Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.10.2014, Blaðsíða 39
19.10. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39
*Upphaf Facebook er engin skemmtisaga.Við félagarnir sátum við tölvuna okkar ogforrituðum í sex ár.
Mark Zuckerberg, stofnandi Facebook
Símsvarar hafa aldrei náð neinni fótfestu hér á
landi. Árið 1983 auglýsti Simco-símafyrirtækið
mikið í Morgunblaðinu símsvarann Ronex til
sölu undir yfirskriftinni „kauplaus starfs-
maður“. Var símsvarinn sagður nauðsynlegur
starfsmaður hjá öllum minni fyrirtækjum, fé-
lagasamtökum og einstaklingum.
Virkni símsvarans var einföld. Hann gat tekið
niður skilaboð þegar það hringdi út. Þrátt fyrir
einfaldleikann var hann sagður hannaður með
nýjustu tækni í huga og bjóða upp á fjölmarga
kosti sem eldri gerðir símsvara buðu ekki upp
á.
Hann vó heil 2,7 kíló og fylgdu tvær míní-
kassettur með. Þá var hann samþykktur af Pósti
og síma og þurfti ekki að borga af honum nein
rekstrar- eða leyfisgjöld.
Símsvarinn virðist ekki hafa hitt í mark hjá Ís-
lendingum því hann var ekkert auglýstur árið
eftir. Hann birtist í raun ekki aftur á síðum
Morgunblaðsins fyrr en 1989 þegar hann var
auglýstur til sölu í smáauglýsingum. Þar var
hann auglýstur sem lítið notaður.
GAMLA GRÆJAN
Ronex-
símsvari
Ronex-símsvarinn sem auglýstur var á síðum Morgunblaðsins 1983.
Jean Armour Polly, rithöfundur og
netfrumkvöðull, var sú fyrsta sem
notaði frasann „Surfing the Int-
ernet“, sem hefur verið þýddur á
íslensku sörfa á netinu og þýðir
samkvæmt orða-
bók Snöru: „Vafra
um á netinu, þ.e.
flakka á milli vef-
síðna.“
Polly skrifaði
grein árið 1992
sem birtist í blaði
Minnesota-
háskólans og var
fyrirsögnin Surfing the Internet.
Þetta sama ár hafði vefsíðum
fjölgað mikið og var fyrri netbólan
að hefja sig til flugs. Milljónasta vef-
síðan hafði
verið skráð
þetta sama
ár og Polly
var mikill
áhugamaður
um þessa nýju
þróun. Ári áður
hafði hún stofnað vef-
síðuna netmom.com
og er sú síða enn í full-
um gangi. Er netmom
meira að segja orðin skrásett vöru-
merki. Á síðunni sinni segir Polly
frá því hvernig titillinn kom til. „Ég
vildi hafa fyrirsögnina þannig að
hún myndi lýsa hvað það væri gam-
an að vafra um þennan ókannaða
heim. Músamottan mín á þessum
tíma var með mynd af brimbretta-
kappa að bruna eftir stórri öldu
með bros á vör. Þegar ég var búin
að prófa margar fyrirsagnir horfði
ég á manninn á músamottunni og
fékk hugljómun.“
TÖFF TÆKNISTAÐREYND
Sörfið kom frá rithöfundi
Jean Armour Polly
Bandaríkjaher hefur undanfarin tvö ár verið með
ómannaða geimflaug, sem nefnist X-37B, á braut um
jörðu. Enginn veit af hverju flauginni var skotið á loft og
enginn virðist vita hver tilgangur ferðarinnar var en hún
er sögð hafa lent á Vandenberg-herflugvellinum í vik-
unni. „Þetta verkefni er hernaðarleyndarmál – svo ein-
falt er það,“ sagði Chris Hoyler, ofursti og talsmaður
bandaríska flughersins, við AFP-fréttastofuna í vikunni.
X-37B-flaugin er ómannað geimfar sem getur flogið
um sporbaug og lent án þess að mannshöndin komi
nokkuð þar nálægt. Hún er þannig nýjasta nýtt þegar
kemur að sjálfstýringu á flugvélum og vonast Boeing,
sem smíðaði X-37B-flaugina, til að geta nýtt sér upplýs-
ingar frá tölvum flaugarinnar til að smíða næstu kynslóð
af flugvélum.
Á heimasíðu Boeing stendur að hún sé gerð í þeim til-
gangi að athuga hvort hægt sé að endurvinna geimrusl
sem svífur um himinhvolfin í tonnavís.
En eins og með svo mörg hernaðarleyndarmál í
Bandaríkjunum hafa samsæriskenningar verið á lofti
bæði í blaðaskrifum og á netinu. Þar geta menn sér til
um af hverju Bandaríkjaher sendi flaugina af stað, hvort
hún sé í raun og veru ekkert nema háþróað vopn eða nýj-
asta nýtt í njósnaheiminum og geti njósnað um Norður-
Kóreu og Rússland. Fleiri skemmtilegar kenningar hafa
einnig verið á lofti, sumar skemmtilegri en aðrar.
HIN DULARFULLA X-37B-VÉL KOMIN AFTUR TIL JARÐAR
Eitt er víst. X-37B-flaugin fór af stað fyrir tveimur árum
og lenti í vikunni. Annað fær almenningur ekki að vita.
AFP
Samsæriskenn-
ingar á lofti Mophie Juice Pack Air
Hleðsluhulstur fyrir
iPhone 5 og 5s
Létt hulstur sem ver símann
þinn vel gegn höggum og
orkuleysi.
Verð12.990.-
Kreafunk
Bluetooth hátalarar.
Dönsk hágæða framleiðsla.
Nokkrir litir, Koma í fallegum
viðarkössum, tilvalin tækifærisgjöf.
Verð frá12.990.-
Libratone ZIPP
Léttur og einfaldur hátalari
með innbyggðri rafhlöðu.
AirPlay og PlayDirect tækni
til að spila þráðlaust, jafnvel
án WiFi nets.
Verð84.990.-
Tracks Air
Þráðlaus hágæða heyrnartól,
sem einnig er hægt að nota
með snúru. 3 litir
Verð 39.990.-