Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.10.2014, Page 17
Inga María Leifsdóttir, kynningar- og markaðsstjóri Ís-
lensku óperunnar, gaf sér tíma til að svara spurningum um
eftirlæti fjölskyldunnar þrátt fyrir annir en Ís-
lenska óperan frumsýnir Don Carlo laugardaginn
18. október. Eiginmaður hennar er Kristbjörn
Helgason, verkfræðingur hjá Plain Vanilla. Þau
eiga þrjú börn, Júlíu Helgu, ellefu ára, Jakob Leif,
sjö ára, og Jóel Benedikt, eins árs.
Þátturinn sem allir geta horft á? Hrekkjavöku-
þátturinn í Andrési önd er algjört uppáhald hjá
öllum, alls konar vísindaþættir á RÚV og Kúskó.
Duttum líka inn í Minute to Win It um daginn
sem var mjög skemmtilegt.
Maturinn sem er í uppáhaldi hjá öllum? Buff
stroganoff.
Skemmtilegast að gera saman? Hjá okkur er
til svolítið sem heitir „plan mömmu“, sem er
að fara í sund og fá sér svo að borða á veit-
ingastað. Það er mjög skemmtilegt plan. En svo finnst
okkur líka gaman í keilu og að fara í sumarbústað. Og fara í
bíltúr með eða án íss. Og drekka kaffi hjá ömmu Siggu og
ömmu og afa.
Borðið þið morgunmat saman? Já, alltaf. Sumir fá sér
egg en aðrir morgunkorn og stundum er skellt í hafragraut
handa öllum.
Hvað gerið þið saman heima ykkur til dægrastyttingar?
Spilum fótbolta í holinu, bökum og skoðum gamlar myndir.
EFTIRLÆTI FJÖLSKYLDUNNAR
Fótbolti, bakstur og gamlar myndir
Inga María
Leifsdóttir
19.10. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17
Vetrarfrí er í grunnskólum Reykjavíkur til 21. október. Margt
er í boði fyrir fjölskylduna þessa frídaga í frístundamið-
stöðvum, bókasöfnum og menningarstofnunum. Frítt verð-
ur fyrir fullorðna í fylgd með börnum inn í söfn borgarinnar.
Fjölskyldusamvera í vetrarfríinu*Hver einasta kona sem segirsannleikann um sjálfa sig erfemínisti. Alice Munro
Getty Images/Ingram Publishing
NÝJAR VÖRUR
Í HVERRI VIKU
Verið velkomin í Aurum.
Við fáum nýjar vörur í hverri viku og þar
er alltaf eitthvað spennandi að finna.
Getnaðarvarnanotkun á Íslandi er lítið rannsökuð og
bæklingurinn frá Landlækni hefur ekki verið upp-
færður frá árinu 2008. Þar kemur fram að engin tegund
hettu fáist hérlendis en það er ekki rétt. Hettan Caya
er til sölu í vefverslun Litla ljóssins, litlaljosid.is, sem
Elena Teuffer rekur.
Elena segir að hingað til hafi þurft að fara til kven-
sjúkdómalæknis til að fá að vita réttu stærðina. „Þetta
var vesen en svo gat maður farið í apótek og fengið
hettuna,“ segir Elena sem rak sig á það fyrir all-
mörgum árum að hettan var ekki lengur til þegar hún
ætlaði að fara að endurnýja sína. Henni var sagt að
konur væru of latar til að taka þetta og vildu
frekar gleypa pilluna. Einnig var henni
sagt að það væri vandamál að það
þyrfti að vera til svo stór lager
af því að hettan kemur í svo
mörgum stærðum.
Núna er hinsvegar búið
að þróa hettu sem kemur í
einni stærð sem hentar flest-
um konum. Caya-hettan kom
á markað í apríl 2013 í ellefu
Evrópulöndum og Kanada. Við-
tökurnar hafa verið góðar enda
virðist vera vaxandi eftirspurn eftir horm-
ónalausum getnaðarvörnum. Í mars á þessu ári var
síðan gefið leyfi til að selja hettuna í Bandaríkjunum.
Elena hefur haft hettuna til sölu í vefverslun sinni í
um ár en hefur ekkert farið í það að auglýsa hana enda
aðeins um litla vefverslun að ræða.
Hún segir að mjög góðar upplýsingar um notkun
hettunnar fylgi með á diski. Hún selur ennfremur sæð-
isdrepandi gel en nauðsynlegt er að nota það með hett-
unni. Í bæklingi Landlæknis stendur almennt um hett-
unotkun að hún sé getnaðarvörn sem sé sett hátt upp í
leggöngin til að þekja leghálsinn. Mesta öryggi sé um
94% ef hún er rétt notuð.
„Þetta er mjög gott tæki fyrir konur sem fylgjast vel
með hvar þær séu staddar í tíðahringnum, fyrir meðvit-
aðar konur sem vilja taka ábyrgð á sinni
frjósemi og vilja ekki nota horm-
ónalyf,“ segir hún.
Fyrir þær sem vilja skoða
hettuna með eigin augum þá
verður Elena á barnavörumark-
aði sem haldinn verður í Sala-
skóla fyrstu helgina í nóvember
en þess má geta að markaður-
inn er haldinn til styrktar
FMB-teymi Landspítalans,
sem sér um mæður og ófrískar
konur með geðræn vandamál.
Nánari upplýsingar er að finna á
fésbókarsíðunni Stóri barna-
vörumarkaðurinn.
HETTAN FÁANLEG Á ÍSLANDI Á NÝ
Hettan er sporöskjulaga
en ekki hringlaga eins og
gömlu hetturnar.
Hormónalaus getnaðarvörn
Caya-hettan kom á markað
í apríl 2013 í ellefu
Evrópulöndum og Kanada.