Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.08.2014, Qupperneq 33
Hitaeiningarnar sem
við látum ofan í okk-
ur eru mörgum ráð-
gáta. Þó að viðmið
um hitaeiningar í
hverjum 100 grömm-
um fylgi oft upplýs-
ingum um vörur er
samt sem áður aldrei
hægt að vera fullviss
um það hversu
margar hitaeiningar
eru í matnum okkar.
Fyrir utan það að oft
nennum við hrein-
lega ekki að telja allar hitaeiningar
saman og á það sérstaklega við
þegar upplýsingar eru takmark-
aðar eða ekki hreinlega ekki fyrir
hendi.
Á þessu vandamáli virðist nú
vera komin lausn í það minnsta
fyrir þær vörur sem við hitum upp
í örbylgjuofninum. Vísindamenn
hjá GE Global Research eru að
hanna örbylgjuofn sem mælir þær
kaloríur sem settar eru inn í ofninn
til upphitunar. „Hingað til hefur
hvert tækið á fætur öðru komið á
markað sem segir okkur til með
nokkuð nákvæmum hætti hversu
mörgum hitaeiningum við brennum
yfir daginn. Hins vegar hefur skort
verulega á tækni sem segir okkur
til um það hversu margar kalóríur
við setjum ofan í okkar,“ segir
Matt Webster, líffræðingur hjá GE
og einn af hugmyndasmiðum ka-
loríumælisins í örbylgjuofna.
Verkefnið er unnið í samvinnu
við tölvu- og verkfræðideild Baylor
háskóla en þar hefur verið unnið að
skanna sem mælir fituinnihald,
vatnsmagn og þyngd. „Við vonum
að í nálægri framtíð verði hægt að
mæla allan mat með þessari tækni.
Þá verða upplýsingar um hitaein-
ingamagn í matnum okkar jafn að-
gengilegar og brennslan er í dag.“
ÞEGAR TÆKNIN OG HEILSA TAKA SAMAN
Hitaeiningaofninn
Örbylgjuofn sem segir til um hitaeiningar er fagn-
aðarefni hjá sumum en aðrir bölva eflaust tækninni.
Geimferðarstofnun Bandaríkjanna, NASA, hefur sleg-
ið enn eitt metið en að þessu sinni er það Mars
Rover rannsóknarflakkarinn sem á í hlut. Hinn tíu
ára gamli flakkari sem nefnist Opportunity hefur
keyrt yfir 40 km á plánetunni rauðu, Mars. Þar með
hefur flakkarinn frægi slegið met sovéska flakkarans
Lunokhod 2.
Opportunity lenti á Mars árið 2004 og segir John
Callas, yfirmaður rannsóknarsviðs NASA fyrir Mars,
að rannsóknarflakkarinn hafi ekki bara keyrt lengra
en nokkurt annað mannlegt farartæki á annarri plán-
etu heldur hafi einnig verið ómetanlegur í öllum
rannsóknum stofnunarinnar á plánetunni. „Þó að
Opportunity hafi á seinni árum ekki fengið jafn mikla
athygli og systurtæki þess Curiosity hefur það engu
að síður verið okkur mikilvægt í öllum rannsóknum
og mun verða það áfram.“
Vísindamenn hjá NASA stefna nú að því að keyra
rannsóknarflakkarann enn lengra og koma aksturs-
mælinum upp í að minnsta kosti maraþon vegalengd
en Opportunity stefnir á Maraþon dal þar sem vís-
indamenn telja að sé að finna leirkenndan jarðveg
sem vert er að rannsaka til að gefa okkur betri
skilning á plánetunni.
GEIMRANNSÓKNIR NASA
Opportunity slær met fyrri NASA
Met sovéska flakkarans Lunokhod 2 hefur nú verið slegið af bandaríska rannsóknarflakkaranum Opportunity.
3.8. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 33
* Einhvers staðarer eitthvað stór-kostlegt sem býður þess
að vera uppgötvað.“
Carl Sagan
Ódýrt: Husqvarna E-10
saumavél
Einföld saumavél m/ 21 saum-
um. Stillanleg sporlengd og
sporbreidd. 4 þrepa kerfi f.
hnappagöt. 5 fætur fylgja.
Overlockspor, blindfaldur,
teygjuspor ofl. Verð: 34.995
Dýrt: Elna -845
2. 3. 4 þráða. Saumaráðgjaf.
3mm, 6mm og þrefaldur þekju-
saumur. Sjálfvirkur mis-
munaflutningur. Sjálfvirk spor-
lengd. Stillanleg skurðbreidd.
Stiglaus fargstilling. Skjár sem
sýnir saumagerðir. 18 inn-
byggðar saumgerðir. Verð:
159.995
ÓDÝRT, MIÐLUNGS, DÝRT
Saumavélar
Miðlungs: Elna 340E-X saumavél
25 sporgerðir. Auðvelt að auka
sporlengdina, stillingar frá 0-4 mm.
Sporbreidd er auðveldlega stillanleg
frá 0-5 mm. Nál stillanleg frá miðju
og aukahlutageymsla. Auðvelt að
minnka saumborð ef þörf krefur.
Innbyggð spóluvinda og áfastur
tvinnahnífur. Sjálfvirkur hnappagata-
fótur. 5 gerðir saumfóta fylgja.
Verð: 59.995
Nethyl 2 110 Reykjavík Sími 568 1245
Sérfræðingar í
líkamstjónarétti
Veitum fría ráðgjöf
fyrir tjónþola
Pantaðu tíma: fyrirspurnir@skadi.is
www.skadi.is
Þ. Skorri
Steingrímsson,
Héraðsdóms-
lögmaður
Steingrímur
Þormóðsson,
Hæstaréttar-
lögmaður
BBC greindi frá því í vikunni að stjórnvöld í
Bretlandi hafa tilkynnt að sjálfvirkir bílar verða
leyfðir á opinberum vegum í janúar næstkom-
andi. Yfirlýsingin mun því hleypa bílstjóra-
lausum bílum á götur í Bretlandi á minna en
sex mánuðum.
Sjálfvirkir bílar