Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.10.2014, Blaðsíða 29
H
úsið sem er byggt í kringum 1950 er á tveimur hæðum. „Hér er-
um við með dökk viðargólf og dökk viðarhúsgögn í bland við ljós
og létt húsgögn sem taka ekki mikið pláss. Það getur verið
nokkur kúnst að búa í litlu húsnæði,“ segja hjónin en þau eru að
gera upp húsnæði norður í landi „Við grínumst stundum með það að við eig-
um hús úti á landi, en sumarbústað í Reykjavík. Það er ekki svo fjarri sann-
leikanum.“
Hjónin hafa mikla ástríðu fyrir matargerð en þau eru höfundar mat-
reiðslubókanna, Góður matur – gott líf í takt við árstíðirnar, Eldað og bakað
í ofninum heima og Into the North. Einnig er ný bók, Sveitasæla, væntanleg
en þar matreiða hjónin mikið af góðum mat úr hráefnum úr héraði. Við hús-
ið er stór og fallegur garður sem Inga og Gísli nýta allan ársins hring. „Á
undanförnum árum hefur garðurinn tekið miklum breytingum frá því að
vera venjulegur garður í grónu hverfi yfir í það að vera fjölbreyttur ætigarð-
ur með stóru matjurtabeði, litlum gróðurskála þar sem við ræktum mikið af
kryddjurtum. Einnig erum við með allskonar ávaxtatré og berjarunna. Við
fyllum síðan blómakerin okkar af fögrum ætiblómum sem við nýtum í salöt
og sultugerð,“ útskýrir Inga.
Inga Elsa og Gísli segjast dálítið veik fyrir gömlum hlutum með sögu og
hafa þau mikla ánægju af að þræða markaði erlendis. „Þar má oft sjá fallega
muni sem gefa okkur ýmsar hugmyndir, þó svo að við kaupum ekkert nema
í mesta lagi fallegt steikarhnífasett. Síðan er gaman að fletta í gegnum hí-
býlablöð en þar má oft finna áhugavert efni sem gefur okkur innblástur, t.d.
í myndatökum og til að krydda heimilið lítillega án mikils tilkostnaðar.“
Spurð hvað sé mikilvægast að hafa í huga við innréttingu heimilisins segja
hjónin að það sé þrennt „Ákveðin praktík, hafa heimilið persónulegt, jafnvel
þótt því fylgi ákveðin óreiða, og að þar sé notalegt að vera.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hjónin halda mikið upp
á verslunina Tekk
Company en þar hafa
þau keypt ýmislegt fal-
legt í gegnum tíðina.
Heimagerð-
ur og
bragðgóður
birkisnafs.
Praktískt og
persónulegt heimili
Í NOTALEGU HÚSI Í KLEPPSHOLTINU HAFA HJÓNIN INGA ELSA BERGÞÓRSDÓTTIR,
GRAFÍSKUR HÖNNUÐUR, OG GÍSLI EGILL HRAFNSSON LJÓSMYNDARI ÚTBÚIÐ SÉR
OG FJÖLSKYLDU SINNI EINSTAKT HEIMILI.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
FALLEGT HEIMILI OG FJÖLBREYTTUR ÆTIGARÐUR
Fjölbreytti ætigarðurinn er í miklu
eftirlæti hjá hjónunum.
Hjónin Gísli Egill Hrafnsson og Inga
Elsa Bergþórsdóttir gefa út sína
fjórðu matreiðslubók í vetur.
Heimilið í
Kleppsholtinu
er afskaplega
notalegt og fal-
lega innréttað.
19.10. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
Faxafeni 5, Reykjavik, S: 588 8477 | Skeiði 1, Ísafirði, S: 456 4566 | Dalsbraut 1, Akureyri • S: 558 1100 • www.betrabak.is
TIMEOUT STÓLLINN
Hannaður með fagurfræði
og þægindi að leiðarljósi.
Hönnuður: Jahn Aamodt