Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.10.2014, Qupperneq 36

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.10.2014, Qupperneq 36
Pieps hóf starfsemi 1972 og þá sem framleið- andi á snjóflóðaýlum, en svo nefnist apparat sem er sendi- og móttökutæki ætlað til að finna fólk sem grefst í snjóflóði. Ýlirinn sendir stöðugt frá sér merki og ef einhver lendir í snjóflóði stilla félagar hans sína ýla þannig að þeir nema merki þess sem í flóð- inu lenti og eru fljótari að finna hann fyrir vikið, geta miðað hann út eftir styrk merkisins og líka nýtt snjóflóðastöng með nema til að flýta enn fyrir leitinni. Pieps var fyrsta fyrirtækið til að kynna snjóflóðaýli með þremur loftnetum á sínum tíma og þykir í fremstu röð á þessu sviði. Slík tæki kosta þó sitt, Pieps DSP PRO kostar 84.995 kr., en það er líka til ódýrari græja, Pieps Freeride, með einu loftneti, sem kostar 24.995 kr. Pieps Freeride er minni en þriggja loftneta ýlarnir og léttari, notar eina AA-rafhlöðu. Hann dregur eðlilega minna en þriggja loftneta tækin og er ekki eins góður þegar verið er að leita að einhverjum sem grafinn er í fönn, en dugar vel fyrir þann sem leitað er að. Sendingin nær 40 metra og Freeride-ýlirinn styður líka tækni sem kallast iProde, en þá getur leit- armaður ákveðið að útiloka það merki og snúa sér að næsta merki ef þörf krefur. Ef margir lenda í flóði greinir tækið á milli merkja eftir styrkleika og sýn- ir aðeins það sterkasta þó það nemi þau öll. Eins og áður er getið notar tækið eina AA-rafhlöðu sem dugir í 200 tíma sendingu og tækið þolir frá 20 gráðu frosti til 45 stiga hita. Það er ekki nema 110 g að þyngd með rafhlöðu og 110 x 58 x 24 mm að stærð. Ýlir í vasann LYKILL Í SNJÓFLÓÐABJÖRGUN Græjur og tækni Þrívíddarprentað súkkulaði AFP AFP *Þrívíddarprentarasýningin 3D Printshow exhibitionhófst í vikunni í París. Þar má sjá allt það nýjasta úr þrí-víddarprentun. Meðal þess sem var sýnt var þrívídd-arprentað súkkulaði sem gestir smökkuðu með bestulyst. Má sjá nokkra góða súkkulaðibita á myndunumhér til hliðar. Vinsældir þrívíddarprentunar hafa aukistjafnt og þétt síðustu ár og telur Allistair Heath, rit- stjóri City AM, viðskiptablaðs á Bretlandi, að þrívídd- arprentun muni leiða af sér nýja iðnbyltingu. Á síðustu áratugum hefur fjallaferðalöngumfjölgað til muna og gildir einu hvort það sésumar eða vetur. Aukinn áhugi á útivist ræður eðlilega mestu hvað þetta varðar, en einnig það að menn eru betur búnir en forðum, hafa að- gang að vélknúnum farartækjum sem komast hvert á land sem er og eiga betri hlífðarbúnað og tól ým- iskonar. Samhliða því sem menn fara víðar en áður og geta þraukað við verri skilyrði lenda þeir eðlilega oftar í hættum en ella. Fyrir tveimur árum lentu vélsleðamenn í snjóflóði í suðurhlíðum Kerlingar í Glerárdal. Hópur manna var á ferð á vélsleðum og tveir öftustu í hópnum lentu í flekaflóði sem fór af stað í kjölfar þeirra sem á und- an voru. Annar maðurinn grófst í flóðið en komst upp úr því af sjálfsdáðum, aðallega vegna þess að hann var með bakpoka með út- blásanlegum loftpúðum sem hjálpaði til að halda honum efst í flóðinu. Það getur verið mikill kraftur í snjóflóði og getur það þeytt með sér þyngri hlutum en einum mannslíkama. Ef viðkomandi er á flekanum sem fer af stað getur hann borist ofarlega í flóðinu talsverða leið, en um leið og snjóflóðið hægir á sér sekkur mannslíkami hratt ofan í snjóinn. Hægt er að beita ýmiskonar tækni til að reyna að halda sér á floti og jafnvel ná að mjaka sér út í jaðar flóðsins og fá þannig fast land undir fæturna, en það getur skipt gríðarlegu máli að vera með sér- staka bakpoka sem blása út og auka ummál þess sem lendir í flóðinu og þannig líkurnar á því að hann nái að fljóta upp í flóðinu, en sökkvi ekki. Alla jafna er talið að til þess að ná að fljóta á púðursnjó þurfi aukarúmmál sem nemi 1,5 sinnum þyngd þess sem í snjóflóði lendir og 100 kílóa maður ætti þá að þurfa 1,5 sinnum þyngdina, eða 150 lítra. Allt er þetta tínt til hér þar sem miklu skiptir að bakpoki með loftpúðum sé með nógu stóra loftpúða til að henta fyrir hvern og einn og nýr bakpoki frá austurríska skíðavörufyrir- tækinu Pieps státar af því að vera með 200 lítra loftpúða. Nú veltir þú því kannski fyrir þér hvers vegna ég sé að velta vöng- um yfir bakpoka í tækniumfjöllun, en því er til að svara að það er fleira tæknilegt en farsímar og tölvur, og í mörgum tilfellum skiptir tækni svo hversdagslegt fyrirbæri sem bakpoka meira máli en það hvort síminn sé með skjá sem er með 534 díla á tommu eða með 401. Fyrir tveimur árum keypti bandaríska fyrirtækið Black Diamond Equipment Pieps og í dag framleiðir Pieps ýla sem forðum, en líka öryggisbakpokana, sem sagt er frá hér fyrir ofan, venjulega bakpoka, snjóflóðastangir, skóflur og ýmislegan annan öryggisbúnað – rafeindaþekkingin kemur frá Pieps, en Black Diamond Equipment kanna að búa til bakpoka og annan viðlegubúnað. Öryggisbakpokarnir frá Pieps státa ekki bara af 200 lítra loftpúða, heldur eru þeir frábrugðnir áþekkum bak- pokum flestra annarra framleiðenda í því að þeir eru ekki með sérstakan loftkút, heldur sér sérstök loftdæla um að blása púðann upp þegar þörf krefur og nær að fylla hann á hálfri fjórðu sekúndu, en eftir að búið er að fylla hann blæs hann reglulega í púðann til að tryggja að ekki leki úr honum ef hann hefur rifnað, lent utan í ísöxi, mann- broddum, vélsleðanum, oddhvössu grjóti eða einhverju öðru, en hann er annars mjög sterklegur. Púð- inn fellur svo saman af sjálfu sér þremur mínútum eftir að hann er blásinn upp, sama dælan dælir loftinu úr honum á þremur sek- úndum, og skilur þá eftir sig loft- rými í snjónum ef viðkomandi hefur grafist í snjóflóðið. 24 lítra Pieps-poki kostar 189.000 kr. í Fjallakofanum, en 34 lítra poki 199.000 kr. á sama stað. Í pokunum er líka létt snjó- skófla og snjóflóðastöng úr kolt- refjum í sérstöku hraðhólfi fram- an á pokanum. Nú stendur ráðstefnan Björgun 2014 í Hörpu og sýning tengd henni framan við ráðstefnusali þar sem ég komst í tæri við Pieps-pokann. Ráðstefnan stendur fram á sunnudag. SNJALLIR BAKPOKAR HÁTÆKNI KEMUR VÍÐAR VIÐ SÖGU EN Í SNJALLTÆKJUM OG TÖLVUM SEM SANN- AST EINKAR VEL Á TÆKNI SEM SKIPT GETUR SKÖPUM FYRIR ÞÁ SEM LENDA Í SNJÓFLÓÐI Á FJÖLLUM. ÞAR VAKTI BÚNAÐUR FRÁ AUSTURRÍSK-BANDA- RÍSKA FYRIRTÆKINU ATHYGLI MÍNA Á BJÖRGUNARSÝNINGU Í HÖRPU SEM HÓFST Á FÖSTUDAG. * Gaumljós á dælunni sýna stöðu á kerfinu svo einfalter að kanna það áður en lagt er upp í ferðalag, en kerfið kannar stöðuna sjálfkrafa í hvert sinn sem kveikt er á því. Handfanginu sem togað er í til að blása pokann upp er þannig fyrir komið að hægt er að nota hvora hendina sem er til að blása pokann upp. * Loftpúðinn er úr samskonar efni og notað er í loft-púða í bifreiðum og því sérstaklega sterkur. Það er líka auðvelt að pakka honum saman aftur eftir notkun – ég sá það gert á innan við mínútu, en það þarf ekki að pakka honum inn strax, til að mynda ef menn vilja hafa varann á sér – það er strax hægt að blása hann upp aftur. * Líþíumrafhlaðan í loftdælunni er sérstaklega kul-davarin og missir því ekki orku á ögurstundu, keyrir blásturinn í að minnsta kosti tvær fyllingar í 30 gráða frosti. Hún dugir til þess að blása púðann upp að minnsta kosti fjórum sinnum við venjuleg skilyrði og í raun oftar. Græjan ÁRNI MATTHÍASSON
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.