Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.08.2014, Qupperneq 56
SUNNUDAGUR 3. ÁGÚST 2014
Hjónin Erna Tómasdóttir og Guðjón
Stefánsson láta sig ekki vanta á
Þjóðhátíð enda bæði fædd og uppalin í
Vestmannaeyjum. „Við höfum farið á
Þjóðhátíð frá því við munum eftir okk-
ur svo þær eru orðnar nokkuð margar
sem við höfum sótt enda bæði tæplega
áttræð,“ segir Erna, sem missti þó af
Þjóðhátíðinni 1973. „Ég fór ekki á
Þjóðhátíðina þegar gosið var í Eyjum
en það var samt sem áður haldin hátíð
og hún er sú eina sem ég hef ekki sótt.“
Vestmannaeyingar halda fast í hefð-
ina þessa helgi og tjalda veglegum hvít-
um tjöldum sínum í Herjólfsdalnum og
verður engin undantekning á því í ár
hjá Ernu og Guðjóni. „Við tjöldum á
sama stað og pabbi tjaldaði fyrir 70 ár-
um og fjölskyldan hittist í tjaldinu
strax eftir setningu Þjóðhátíðarinnar
og gæðir sér á rjómatertu og brauð-
meti.“ Að sjálfsögðu verða Erna og
Guðjón í dalnum yfir helgina þó þau
gisti ekki í tjaldinu. Það verður þó mik-
ið um að vera fyrir þau enda barna-
börnin orðin 15 og barnabarnbörnin 6
talsins og allir mæta að sjálfsögðu á
Þjóðhátíðina sem fagnar 140 ára afmæli
sínu.
ÞJÓÐHÁTÍÐ Í VESTMANNAEYJUM FAGNAR 140 ÁRA AFMÆLI
Mæta alltaf á Þjóðhátíð
„Við tjöldum á sama stað og pabbi tjaldaði fyrir
70 árum og fjölskyldan hittist í tjaldinu strax
eftir setningu Þjóðhátíðarinnar,“ segir Erna.
Gíraffi dó af völdum höfuðáverka
í Pretoria í Suður-Afríku á
fimmtudag þegar hann rak höf-
uðið í brú á mislægum gatna-
mótum. Gíraffinn var staddur
ásamt félaga sínum í kerru aftan
í flutningabíl og svo virðist sem
ökumaðurinn hafi ekki gert sér
grein fyrir hæð dýranna þegar
hann ók undir brúna. Vitni lýstu
þeirri sérkennilegu sýn að sjá
tvö gíraffahöfuð gægjast upp úr
kerrunni á fleygiferð eftir hrað-
braut. Ökumenn í kring fylgdust
skelfingu lostnir með því þegar
annar gíraffinn skall utan í
brúna.
Fréttamiðillinn EyeWitness
News hefur eftir Rick Allan,
starfsmanni dýravernd-
arsamtaka í Suður-Afríku, að
rannsóknir dýralæknis hafi leitt
í ljós að gíraffinn hafi drepist
vegna „alvarlegra höfuðáverka“.
Hinn gíraffinn var fluttur í
öruggt skjól.
„Við höldum rannsókn málsins
áfram með hugsanlega saksókn
fyrir augum á hendur þeim sem
ábyrgð bera á þessu ömurlega
atviki,“ sagði Allan.
Pabi Moloi var á ferð í bíl með
frænku sinni á sömu slóðum og
sagðist hafa séð tvo gíraffa
gnæfa upp úr kerru aftan í
flutningabíl. „Ég fálmaði eftir
símanum mínum til að taka
myndir enda ekki á hverjum
degi sem maður sér gíraffapar á
hraðbraut inni í borg. Á meðan
ég tók myndirnar fór bíllinn
undir brú og annar gíraffinn rak
höfuðið utan í steinsteypuna.
Skellurinn var svo harkalegur að
frænka mín sem sat við stýrið
spurði mig hvort einhver hefði
verið að hleypa af skotvopni, hún
taldi sig hafa heyrt skothvell!“
GLAPRÆÐI ÖKUMANNS Í SUÐUR-AFRÍKU
Ók gír-
affa á brú
Gíraffarnir tveir sjást hér stuttu áður en atvikið hræðilega átti sér stað.
Pabi Moloi
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Lukku láki.Luke Perry, leikari.Ingó, úr Veðurguðunum.
www.forlagid.is
– alvöru bókabúð á netinu
„Sagnagáfa Ejersbo
er ótvíræð og persónu-
sköpun með því betra sem
gerist ... Sögurnar grípa
þéttingsfast ...“
Anna Lilja Þórisdóttir /
Morgunblaðið
Meistaraleg flétta
með sárum
undirtón, saga
af styrk
mannsandans
andspænis kúgun.
BYLTINGAR-
ANDI!