Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.10.2014, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.10. 2014
Heilsa og hreyfing
… að rósakál vex á stilkum? Rósakál er ekta vetrargrænmeti og er afar hollt, stútfullt af stein-
efnum, vítamínum og andoxunarefnum. Kálið kemur úr sama flokki og grænkál, brokkolí og
hvítkál og þrífst best í kulda, nánast við frostmark. Það er skemmtilegt að borða þetta bragð-
góða grænmeti sem líkist kálhaus, því það er einstaklega krúttlegt.
Vissir þú …
2. Morgunmatur er mikilvægur
Senn verður svartamyrkur hér alla morgna er
líða fer að jólum og fram eftir næsta ári. Það
getur verið ansi freistandi að sofa bara örlítið
lengur áður en haldið er út í daginn,
sem þýðir ef til vill að morgun-
matnum þarf að fórna. Það
er hins vegar ekki sniðugt
því morgunmaturinn er
mikilvægasta máltíð
dagsins. Drífum okk-
ur á fætur og fáum
okkur hafragraut
en förum fyrr að
sofa í staðinn.
5. Hreyfing
Það getur verið erfitt að rífa sig af stað út í frostið til þess að
fara í ræktina. Hreyfing er holl og gefur líkamanum meiri
orku í myrkrinu. Þrátt fyrir kólnandi veður þýðir ekkert
að hætta að hreyfa sig. Það er hlýtt inni á líkamsrækt-
arstöðvunum og notalegt að fara í heita sturtu eftir
æfingu. Tökum okkur þó aðeins lengri tíma í upp-
hitun, liðamótin geta verið stirðari yfir veturinn.
Fyrir þá sem þykir útiveran betri er um að gera að
klæða sig í föðurlandið og skella sér í hressilegan
göngutúr. Sálin nærist í fallegu umhverfi og lík-
aminn fær mikið súrefni.
Morgunblaðið/Kristinn
1. D-vítamín
Það er sannað að Íslendingar fá ekki nógu mikið
D-vítamín í kroppinn. Sólin er kröftugur D-vítamín-
gjafi en því miður skín hún ekki eins oft og ákjósan-
legt væri hér á landi. Það er því nauðsynlegt fyrir þá
sem hér búa að taka D-vítamín, í töfluformi eða fá
það úr fæðunni með því t.d. að borða feitan fisk.
3. Ekki gleyma vatninu
Með kólnandi veðri finnur líkaminn
ekki eins mikla þörf fyrir að svala þorst-
anum og á sólríkum sumardegi. Það er hins
vegar mikilvægt að drekka vatn og eru tveir lítrar á
dag gott viðmið. Fyrir þá sem eiga erfitt með að
drekka svo mikið magn af vatni er snjallt að fá sér gott
te, helst með kryddjurtum.
4. Árstíðabundið
grænmeti
Grænmeti, krydd og ávextir
eru árstíðabundin. Sumt græn-
meti er hægt að kalla vetrar-
grænmeti sem þykir
best yfir vetrartím-
ann og má þar nefna
rauðrófur, næpur, sell-
erí, rófur og fleira. Dásamlegt í
grænmetisréttinn og þarf alls ekki
að vera flókið.
KALDARA LOFTSLAG HEFUR EINKENNT LITLU EYJUNA UNDAN-
FARNA DAGA. HVÍTT Í FJÖLLUM, FALLANDI LAUFBLÖÐ OG MARGIR
HAFA ÞURFT AÐ SKAFA BÍLINN Á MORGNANA. ÞAÐ ER GOTT AÐ
UNDIRBÚA LÍKAMANN VEL FYRIR FROSTIÐ OG KULDANN ENDA
BREYTAST KRÖFUR LÍKAMANS MEÐ KÓLNANDI VEÐRI OG STUTT Í
AÐ VETUR KONUNGUR KOMI TIL BYGGÐA.
Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is
heilsusamleg ráð
fyrir veturinn
7. Höldum húðinni rakri
Kalt loft og vindur getur þurrkað upp hvaða húðtegund sem er
og því er mikilvægt að halda henni rakri með góðu rakakremi og
varasalva fyrir þurrar varir.
6. Sofum nóg
Svefn er mikilvægur all-
an ársins hring. Það verð-
ur þó að segjast að þreytan
herjar frekar á líkamann yfir
vetrartímann og leikur skamm-
degið þar stórt hlutverk. Gott er að
miða við átta klukkustunda svefn því góð-
ur svefn er allra meina bót.
7