Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.08.2014, Page 8
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.8. 2014
Á sjöunda áratug síðustu aldar og alltfram á þann níunda bundu ýmsir mikl-ar vonir við Sovétríkin í efnahagslegu
tilliti. Virtir hagfræðingar spáðu því að Sov-
étríkin myndu innan fárra ára standa jafnfætis
Bandaríkjunum um efnahagslega hagsæld.
Kennslubækur í hagfræði tóku mið af slíkum
spádómum árum saman. Þetta var rifjað upp á
fundi sem Rannsóknarsetur um nýsköpun og
hagvöxt hélt í síðustu viku þar sem fjallað var
um efnahagslegt frelsi í heiminum og mæl-
ingar Fraser stofnunarinnar á slíku frelsi í um
150 ríkjum. Með efnahagslegu frelsi er átt við
frelsi manna, og lögaðila, til þess að geta átt í
frjálsum viðskiptum með eigur sínar sem þeir
hafa eignast án hvers konar valdbeitingar.
Viðskiptafrelsi. Í þeim mælingum sem gerðar
hafa verið á efnahagslegu frelsi ríkja und-
anfarna áratugi er litið til þátta eins og um-
fangs ríkisvaldsins, með hvaða hætti eign-
arrétturinn er varinn og hversu mikið traust
menn bera til gjaldmiðilsins. Sem dæmi um
aðferðarfræðina má nefna að ein leið til að
meta hið síðasttalda er að skoða hversu mikið
frelsi þegnarnir hafa til þess að eiga aðra
gjaldmiðla og bankareikninga erlendis.
Með þessum mælingum er ríkjunum svo
raðað niður, frá því frjálsasta (Hong Kong og
Singapúr) til þess heftasta (Myanmar og
Venesúela). Þegar svo þessi frelsislisti er bor-
inn saman við rannsóknir á lífskjörum í þess-
um sömu ríkjum kemur í ljós að það er sam-
hengi á milli efnahagsfrelsisins og lífskjara í
löndunum. Tekjur landsmanna sem hlutfall af
landsframleiðslu eru margfalt hærri meðal
þjóða þar sem mest efnahagslegt frelsi ríkir.
Og það á ekki bara við um meðaltal lands-
manna. Þau 10% landsmanna sem lægstar
hafa tekjurnar í frjálsustu ríkjunum hafa
margfalt hærri tekjur en 10% fátækustu í
ófrjálsustu löndum. Þeir hafa jafnvel hærri
tekjur en allir landsmenn ófrjálsustu ríkjanna.
Lífslíkur manna eru líka mun meiri í frjáls-
ustu ríkjunum. Það vekur hins vegar athygli
að efnahagslegu frelsi fylgir ekki alltaf annars
konar frelsi. Þannig skortir nokkuð upp á póli-
tískt frelsi í sumum þeirra landa sem frjálsust
eru efnahagslega. Engin leið er að segja til um
áhrif þessa.
Í dag dytti engum í hug að spá Rússlandi á
pall með Bandaríkjunum næstu áratugina í
keppni um lífskjör. Menn hafa hins vegar um
nokkurt skeið séð Kína fyrir sér sem efna-
hagsveldi. Ef marka má niðurstöður frels-
isvísitölunnar ættu menn að fá sér sæti á með-
an beðið er eftir að Kína komist í mark, að
minnsta kosti á meðan einkaaðilum er ekki
heimilt að reka bankana þar í landi.
Frelsi til æðis
* Efnahagslegt frelsier ekki allt en skiptirmiklu máli. Frjáls við-
skipti eru grundvöllur að
góðum lífskjörum.
ÚR ÓLÍKUM ÁTTUM
Sigríður Ásthildur
Andersen
sigga@sigridurandersen.is
Baggalúturinn Bragi Valdimar
Skúlason hefur greinilega beðið
spenntur eftir sólinni í allt sumar
til þess eins að
tuða yfir hitanum.
„Jæja, þá er
loksins hægt að
byrja að tuða yfir
því að manni sé of
heitt, “ skrifaði hann í vikunni.
Fjölmiðlamaðurinn og faðirinn
Logi Bergmann velti því fyrir
sér í vikunni hvort hann ætti ef til
vill of mörg börn
þar sem hann
kippti sér lítið upp
við að dætur hans
lentu í átökum.
Svona hljóðaði
stöðuuppfærsla
Loga sem fékk heil 216 „like“:
„Stundum gætu viðbrögð mín
bent til þess að ég eigi of mörg
börn:
Brynhildur: Pabbi! Hrafnhildur
henti töng í fótinn á mér.
Logi: Já fínt. Ég var einmitt að
leita að henni.“
Ívar Guðmundsson er greini-
lega listunnandi og
hrifinn af texta-
smíð Árna John-
sen.
„Árni Johnsen
hefur samið marg-
an dægurlagatextann og þetta er
einmitt brot úr einum þeirra
„Á djúpbláum himninum dillar
sér ský uns dagar enn á ný“
Þetta er ekkert slor,“ skrifaði
Ívar sem mun eflaust grípa í gít-
arinn um verslunarmannahelgina.
Fyrrverandi Ungfrú heim, Lindu
Pétursdóttur, verður ekki að
finna á skemmtanalífinu næstu
helgar ef marka má stöðuupp-
færslu sem hún birti í vikunni.
„Klukkan að ganga tíu og ég enn
í vinnunni á laugardagskvöldi enda
að nógu að huga fyrir haustið í
heilsubransanum. Nota tímann vel
meðan dóttir mín er fyrir norðan
hjá afa og ömmu.
En nú fer ég alveg að fara
heim… það er bara svo gaman í
vinnunni!“
AF NETINU
Aðalsteinn Vestmann opnar málverkasýningu í
Mjólkurbúðinni í Listagilinu á Akureyri í dag, laug-
ardag, klukkan 14. Á sýningunni sýnir Aðalsteinn
akrýlmálverk sem hann hefur nýlega málað og auk
þeirra verður hann með eina eldri teikningu og eitt ol-
íumálverk frá námsárunum sínum í Mynd- og hand-
íðaskóla Íslands. Olíumálverkið er módelmynd sem
Aðalsteinn hefur aldrei sýnt áður og sýnir myndin
samnemendur hans og kennara, Björn Th. Björnsson,
listfræðing og skáld. Aðrir á myndinni eru Sverrir
Haraldsson, Hringur Jóhannesson og Ásta Sigurð-
ardóttir rithöfundur. Aðalsteinn Vestmann er fæddur
á Akureyri 1932. Hann lauk námi við teiknikenn-
aradeild Mynd- og handíðaskóla Íslands árið 1951 og
starfaði sem teiknikennari við Barnaskólann á Ak-
ureyri í nær 40 ár. Aðalsteinn hefur tekið þátt í mörg-
um samsýningum og auk þess haldið einkasýningar
bæði á Akureyri og í Reykjavík.
Málverkasýning Aðalsteins Vestmanns stendur til
10. ágúst og eru allir velkomnir.
Aðalsteinn
sýnir
Retro á Hattinum
Hljómsveitin Retro Stefson er meðal vinsælustu tónleikasveita Íslands.
Morgunblaðið/Kristinn
Það verður lífleg dagskrá á Græna hattinum á Akureyri um helgina. Hljóm-
sveitin vinsæla Retro Stefson kemur fram á tónleikum þar í dag, laugardag.
Tónleikarnir hefjast klukkan 22.00. Á morgun er það svo rokkhljómsveitin Ka-
leo sem sér um að trylla lýðinn. Tónleikar sveitarinnar hefjast klukkan 23,00.
Vettvangur