Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.08.2014, Blaðsíða 24
Amma Mús handavinnuhús býður upp á ýmsan handavinnuvarning
og íslenskar vörur, meðal annars frá Móakoti og Guðrúnu Bjarnadóttur.
Morgunblaðið/Þórður
Amma Mús handavinnuhús flytur höfuðstöðvar sínar um set
og opnar nýja glæsilega verslun við Grensásveg 46 þann 6.
ágúst á fjórða afmælisdegi verslunarinnar. Hildur Guðnadótt-
ir, eigandi verslunarinnar, mun kynna hið nýja Einrum-band
við opnunina. „Þetta verður svona kórónan í opnuninni. Við
eigum gott hráefni í íslensku ullinni og um að gera að gera
eitthvað nýtt og spennandi og það finnst mér Kristínu Brynju,
hönnuði bandsins, hafa tekist með því að bæta silki við.“
Einnig verður áfram boðið upp á skemmtilega viðburði
reglulega í versluninni.
Við brydduðum upp á nýjung núna í apríl og maí og próf-
uðum að hafa saumakaffi fyrsta miðvikudag í mánuði og það
mæltist mjög vel fyrir. Þar skapaðist skemmtileg stemning og
konur komu með gamla handavinnu sem þær vantaði farveg
til þess að klára, svo að það komu ýmsir gullmolar í ljós,“ seg-
ir Hildur en verslunin hefur haldið svokölluð prjónakaffi ann-
an hvern laugardag yfir vetrartímann frá því að verslunin var
opnuð og hefst það á nýjan leik 30.
ágúst.
„Þar eru allir velkomnir á milli kl.
tíu og tólf. Svo höfum við verið með
prjónakaffi fyrir Önfirðinga og vini
þeirra fyrsta þriðjudag í mánuði það
er alltaf eins og ættarmót og
skemmtileg stemning. Heimilisleg,
vinaleg og notaleg. Svo verður
kannski bryddað upp á einhverju
skemmtilegu í vetur.“ Hildur segir að
með nýrri staðsetningu verslunar-
innar verði ennþá betra aðgengi bæði
fyrir þá sem eru orðnir fótfúnir og þá sem eru í hjólastól.
Verslunin býður upp á ýmsan handavinnuvarning og ís-
lenskar vörur, meðal annars frá Móakoti, Guðrúnu Bjarna-
dóttur, allskyns útsaum og fleira.
BETRA AÐGENGI FYRIR HJÓLASTÓLA
Hildur Guðnadóttir,
eigandi verslunar-
innar Amma Mús.
Gæði umfram magn
Heimili
og hönnun
Ítölsk hönnun úr gæðaefni
Ítalska
merkið
Discipline
fæst í Epal.
*Nú geta íslenskir fagurkerar loksins nálgastgæðavörur frá ítalska hönnunarmerkinuDiscipline hér á landi. Merkið er tiltöluleganýtt af nálinni en hefur náð þó nokkrum vin-sældum á erlendri grundu. Discipline sérhæf-ir sig í hönnun á fallegum og fjölbreyttumvörum fyrir heimilið og er lögð mikil áhersla
á náttúruleg efni. Þá er leður, korkur og við-
ur áberandi í vörulínu þessa ítalska merkis.
É
g hef lengi verið að velta því fyrir
mér hvernig hægt væri að mýkja
ull. Þetta hefur lengi verið í hug-
skotinu enda hef ég alltaf verið að
prjóna. Ullin hefur mikið einangrunargildi
en hinsvegar stingur hún.
Mig langaði til þess að gera hana léttari
og mýkri,“ segir Kristín Brynja Gunn-
arsdóttir arkitekt, en hún hefur þróað nýtt
íslenskt band, Einrum, úr íslenskri ull og
taílensku silki. Kristín, sem hefur verið
prjónandi frá barnæsku, fór að hefja til-
raunir með ullina fyrir tveimur og hálfu ári
þegar vinkona hennar, sem starfar sem
gullsmiður í Danmörku en er með verk-
stæði í Taílandi kom með silki, lagði á
borðið og sagði: „Kristín, það hlýtur að
vera hægt að gera eitthvað við þetta.“
Kristín hóf þá að prjóna saman þræðina,
einn og einn silkiþráð við ullarþræðina.
„Ég var búin að gera dágóða stúdíu í því
þegar ég valdi úr hvaða blöndu mér þótti
skemmtilegast að vinna með. Til að byrja
með er silkiþráðurinn brúnleitur, nánast
koparlitaður, og það er svolítið skemmtilegt
að sjá hversu mikil áhrif litur á þessum
mjóa silkiþræði hefur þegar hann blandast
saman við ullina.“
Kristín valdi að notast eingöngu við
grunnliti til þess að byrja með, gráan,
svartan og hvítan. „Seinna meir hef ég
hugsað mér að bæta rólega fleiri litum við.
Þá koma vel valdir, fallegir litatónar þegar
fram í sækir.“ Þá verða einnig fáanlegar
uppskriftir sem styðja við garnið. „Fólk
getur náttúrlega að sjálfsögðu prjónað eitt-
hvað sem það skapar sjálft en svo verða
líka uppskriftir sem eru sérstaklega gerðar
fyrir þetta garn. Það verður spennandi að
sjá hver viðbrögðin verða, mér finnst band-
ið allavega rosalega fallegt, gaman að
prjóna úr því og gott að vera í fötum úr
því.“
Kristín, sem er búsett í Danmörku, segir
Ísland aldrei vera langt undan varðandi
innblástur. „Alveg sama hvar maður er eða
hvað maður hugsar. Það er óhjákvæmilegt.
Þetta er íslensk afurð þó að hún sé blönd-
uð taílensku silki.“
Kristín segir hugmyndavinnu og tilraunir
við þróun bandsins hafa tekið sinn tíma.
„Við erum búin að prufukeyra þrjár prufur
í vélunum hjá Ístex,“ segir Kristín og bætir
við að Ístex hafi aðstoðað við þróunina og
tekið vel í þessa nýsköpun og staðið vel að
sínu verki. Einrum verður fáanlegt í versl-
uninni Ömmu Mús 6. ágúst.
Peysa úr Einrum-bandi. Uppskriftir sem styðja við bandið verða einnig fáanlegar.
Þegar silki er tvinnað saman við einband
verður bandið mýkra og loftkenndara. Einrum verður fáanlegt í grunnlitunum, hvítum, svörtum og gráum.
Kristín Brynja segir gaman að prjóna úr Einr-
um-bandinu og gott að vera í fötum úr því.
Áferðin er ákaflega
skemmtileg og
koparlitur silkisins af-
ar áberandi í ullinni.
NÝTT BAND ÚR ÍSLENSKRI ULL OG TAÍLENSKU SILKI
Prjónar úr íslenskri
ull og taílensku silki
EINRUM ER NÝTT ÍSLENSKT BAND UNNIÐ ÚR ULL OG TAÍLENSKU SILKI.
KRISTÍN BRYNJA GUNNARSDÓTTIR ARKITEKT Á HEIÐURINN AF BANDINU
SEM ER MUN MÝKRA OG LÉTTARA EN ULLIN EIN OG SÉR.
Sigurborg Slema Karlsdóttir sigurborg@mbl.is