Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.08.2014, Blaðsíða 9
3.8. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9
Þ
etta er mikil
viðurkenning
fyrir mig og
vísbending um
það að ég sé
að gera eitthvað rétt,“
segir Jóhannes Frank Jó-
hannesson um árangurinn
í Frakklandi.
Ekki er um pen-
ingaverðlaun að ræða en
Jóhannes Frank segir það
ekki skipta nokkru máli,
athyglin og kynningin séu
mun meira virði en peningar í þessu sambandi. Líkt og þegar hann
fékk nýverið birtar eftir sig myndir í hinu virta tímariti LensWork
í Bandaríkjunum.
Reglur PX3-keppninnar eru þannig að ljós-
myndarar senda inn drög að óútgefnum bók-
um. Jóhannes Frank sendi Hross inn
snemma á þessu ári en bókin kom út hér
heima í byrjun júlí, 96 blaðsíður. Formála
ritar forseti Íslands, Ólafur Ragnar Gríms-
son.
Svo sem nafnið gefur til kynna eru ein-
göngu hestamyndir í bókinni, úrval frá síð-
ustu árum. Allt í svarthvítu. „Ég tek mynd-
irnar í lit en breyti þeim í svarthvítar. Það
kemur betur út. Alla vega fyrir minn smekk.
Þegar ég var yngri teiknaði ég mikið með
blýanti, mögulega hefur það áhrif.“
Myndirnar eru teknar vítt og breitt um
landið, ekki síst á Vestfjörðum – en rætur Jóhannesar Franks eru á
Þingeyri – og í nágrenni höfuðborgarsvæðisins. „Það þarf ekki alltaf
að fara langt til að finna hesta,“ segir Jóhannes Frank sem býr í
Hafnarfirði ásamt konu sinni, Mayyu Pigida.
Skipti á byssu og myndavél
Jóhannes Frank er sjálfmenntaður ljósmyndari og byrjaði að mynda
fyrir um áratug. „Fram að því skaut ég bara af skotvopnum, keppti
meira að segja í því sporti. Það er mun hljóðlátara að skjóta af
myndavél,“ segir hann hlæjandi.
Spurður um áhrifavalda nefnir Jóhannes Frank strax Ragnar Ax-
elsson, ljósmyndara á Morgunblaðinu. „Ég er pínulítið smitaður af
RAX. Hann hefur haft mikil áhrif á mig.“
Hross er önnur ljósmyndabók Jóhannesar Franks. Moments from
Iceland kom út 2010 en er nú uppseld. Hún hefur að geyma svart-
hvítar landslagsmyndir. „Viðtökur hafa verið mjög góðar. Moments
from Iceland seldist vel og Hross hefur selst ágætlega síðan hún
kom í bókabúðir. Ég er mjög þakklátur fyrir það.“
FÉKK GULL OG SILFUR Í LJÓSMYNDAKEPPNI Í FRAKKLANDI
Athyglin
meira virði
en peningar
JÓHANNES FRANK JÓHANNESSON ÁHUGALJÓS-
MYNDARI HLAUT Á DÖGUNUM ÖNNUR VERÐLAUN
FYRIR BÓK SÍNA HROSS Í EINNI STÆRSTU LJÓS-
MYNDAKEPPNI EVRÓPU, PX3 Í FRAKKLANDI. KÁPA
BÓKARINNAR VANN TIL FYRSTU VERÐLAUNA Í
SÖMU KEPPNI.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Ljósmyndir úr bók Jóhannesar Franks, Hross, sem kom út fyrir um mánuði.
Kápa nýju bókarinnar, Hross, sem fékk fyrstu verðlaun í keppninni í Frakklandi.
Jóhannes Frank
Jóhannesson
Upp með orkuna!
FOCUS
Á góðu verði á næsta sölustað:
Hagkaup, Fjarðarkaup, Melabúðin og apótek um land allt
Svalandi, kraftmikill og bragðgóður drykkur
– frábær þegar þig vantar aukna orku og einbeitingu
15 freyðitöflur í stauk ...
skellt út í vatn þegar þér hentar !
4Inniheldur koffín, guarana og ginseng
4Enginn sykur - engin fita
450 mg Magnesium og aðeins 2 hitaeiningar
og 0.5g kolvetni í 100 ml.