Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.10.2014, Qupperneq 30
L
jósmyndarinn og matarbloggarinn Katrín Björk, sem
heldur úti blogginu Modern Wifestyle, modernwifest-
yle.com, kynntist graskerskaffi þegar hún var í fram-
haldsnámi í ljósmyndun í New York. Það var á Star-
bucks, sem fann upp á graskerskaffinu (e. Pumpkin Spice
Latte) árið 2003, og síðan hafa viðskiptavinir drukkið um 200
milljónir bolla.
Katrín á danskan eigin-
mann og hefur alið manninn
í Kaupmannahöfn síðustu 12
ár fyrir utan dvölina vestra.
Hún heldur sig vestanmegin
en núna er hún búsett í Ves-
terbro, en Upper West Side
var heimili hennar í Stóra
eplinu. Graskerskaffið er
ekta haust- og vetrardrykkur
og getur vel komið í staðinn
fyrir heitt súkkulaði á svöl-
um dögum. Þetta kaffi fæst
ekki í Kaupmannahöfn svo
Katrín greip til sinna ráða
og bjó til uppskrift svo hún
gæti sjálf notið ilmandi bolla
og deilt með öðrum.
„Á námsárunum í Banda-
ríkjunum 2009 og 2010
kynntist ég graskeri yfirhöf-
uð og því að blanda graskeri
við þessi hlýju krydd eins og kanil og negul. Eftir nokkrar til-
raunir þá bjó ég til þessa uppskrift,“ segir hún en á blogginu
hennar er ennfremur að finna fleiri graskersuppskriftir fyrir
áhugasama og líka uppskrift að ristuðum graskersfræjum, svo
allt hráefnið sé vel nýtt.
Hún segir að það sé auðveldara að búa til graskerskaffið en
maður heldur og þannig sé líka hægt að stjórna magninu af
sykri og fitu og auðvitað tryggja gott hráefni.
Graskerskryddin eru kanill, negull, engifer og múskat
blandað saman. Nafnið kemur frá graskersbökunni sem er
svo oft borin fram á þakkargjörðarhátíðinni í Bandaríkjunum
en í henni er graskersmauki blandað saman við þessi ákveðnu
krydd.
Modern Wifestyle fagnaði þriggja ára afmæli síðastliðinn
föstudag. Þetta byrjaði ekki sem matarblogg heldur var um-
fjöllunarefnið víðara. Bloggið hefur vaxið gríðarlega á þessum
tíma og umhverfið breyst. Þetta er vaxandi iðnaður og matar-
bloggari er nú viðurkennt starfsheiti.
Katrín hefur fengið mörg verkefni í gegnum bloggið enda
talar það sínu máli, myndirnar eru sérstaklega fallegar og
margar skemmtilegar uppskriftir þar að finna. Hún segist til-
heyra stóru neti matarbloggara í Kaupmannahöfn, sama fólk-
inu sé gjarnan boðið á allskonar viðburði, bæði kynningar og
matarveislur. „Það er skemmtilegt að kynnast fólkinu í kring-
um þetta,“ segir hún en framundan er jólahlaðborð matar-
bloggara. „Það verður allavega góður matur,“ segir hún en
þetta verður ekta „julefrokost“ að dönskum hætti.
Katrín segir að það hafi verið brjálað að gera hjá sér á
blogginu og sem ljósmyndara en hún tekur matarmyndir fyrir
blöð og tímarit. Hún er einnig komin á þann stað að hún er
farin að skrifa gestablogg á öðrum bloggum. „Ég fæ marga
tölvupósta á dag þar sem er verið að biðja mig að taka þátt í
alls konar verkefnum og skrifa fyrir aðrar síður og tímarit.
Þetta tók langan tíma, það eru þrjú ár síðan ég byrjaði. Lyk-
illinn að góðu bloggi er að gefast aldrei upp.“
MATARBLOGGARI VIÐURKENNT STARFSHEITI
Ilmandi
haust
LYKILLINN AÐ GÓÐU BLOGGI ER AÐ GEFAST
ALDREI UPP, SEGIR KATRÍN BJÖRK, LJÓSMYNDARI
OG MATARBLOGGARI Á MODERN WIFESTYLE.
HÚN GEFUR HÉR UPPSKRIFT AÐ KRYDDUÐU
GRASKERSKAFFI.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Katrín Björk hefur haldið úti
matarblogginu Modern Wife-
style í þrjú ár.
Matur
og drykkir *Þaranúðlur eru nýjasta viðbótin viðmatarflóruna. Þær eru mjög næring-arríkar og hægt er að borða þær hráar.Þær henta fyrir þá sem eru á lágkol-vetnamataræði, sem er svo vinsælt umþessar mundir. Þeir sem sakna þess aðborða pasta eða venjulegar hrísgrjóna-
núðlur geta því gripið til þessa kosts.
Næringarríkar þaranúðlur
GRASKERSMAUK
1. Skerðu graskerið í tvennt og fjarlægðu
fræin.
2. Skerðu graskerið í hæfilega bita og
settu þá með hýðið upp á bökunarplötu.
3. Bakaðu í 200°C heitum ofni í um 30
mínútur þar til hýðið er dökkt og aldin-
kjötið mjúkt.
4. Þegar það er nógu kalt til að með-
höndla ætti að vera auðvelt að flysja
graskerið eða skafa kjötið úr skelinni.
5. Hentu hýðinu.
6. Maukaðu graskerið í matvinnsluvél
eða blandara, settu það svo í gegnum
fíngatað sigti.
7. Núna ættirðu að vera með silki-
mjúkt graskersmauk sem hægt er að
frysta og nota síðar í graskersböku eða
annað góðgæti.
KAFFIÐ
2 msk graskersmauk
¼ tsk kanill
¼ tsk engiferkrydd
1⁄8 tsk múskat
1 msk maltsíróp eða púðursykur
¼ tsk vanilludropar
2 dl mjólk
2 skot espresso
þeyttur rjómi (ef vill)
Hitaðu graskersmauk, krydd og sykur í
potti þar til þykkt og klístrað. Hrærðu
mjólk og vanilludropa saman við. Gættu
þess að mjólkin sjóði ekki.
Ef þú vilt hafa mjólkina freyðandi er
hægt að setja hana örstutt í blandara
eða þeyta með handþeytara.
Lagaðu kaffið, helltu graskersmjólk
út í og toppaðu með þeyttum rjóma.
Uppskriftin er fyrir tvo.
Graskerskaffi