kristinsdóttir og hvað
gerirðu í lífinu?
„Ég vinn sem veðurfræðingur hjá Veðurstofunni og RÚV.
Svo er ég líka að kenna veðurfræði á veturna hjá Flugskóla
Íslands.“
Það er stór helgi framundan og margir liggja
yfir veðurkortunum, hafa veðurfræðingarnir
fundið sólina?
„Já, við finnum hana annað slagið, en svo týnist hún alltaf jafn-
harðan aftur.“
Er meiri pressa að spá fyrir um veðrið yfir
verslunarmannahelgi en aðrar helgar?
„Veit ekki með pressu en það er a.m.k. mikill áhugi á spánum.
Mesta pressan er auðvitað þegar veðrið er mjög slæmt enda get-
ur vitlaus spá í þeim aðstæðum haft slæmar afleiðingar.“
Ertu búin að ferðast eitthvað í sumar?
„Ég hef aðallega farið upp í sumarbústað til afa og svo flogið yfir
landið, en ekki mikið meira en það innanlands. Í vor fór ég til
Parísar og fer svo aftur þangað í haust, enda alveg stórkostleg
borg.“
Áttu þér önnur áhugamál en veðrið?
„Já, ég hef líka mikinn áhuga á flugi en það passar afskaplega
vel við veðuráhugann.“
Þekkir fólk þig úti á götu eftir að þú fórst að
segja landsmönnum fréttir af veðrinu?
„Já, það hafa einstaka manneskjur þekkt mig. Það hefur
ekki verið neitt stórvægilegt, fólk er rosalega almenni-
legt og yndislegt. Sumir hafa gert athugasemd við að ég
nota skúr í karlkyni en það er eitt af fáum orðum sem
er rétt í báðum kynjum,“ segir Birta sem þakkar svo
fyrir að fá að koma því á framfæri.
Klassísk spurning í lokin, Rolling Stones
eða Bítlarnir?
„Bítlarnir.“