Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.08.2014, Page 15
Á miðvikudaginn hefst fjöl-skylduhátíðin Sumar áSelfossi og stendur hún
fram á sunnudag. Hátíðin hefur
verið haldin síðan 1995 en útfærð
á mismunandi hátt og hefur farið
stækkandi í umsvifum síðan 2003.
Stærsti viðburður hátíðarinnar
er morgunverður sem haldinn er
á laugardagsmorgni og er sá allra
stærsti sem sögur fara af. Hátíð-
arhaldarar bjóða öllum sem hafa
áhuga á að koma í morgunmat
sér að kostnaðarlausu. Guðnabak-
arí mun bjóða upp á rúnnstykki
og fleira góðgæti. Í fyrra mættu
um 4.000 manns en nú er talið að
hátt í 5.000 manns muni mæta og
gæða sér á kræsingunum. „Hátíð-
in Sumar á Selfossi snerist fyrst
og fremst um það að fyrirtæki
bæjarins buðu íbúum í morgun-
mat. Síðan var annarri hátíð,
Sléttusöngnum, slegið saman við
og síðan hefur hátíðin verið að
stækka í umsvifum. Við erum
alltaf að reyna að gera meira og
betra,“ segir Guðjón Bjarni Hálf-
dánarson, einn hátíðarhaldara.
Á hátíðinni er ýmislegt um að
vera og ber þar að nefna Froðu-
fjör þar sem slökkvilið Árnessýslu
sprautar froðu niður um 4 metra
brekku og myndast þar froðupoll-
ur fyrir neðan sem krakkarnir
geta leikið sér í. „Ef mamma og
pabbi eru til þá geta þau sleppt
barninu í sér og skellt sér í
brekkuna,“ segir Guðjón kátur.
Brúarhlaupið er eitt stærsta 21
km hlaup á landinu. Þangað
mæta helstu hlauparar landsins til
að keppa við að slá eigin met í
21 km hlaupum. „Við höfum skor-
að á Kára Stein Karlsson að
koma hingað og keppa,“ segir
Guðjón. „Hann er nú í rauninni
tengdasonur Selfoss, þar sem
hann nældi sér í eina Selfoss-
snót,“ segir hann og hlær.
Einnig verður Sléttusöngurinn
á sínum stað þar sem Ingó úr
Veðurguðunum leiðir sönginn. Þá
verður flugeldasýning og einnig
verða tónleikar öll kvöld og al-
gengt er að hljómsveitir sem eru
að stíga sín fyrstu skref troði
upp á hátíðinni. Helgi Björns og
Reiðmenn vindanna halda uppi
fjörinu og spila á föstudagskvöld-
inu.
„Þar sem hátíðin er einungis
stutt frá Reykjavík er kjörið fyrir
fjölskyldur í Reykjavík og ná-
grenni að nýta daginn og taka
sér bíltúr á Selfoss til að upplifa
frábæra dagskrá,“ segir Guðjón
að lokum.
STANSLAUST STUÐ Á SELFOSSI
Stærsti morgun-
verður landsins
FJÖLSKYLDUHÁTÍÐIN SUM-
AR Á SELFOSSI VERÐUR
HALDIN MEÐ POMPI OG
PRAKT DAGANA 6.-10.
ÁGÚST NK. ÞAR GETUR ÖLL
FJÖLSKYLDAN FUNDIÐ SÉR
EITTHVAÐ VIÐ HÆFI SEM
OG GÆTT SÉR Á GÓÐUM
MORGUNVERÐI.
Gunnþórunn Jónsdóttir
gunnthorunn@mbl.is
Nokkur börn taka lagið uppi á sviði.Ingó úr Veðurguðunum stýrir Sléttusöngnum.
Margir leggja leið sína í morgunverðinn á hátíðinni Sumar á Selfossi.
*Mörgæsir hafa sko ávallt gottplan á prjónunum
Mörgæsirnar úr Madagascar
3.8. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15
Um verslunarmannahelgina má finna ótal hátíðir og samkomur
sérstaklega ætlaðar fjölskyldum um allt land. Má þar nefna
Sæludaga í Vatnaskógi, Edrúhátíð SÁÁ að Laugalandi í Holtum,
Neistaflug í Neskaupstað, Síldarævintýrið á Siglufirði og fleiri.
Hátíðir víða um land
Signý Kolbeinsdóttir, hönnuður og
teiknari, er annar eigandi fyrirtæk-
isins og vörumerkisins Tulipop þar
sem hún og Helga Árnadóttir skapa
skemmtilegar og ævintýralegar
vörur fyrir börn. Hún á tvö börn
ásamt manni sínum, Heimi Snorra-
syni, og ætlar fjölskyldan að skella
sér á Ísafjörð um verslunarmanna-
helgina.
Þátturinn sem allir geta horft á?
Attenborough, Svampur Sveinsson
og nýju Cosmos-þættirnir!
Maturinn sem er í uppáhaldi hjá
öllum? Pitsa, pasta og
sushi.
Skemmtilegast að gera
saman? Fara í bíó sam-
an, á kaffihús, í sund,
fjallgöngur, göngutúra og
ferðast.
Borðið þið
morgunmat
saman? Já,
alltaf. Eig-
inlega bara
uppáhalds-
maturinn minn,
ristað brauð og
kaffi.
Hvað gerið þið
saman heima
ykkur til dægra-
styttingar? Það er
mjög misjafnt og fer
algjörlega eftir veðri.
Ef það er gott þá erum við bara
úti að leika en ef það er vont þá
horfum við stundum á bíómynd, stundum
er bakað og við höldum kaffiboð, stundum
spilað, stundum teiknað og föndrað.
Reynum að hanga sem minnst í tölv-
unni, því þá verða allir geðveikir í skapinu.
Ætlið þið að gera eitthvað um versl-
unarmannahelgina? Við fjölskyldan erum
að fara til Ísafjarðar um verslunarmanna-
helgina en ætlum að gista í húsi á Súðavík
þar sem einn flottasti leikvöllur landsins
er í bakgarðinum.
Á Ísafirði verður nóg að gera, mýrarboltinn
náttúrlega og svo er okkur boðið í risapartí.
EFTIRLÆTI FJÖLSKYLDUNNAR
Signý Kol-
beinsdóttir
Útivera og gæðastundir
umfram tölvuna
Sýningarsalur í Skipholti 35 • Seljabót 7, Grindavík • www.pgv.is • Sími 510 9700
• Barnalæsing
• Mikil einangrun
• CE vottuð framleiðsla
• Sérsmíði eftir málum
• Glerjað að innan
• Áratuga ending
• Næturöndun
VELDU VIÐHALDSFRÍTT
PVC gluggar og hurðir - íslensk framleiðsla fyrir íslenskt veðurfar