Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.08.2014, Side 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.8. 2014
HEIMURINN
síns,
Bush,
Bill
Clinton
Gyðingahatur í Evrópu hefur
stigmagnast undanfarin ár og
fyrrverandi forseti gyðinga-
ráðsins í Þýskalandi, Char-
lotte Knobloch, segir að gyð-
ingar hafi ekki verið í
jafnmikilli hættu síðan árið
1945. „Þetta ástand er það
versta og mest ógnvekjandi
síðan árið 1945. Síminn hjá
okkur stoppar ekki, tölvu-
pósthólfin eru yfirfull. Við
fáum stöðugt yfir okkur hat-
ursorðræðu og móðganir,“
hefur Die Zeit eftir Knobloch.
Í kjölfar þess að eldsprengju
var kastað í bænahús í Wup-
pertal á þriðjudagskvöld hvatti
hún jafnframt gyðinga í Þýska-
landi til þess að grípa til ráð-
stafana svo þeir þekktust ekki
á almannafæri – hættan á árás
væri of mikil. Fleiri árásir voru
gerðar í vikunni á byggingar
í eigu gyðinga í Evrópu.
Ótti við gyðingahatur íFrakklandi hefur náðþeim hæðum að í fyrra
fluttust fleiri gyðingar búferlum
til Ísraels frá Frakklandi en
Bandaríkjunum, jafnvel þótt gyð-
ingar séu tíu sinnum fleiri í síð-
arnefnda landinu. Þá hefur jafn-
framt aukist verulega að
gyðingafjölskyldur flytjist til
London frá Frakkandi og í St.
John’s Wood-bænahúsinu í norður-
hluta London kemur nú reglulega
saman 120 manna hópur franskra
gyðinga. Niðurstöður nýlegrar
Evrópukönnunar leiddu í ljós að
52% gyðinga í Frakklandi töldu
gyðingahatur vera „mjög stórt
vandamál“ þar í landi. Til sam-
anburðar var talan í Bretlandi
einungis 11%.
Óttinn á rætur að rekja til
nokkurra ólíkra þátta og hefur
magnast upp að undanförnu í
kjölfar árása og ofbeldisverka sem
beinast að gyðingum, ekki síst eft-
ir að átök brutust út að nýju á
Gaza-svæðinu. Hinn 24. maí síð-
astliðinn voru fjórir, þar af tveir
ísraelskir ferðamenn, skotnir til
bana á Gyðingasafninu í Brussel.
Árásarmaðurinn, Mehdi Nemmo-
uche, er fransk-alsírskur og hafði
varið heilu ári í að berjast meðal
íslamista í Sýrlandi. Þegar hann
var handtekinn í Marseille fundust
í fórum hans byssur sem hafði
verið vafið inn í rúmföt merkt
skæruliðasamtökunum ISIS. Bak-
grunnur hans er ekki ólíkur
Mohamed Merah sem í mars 2012
myrti þrjá hermenn í Suður-
Frakklandi áður en hann skaut
rabbína og þrjú börn til bana í
gyðingaskóla.
Sjö milljónir múslima búa í
Frakklandi og óttast er að fleiri
og fleiri róttækir vígamenn snúi
heim eftir að hafa barist í Mið-
Austurlöndum. Við þetta bætist
stórsigur Þjóðfylkingarinnar í
Frakklandi í kosningum til Evr-
ópuþings í maí og hin umdeilda
quenelle-kveðja uppistandarans
Dieudonne M’bala M’bala sem vís-
ar til gyðingahaturs og hefur
valdið miklu fjaðrafoki.
Skynsamlegt að fara
„Ég tel að gyð-
ingar sem yfirgefa
Frakkland séu
að taka mjög
skynsamlega
ákvörðun og ég
myndi gera slíkt
hið sama væri
ég í þeirra
sporum,“
sagði
prófessor Robert Wistrich, yf-
irmaður fræðaseturs um and-
semítisma hjá hebreska háskól-
anum í Jerúsalem, í viðtali við
Daily Mail. Hatrið er þó ekki
bundið við Frakkland. Sendiherra
Ísraels í Þýskalandi, Yakov Ha-
das-Handelsman, lét nýlega hafa
eftir sér að gyðingar væru „hund-
eltir á götum Berlínar eins og ár-
ið væri 1938“.
Ofsóknir aukast
Í Frakklandi er þriðja stærsta
gyðingasamfélag heims á eftir Ísr-
ael og Bandaríkjunum. Talið er að
um 600.000 gyðingar búi í Frakk-
landi. Þrátt fyrir að þeir séu inn-
an við eitt prósent af heildar-
íbúafjölda Frakklands voru
gyðingar fórnarlömb þriðja hvers
kynþáttaglæps sem tilkynntur var
í landinu árið 2013. Slíkir glæpir
fólust meðal annars í því að reynt
var að stinga ungan skóladreng í
París og í öðru tilviki sat hópur
manna með hnúajárn fyrir tveim-
ur drengjum sem voru á leið frá
bænahúsi. Nýlega var kennara í
gyðingaskóla misþyrmt af þremur
mönnum sem festu hann svo við
jörðina og teiknuðu hakakross á
bringu hans. Þá réðust sex menn
af afrískum uppruna með Tazer-
byssu á ungling af gyðingaættum
í París. Veggjakrot þar sem hvatt
er til gyðingahaturs hefur jafn-
framt færst í aukana.
3.374 gyðingar fluttu frá Frakk-
landi til Ísraels árið 2013, tvöfalt
fleiri en árið á undan. Tölur þessa
árs benda til þess að þessi tala
verði aftur búin að tvöfaldast fyrir
árslok 2014. David Tibi, tann-
læknir í París, segir í samtali við
Daily Mail að í sínum augum hafi
mælirinn fyllst þegar hópur fólks
veittist að börnum hans þar sem
þau voru á göngu heim úr skóla
og kallaði að þeim ókvæðisorð.
„Ég hef búið allt mitt líf í Frakk-
landi og það hefur verið dásam-
legt líf. Okkur hefur gengið vel
hér og börnin læra í góðum skól-
um. En sannleikurinn er sá að við
erum algjörlega komin með nóg.“
Gyðingar
flýja hatrið í
Frakklandi
FRANSKIR GYÐINGAR STREYMA NÚ TIL ÍSRAELS VEGNA
ÓTTA VIÐ OFSÓKNIR OG HÓTANIR Í HEIMALANDI SÍNU.
52% GYÐINGA Í FRAKKLANDI TELJA GYÐINGAHATUR VERA
„MJÖG ALVARLEGT VANDAMÁL“ ÞAR Í LANDI.
Halldór A. Ásgeirsson haa@mbl.is
Gyðingaofsóknir hafa aukist til muna í Frakklandi og fleiri gyðingar flytja nú til Ísraels frá Frakklandi en Bandaríkjunum.
AFP
EKKI VERRA SÍÐAN 1945
* Þrátt fyrir að gyðingar séu innan við eitt prósent afheildaríbúafjölda Frakklands beindist þriðji hver kyn-þáttaglæpur í landinu að þeim árið 2013. AlþjóðamálHALLDÓR ARMAND ÁSGEIRSSON
haa@mbl.is