Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.08.2014, Síða 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.08.2014, Síða 12
E va Hauksdóttir hefur vakið mikla athygli og umtal fyrir skelegg greinaskrif sín, sér- staklega gagnrýnin skrif um femínisma. Eva, sem er íslensku- og bókmenntafræðingur að mennt, býr nú í Glasgow, en hyggur á nám í lögfræði við Há- skóla Íslands í haust. Spurð hvort hún sé andstæð- ingur femínisma segir Eva stutt og laggott: „Já,“ og bætir við: „Femínismi er kynhyggja þar sem krafist er forréttinda fyrir annað kynið og hinu kyninu kennt nánast um allt sem miður fer í tilverunni. Mér finnst kven- hyggja ekkert skárri en karl- hyggja. Þetta eru stefnur sem ganga út frá þeirri hugmynd að stríð ríki á milli kynjanna og eru ekki líklegar til að auka skilning og samhygð.“ Hvaða viðhorf finnst þér að konur hafi til skoðana þinna á femínisma? „Fyrst þegar ég byrjaði að skrifa um femínisma var ég að- allega að gagnrýna meðferð á gögnum þar sem gölluð tölfræði var notuð eða vísað var í rann- sóknir sem sýna alls ekki það sem viðkomandi segir að þær sýni. Ég hélt um tíma að við- horf mín til femínisma væru mjög óvinsæl en í dag held ég að sá dólgafemínismi sem hefur vaðið uppi á síðustu árum og áratugum sé alls ekki eins vin- sæll og halda mætti af umfjöll- unum. Femínistarnir hafa afar gott aðgengi að fjölmiðlum og töluvert mikil opinber völd, en almenningur er ekki eins hrifinn af þeim og ég hélt. Þegar ég byrjaði að skrifa um femínisma voru margir, sér- staklega konur, sem höfðu sam- band við mig og sögðust vera sammála mér en ekki þora að segja það opinberlega. Þetta hef- ur breyst. Nú er fólk farið að taka hraustlega undir með mér og konur farnar að skrifa um svipaða hluti og ég hef gert. Mér sýnist umræðan hafa opn- ast.“ Hef ekki fengið marktæka gagnrýni frá femínistum Hvernig tekurðu gagnrýninni sem þú færð á þig frá fem- ínistum? „Ég hef ekki fengið neina Kvenhyggja ekkert skárri en karlhyggja EVA HAUKSDÓTTIR HEFUR ALLTAF VERIÐ ÓHRÆDD VIÐ AÐ SEGJA SKOÐANIR SÍNAR. Í VIÐTALI RÆÐIR HÚN UM FEMÍNISMA, FORRÆÐISHYGGJU OG PÓLITÍSKAN RÉTTTRÚNAÐ OG LEGGUR ÁHERSLU Á MIKILVÆGI ÞESS AÐ FÓLK ÞORI AÐ SEGJA SKOÐUN SÍNA. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@mbl.is 12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.8. 2014 Svipmynd

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.