Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.10.2014, Blaðsíða 22
Heilsa og
hreyfing
Lið vikunnar hjá UEFA
Morgunblaðið/Golli
Morgunblaðið/Ómar
*Íslenska landsliðið í knattspyrnu var valið liðvikunnar hjá Evrópska knattspyrnusamband-inu UEFA eftir glæsilega sigra á Lettum ogHollendingum í forkeppni Evrópumótsins íknattspyrnu. Þá er Gylfi Sigurðsson á miðj-unni hjá vefsíðunni goal.com sem valdi liðvikunnar og er hann þar með Portúgalanum
Ronaldo, Marik Hamsik frá Slóvakíu og Tékk-
anum Borek Doèkal.
É
g var vanur að fara á flesta landsleiki
þegar ég var yngri. Síðan er maður
allt í einu farinn að spila í bláu treyj-
unni og ef ég ætti að reyna að setja
upplifunina, hvernig það er að vera inni á
vellinum, í orð þá er þetta adrenalínsprauta
allar 90 mínúturnar – sérstaklega núna gegn
Hollendingum. Stuðningurinn og hvatningin
úr stúkunni var svo geggjuð,“ segir Jón Daði
Böðvarsson, framherji landsliðsins í knatt-
spyrnu.
Jón Daði hefur fengið mikið lof fyrir sína
frammistöðu en gegn Hollandi spilaði hann
sinn sjötta landsleik. Sparkspekingum fannst
hann hafa spilað tíu sinnum fleiri landsleiki.
Jón Daði hefur þegar skorað fyrir íslenska
landsliðið en hann opnaði markareikning
sinn gegn Tyrklandi í fyrsta leik forkeppni
Evrópumeistaramótsins.
Jón Daði er fæddur í Reykjavík, flutti um
skamma stund til Húsavíkur en þegar hann
var sjö ára flutti fjölskyldan til Selfoss þar
sem hann ólst upp. Snemma varð ljóst að
þarna færi góður knattspyrnumaður en með
honum í yngri flokkum voru meðal annars
þeir Viðar Örn Kjartansson, sem nú er
markahæstur í Noregi, og Guðmundur Þór-
arinsson, leikmaður Sarpsborg í Noregi.
Jón Daði hélt í atvinnumennsku árið 2012
og samdi við Viking í Noregi. Þá hafði hann
verið valinn efnilegasti leikmaður Pepsi-
deildarinnar. Hann hefur alltaf hugsað vel
um sig og hefur engan áhuga á að smakka
áfengi. „Ég hef vanist því að hugsa vel um
líkamann. Ég hef engan tíma til að fara á
pöbbinn, hef reyndar engan áhuga á því. Ég
veit ekki hvort aðrir gera það en ég hef
aldrei verið þannig. Mér finnst betra að fara
snemma að sofa og taka því rólega.
Ég vakna yfirleitt átta hérna úti og á að
vera mættur níu í morgunmat hjá Viking.
Síðan byrjar æfing tíu og er til tólf. Þá er
hádegismatur og yfirleitt einhverjir fundir til
tvö og þá er maður bara búinn.
Ég er aldrei að flýta mér og er yfirleitt
með þeim síðustu út. Finnst það fínt.“ Jón Daði hefur fengið mikið hrós fyrir sinn leik með íslenska landsliðinu.
Morgunblaðið/Ómar
LANDSLIÐSKAPPINN JÓN DAÐI BÖÐVARSSON
Gæðablóð sem er
síðastur út
JÓN DAÐI BÖÐVARSSON HEFUR SKOTIST UPP Á STJÖRNUHIMININN EFTIR
FRAMMISTÖÐU SÍNA MEÐ ÍSLENSKA LANDSLIÐINU Í KNATTSPYRNU. ÞESSI
22 ÁRA GAMLI LEIKMAÐUR VINNUR AÐ ÞVÍ AÐ SETJA Á LAGGIRNAR
STYRKTARSJÓÐ SEM Á AÐ AÐSTOÐA FORELDRA AÐ FJÁRMAGNA KNATT-
SPYRNUIÐKUN BARNA SINNA.
Benedikt Bóas benedikt@mbl.is
Frá lokahófi KSÍ árið 2012 þar sem Jón var val-
inn efnilegasti leikmaðurinn.
„Viking er svolítið líkt Liverpool á Englandi. Það
eru gerðar alveg rosalega miklar væntingar til fé-
lagsins en svo verður lítið úr þeim. Það eru oft
mikil vonbrigði eftir tímabilin. Þetta er lið sem
stefnir á toppinn en það hefur ekki gengið und-
anfarin ár. Þetta er stór klúbbur og mikil pressa
á leikmönnum liðsins.“
Þegar þetta er skrifað er Viking búið að spila
24 leiki og er í tíunda sæti. Það stefnir því í enn
eitt vonbrigðaárið hjá Viking. „Við byrjuðum vel,
eiginlega alveg fáránlega vel. Svo skyndilega hvarf
meðbyrinn og við erum búnir að tapa fimm
leikjum í röð – sem er mjög dapurt. Það þarf að
setjast niður eftir tímabilið og fara yfir hvað við
þurfum að gera.“
Jón Daði hefur skorað fimm mörk í ár í deild-
inni og eitt í bikarnum. Hann veit hinsvegar að
frammistaða hans í landsleikjunum vakti áhuga
annarra liða. „Ég hef ekkert heyrt. Ég er með
umboðsmann og það er yfirleitt sest niður eftir
tímabilið. Ég nenni ekki að pæla í næstu skrefum
fyrr en tímabilið er búið, en ég er bjartsýnn á að
það sé einhver áhugi.“
FÉLAG JÓNS DAÐA
VIKING STAVANGER
Svolítið eins og
Liverpool
„Ég þekki það alveg að það getur verið erf-
itt fyrir fjölskyldur að kaupa takkaskó og
borga keppnisferðir fyrir krakka. Þegar ég
var gutti voru fjármál fjölskyldunnar ekkert
brjálæðislega góð.
Það var stundum vesen að borga fyrir
keppnisferðir, takkaskór eru dýrir og allt
þetta aukalega er mjög dýrt. Mig langaði að
geta hjálpað krökkum sem eru í þannig að-
stæðum. Þetta er ekkert til að skammast
sín fyrir.
Sjóðurinn er ekki alveg kominn á kopp-
inn en uppleggið er þannig að fólk mætir
og sækir um styrk, svo er það metið og
fólkinu rétt hjálparhönd. Kannski vantar
þessa litlu hluti sem geta samt verið svo
stórir fyrir fólk sem er ekki með mikið á
milli handanna.
Þetta er dýr íþrótt og mikið tilstand á
bak við hvert mót. Æfingar, gallar, takka-
skór, nesti, þjálfarar, gisting og fleira. Þetta
safnast saman og er ekkert endilega á allra
færi.“
STYRKTARSJÓÐUR JÓNS DAÐA
KNATTSPYRNA FYRIR ALLA
Fátækt er ekkert til að
skammast sín fyrir
A landslið: Leikir 6 Mörk 1
Yngri landslið: Leikir 19 Mörk 3
Selfoss: Leikir 80 Mörk 18
Tölur Jóns Daða
Nýbúinn að fara
illa með Nigel de
Jong leikmann
Hollands.