Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.10.2014, Síða 38

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.10.2014, Síða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.10. 2014 Græjur og tækni Hollendingar voru með fimm myndavélar til að leik- greina leik Íslands og Hollands og tvo starfsmenn sem leikgreindu leikinn í tveimur tölvum í rauntíma. Þannig gátu þeir farið með upplýsingar leiksins inn í klefa í hálfleik. Íslenska landsliðið hefur einn starfsmann til að taka upp leikinn, eina myndavél en enga tölvu. Tæknin skipti ekki máli Þ essi ráðstefna fjallar sér- staklega um stafræna miðlun í menningu og listum en líka stafræna sköpun í listum,“ segir Auður Rán Þorgeirsdóttir, verkefnastýra norrænu ráðstefnunnar Arts & Audiences, sem haldin verður í byrjun næstu viku. Stafræna byltingin hefur nú þegar haft þau áhrif að áhorf- endur eru æ oftar í hlutverki meðhöfunda að listaverkum. Í ár verður sjónum meðal annars beint að því hvernig norrænar lista- og menningarstofnanir hafa tekist á við þessa áskorun. Virkni og þátttaka áhorfenda er yfirskrift ráðstefnunnar í ár. „Íslenskur vélbúnaður er mjög góður en íslenskur hugbúnaður ekki eins góður. Hér á Íslandi erum við mjög góð á Facebook að miðla efni og lista- og menn- ingarstofnanir hafa nýtt sér það mjög vel. Við höfum hins vegar ekki áttað okkur á og nýtt okk- ur aðrar stafrænar boðleiðir og áherslur eins og nágrannar okk- ar.“ Bræðingur listar og tækni Ráðstefnan hefur áður farið fram í Bergen, Helsinki og Stokkhólmi og er hluti af formennskuáætlun Íslands í norrænu ráðherranefnd- inni. Þar munu raddir heyrast frá sérfræðingum sem hafa reynslu af því að búa til bræð- ing listarinnar og miðlunar út á við. Þarna munu einnig heyrast gagnrýnar raddir en ekki eru allir sáttir við að listinn skuli yf- irleitt enda á Facebook. „Flest endar á Facebook á einn eða annan hátt. Sumum þykir Face- book gefa áhorfandanum tæki- færi til ákveðinnar þátttöku í ferlinu með því að geta lækað og tjáð sig um verkið, en svo mætti líka spyrja sig hvort það sé ákveðin blekking. Erum við í raun þátttakendur í einhverju bara með því að læka? Í menn- ingarpólitísku samhengi er þetta þörf umræða, sérstaklega þegar við skoðum áhorfendur og gesti sem einhvers konar meðhöfunda að listaverkum eins og hefur verið með þátttökuleikhús til dæmis. Sú umræða hefur átt sér stað í kringum okkur mjög lengi en hér á landi erum við ekki al- mennilega byrjuð að ræða þessa hluti. Það verður því áhugavert fyrir okkur að hlusta á þessa sérfræðinga og láta þá benda okkur á hvernig gott er að gera hlutina.“ Töluleikjaframleiðendur fremstir í að búa til sam- band við þátttakendur Auður og félagar leituðu meðal annars til tölvuleikjaframleiðand- ans CCP sem mun halda erindi ásamt Coney-listahópnum frá Bretlandi. Ástæðu þess að tölvu- leikjaframleiðandi kemur inn í svona ráðstefnu segir Auður aug- ljósa. Tölvuleikjaframleiðendur eru þeir bestu að mynda sam- band við sína þátttakendur. „Coney-listahópurinn hefur unnið með aðferðir tölvuleikja til að skapa leikrit og Pétur Örn Þór- arinsson frá CCP kemur til að ræða málin ásamt þeim enda stendur leikjaiðnaðurinn mjög framarlega í því að mynda sam- band við þáttakendur.“ Og fyrst þetta er ráðstefna um tækni og list er hægt að taka þátt í ráðstefnunni jafnvel þótt maður komist ekki í Hörpu þessa tvo daga. „Við ætlum að streyma ráðstefnunni með fyr- irtæki frá Bretlandi og þau sjá um að skapa það sem er kallað „online audience experience“ eða upplifun áhorfenda. Þetta fyr- irtæki mun gera tilraun með það að skapa tvo vettvanga í einu. Annar vettvangurinn er á staðn- um og hinn á netinu og við spyrjum hvort við getum náð stafrænu reynslunni í þær hæðir að það sé jafngott að vera fram- an við tölvuna og að vera á staðnum. Það er svolítið spenn- andi.“ Heldur betur. Meira hægt að gera en bara stofna viðburð ÁHORFENDUR ERU Í SÍVAXANDI MÆLI BEINIR ÞÁTTTAK- ENDUR AÐ SKÖPUN LISTAVERKA. Á NORRÆNU RÁÐ- STEFNUNNI ARTS & AUDIENCES Í HÖRPU 20. OG 21. OKTÓBER KEMUR FÓLK ÚR MENNINGAR- OG LISTAHEIM- INUM SAMAN OG SEGIR FRÁ ÞEIM AÐFERÐUM SEM ÞAÐ NOTAR TIL AÐ EIGA Í SAMSKIPTUM VIÐ ÞÁ ÁHORFENDUR SEM FYRIR ERU OG HVERNIG Á AÐ LOKKA NÝJA AÐ. Benedikt Bóas benedikt@mbl.is Auður Rán Þorgeirsdóttir, verk- efnastýra norrænu ráðstefnunnar Arts & Audiences, sem haldin verður í byrjun næstu viku. Morgunblaðið/Þórður Ráðstefnan er hluti af formennskuáætlun Íslands í norrænu ráðherranefndinni. Morgunblaðið/Árni Sæberg Í vikunni byrjaði tæknisýningin Gitex í Dubai. Þar voru afhjúpaðir þrír nýir sjúkrabílar í sjúkrabílaflota furstadæm- isins. Slíkt er kannski ekkert tiltökumál, það er jú nóg af peningum til í Dubai, nema hver og einn sjúkrabíll sem afhjúp- aður var er með hámarkshraða upp á 300 kílómetra á klukkustund. Þetta eru tveir sérhannaðir Ford Must- ang og einn Lotus Evora-ofursportbíll. Með þessu má minnka viðbragðstíma sjúkraflutningamanna úr átta mínútum í fjórar. Segja má að þetta séu viðbragðs- bílar því ekki er hægt að flytja sjúklinga í þeim. Sjúkraflutningamenn í Dubai munu hljóta sérstaka þjálfun í akstri þessara tryllitækja en í þeim verða 60% af öllum þeim nauðsynjum sem eru í venjulegum sjúkrabílum á vegum Dubai. Sjúkrabíll sem kemst upp í 300 TIL AÐ MINNKA VIÐBRAGÐSTÍMA SJÚKRABÍLA Í DUBAI ÁKVÁÐU YFIRVÖLD AÐ FÁ SÉR EITTHVAÐ ANNAÐ EN VENJULEGAN SJÚKRABÍL. TVEIR FORD MUSTANG-SPORTBÍLAR OG EINN LOTUS EVORA HAFA MINNKAÐ TÍMANN ÚR ÁTTA MÍNÚTUM Í FJÓRAR Gestir á Gitex-tæknisýningunni virða fyrir sér Lotus Evora-sjúkrabílinn. AFP ÓDÝRT, MIÐLUNGS, DÝRT Ódýrt: A.G.-hraðsuðuketill. Verð: 1.695 krónur. Fæst í: Rúmfatalagernum. Aðeins um: 1,7 lítra hraðsuðuketill. Slekkur á sér sjálfkrafa við suðu. Miðlungs: Bosch. Hraðsuðukanna. Verð: 7.900 krónur. Fæst í: Bosch-búðinni. Aðeins um: 2.000-2.400 vatta hrað- suðuketil með botni úr ryðfríu stáli. Einungis hægt að ræsa þegar lok er á. Slekkur sjálfkrafa á sér við suðu. Snúruhalda undir sökkli. Dýrt: DeLonghi Icona. Verð: 19.900 krónur. Fæst í: Heimilistækjum. Aðeins um: Flottur hraðsuðuketill úr Icona-línunni. Tekur 1,7 lítra og er 2.200 vött. Innbyggður filter, kvarði fyrir vatnsmagn og ljós í rofa. Hraðsuðuketill

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.